Frjáls verslun - 01.07.1991, Side 30
UPPELDI
„Það er mjög slæmt fyrir börn að vera hjá tveimur til þremur mismunandi
dagmæðrum á ári.“
vistarstofnanir. Það verður einhver
að vilja vinna þar og faglært fólk fæst
ekki til þess fyrir þau lúsarlaun sem í
boði eru.“
ÁVINNINGUR ÞJÓÐFÉLAGSINS 1,200
MILUÓNIR
Hagfræðistofnun Háskóla íslands
gerði nýlega athugun á þjóðhagslegri
hagkvæmni eflingar leikskóla og
lengri skóladags í grunnskóla. Þar
kemur fram að þjóðhagslegur ávinn-
ingur af eflingu leikskóla fyrir böm á
aldrinum 2-6 ára yrði tæplega 1,200
milljónir króna árlega. Einnig kemur
fram að ávinningur foreldra af eflingu
leikskóla og lengingu skóladags er
mikill og myndi m.a. skila sér í hærri
launum foreldra: „Yfirleitt eru mark-
aðslaun forsjármanna barna og for-
eldra, sem óska eftir hlutastarfi eða
snúa til baka á vinnumarkaðinn, ekki
mjög há. Þannig er heill samfelldur
vinnudagur yfirleitt verðmætari en sá
sem er styttri og e.t.v. sundurslitinn
vegna barnagæslu. Fólk, sem knúið
er til slíkrar vinnu, fær því oft lægri
laun og missir frernur af stöðuhækk-
unum.“
„Það er mjög mikið álag að vera
útivinnandi og bera einnig ábyrgð á
heimilishaldi,“ segir Lára V. Júlíus-
dóttir, lögfræðingur ASÍ og þriggja
barna móðir. „Ég held að fólk verði að
hafa upplifað það sjálft til að geta gert
sér grein fyrir hvað álagið er mikið.
Það er sennilega algengast að mæð-
urnar sjái um snúninga vegna barn-
anna og annist þau í veikindum og
ofan á það bætist svo tilfinningalegt
álag og oft sektarkennd vegna að-
skilnaðar frá börnunum. Það er ekk-
ert vafamál að þetta hefur áhrif á
hvernig þeim gengur í starfi. Þó að
menn vilji ekki viðurkenna það eru
konur oft látnar sitja hjá á vinnustað,
þeim er ekki boðin staðan eða tæki-
færin af eins konar „tillitssemi" af
hálfu atvinnurekenda. Stundum er
þetta konunum sjálfum að kenna.
Þær treysta sér ekki til að taka á sig
ábyrgðina.“
REKUM FYRIRTÆKI, EKKI
HJÁLPARSTOFNUN
Bandarísk fyrirtæki hafa boðið
starfsfólki upp á ýmsa aðra kosti en
fullan vinnudag svo það geti varið
meiri tíma með börnum sínum og enn
fleiri fyrirtæki sjá starfsmönnum sín-
um fyrir barnagæslu. Framkvæmda-
stjóri eins fyrirtækisins sagði í samtali
við Fortune tímaritið: „Áður fyrr var
viðhorfið þannig að fólk átti að skilja
sín persónulegu vandamál eftir
heima. En við höfum ekki lengur efni
á að taka þann pól í hæðina. Andleg
velferð starfsfólks sem og bama þess
er mikilvægur þáttur í rekstrinum og
þau fyrirtæki, sem ekki rækja þann
þátt, hætta jafnt framtíð starfsmanna
sinna sem og sinni eigin.“
Þjónusta alla leið
TOLLVÖRU -
GEYMSLAN HF
Við önnumst flutninga
• SAFNSENDINCAR
• FLUTNINCSMIÐI.UN
Við sækjum vörur
• FRAKTFI.UG
•SKIPAAFCREIDSI.A
• PÓSTAFCREIDSI.A
Við sjáum um skýrslugerð
• TOI.LSKÝRSI.A
• ALMENN TOLLSKÝRSl.A
• TRANSIT
• ENDURSENDINGAR
• VERDBREYTINC.AR
• ÚTFLUTNINCUR
Við meðhöndlum vörur
• CÁMAI.OSUN
• VORUMERKINCAR
• VÖRUFLOKKUN
•POKKUN
30