Frjáls verslun - 01.07.1991, Page 45
SMAA LETRIÐ ER
SKEINUHÆTT!
Það hefur síður en svo verið
lognmolla á ferðamarkaðnum á
síðustu misserum. Minni ferða-
skrifstofurnar hafa verið að
bjóða upp á ýmsa ferðakosti og
flugfargjöld, sem margir hafa
tekið fegins hendi. En Flugleiðir
hf. hafa haft athugasemdir fram
að færa.
En það er ekki einungis barátta í
ferðaþjónustu og flugi hér innanlands
heldur herma fregnir utan úr hinum
stóra heimi að flugfélög eigi víðast
hvar í kröggum og eigi erfitt uppdrátt-
ar. í blaðaviðtali sagði Einar Sigurðs-
son, blaðafulltrúi Flugleiða, að Flug-
leiðir myndu lifa þessa kreppu af
vegna fyrirhyggju í flugvélakaupum
og hagræðingar.
„Gylliboð" ferðaskrifstofa hafa
verið mikið til umræðu og valdið tals-
verðum úlfaþyt. í flennistórum fyrir-
sögnum auglýsinga ferðaskrifstof-
anna má sjá alls kyns verðtilboð, sem
eru of góð til þess að hafna þeim. Eða
hvað? Auglýsingunum fylgir jafnan
stjarna og neðst á síðunni eru skilmál-
ar þess að fólk geti keypt flugfar á
auglýstu verði. T.d. er miðað við tvo
fullorðna og tvö börn á bilinu tveggja
til ellefu ára í bíl í svonefndum D-
flokki. Mönnum hefur orðið tíðrætt
um þessi „gylliboð“ og haft þau í
flymtingum og sagt sem svo að þau
væru hreint stórkostleg fyrir sex
manna fjölskyldu, böm á aldursskeið-
inu 0-10 ára, með bakpoka og á tjald-
stæði 1.-13. desember í Alaska! Hjá
einni af ferðaskrifstofunum var vinnu-
heiti þessara herferðar „sex í kústa-
skáp“ sem má þó engan veginn mis-
skilja!
MISVÍSANDIAUGLÝSINGAR
En hvað kosta svo þær ferðir í raun
sem standa til boða? í DV 8. júlí sl.
var t.a.m. auglýsing frá einni af ferða-
skrifstofunum, þar sem boðið var upp
á Lundúnaferðir á verðbilinu frá
14.700 til 18.800 kr. Þegar hringt var í
ferðaskrifstofuna og innt eftir því
hvað fengist fyrir 14.700 var sagt að
þær ferðir kostuðu nú kr. 22.431! í
þessari auglýsingu í júlímánuði var
nefnilega miðað við brottfarartíma á
tímabilinu 1.-8. maí, flugvallargjald og
forfallatrygging var ekki innifalið og
Á haustönn 1991 bjóðum við kennslu í fjölmörgum greinum. Tómstundanám - bóklegar,
verklegar greinar og prófanám - grunnskóli og framhaldsskóli.
Nánari upplýsingar og innritun í Miðbœjarskóla, Fríkirkjuvegi 1. Skrifstofan er opin daglega
frá kl. 13.00-19.00. Símar 12992 og 14106. Athugið að kennslugjaldi er í hófstillt, en greiðist
fyrir fyrstu kennslustund.
Við viljum vekja sérstaka áherslu á aukinni kennslu okkar í teikningu,
bœði modelteikningu og hlutateikningu.