Frjáls verslun - 01.07.1991, Blaðsíða 47
kvörtun Flugleiðamanna og sagði
Flugmálastjórn aldrei hafa verið sýnd
eins mikil vanvirða af flugrekstrarað-
ila á þeim átta árum sem hann hefði
verið við stjómvölinn.
Pétur J. Eiríksson var ekki sáttur
við svar Flugmálastjórnar og sagði að
Flugleiðir myndu leita réttar síns hjá
Samgönguráðuneytinu ef með þyrfti
og taldi hann ekki óeðlilegt að Flug-
eftirlitsnefnd yrði falið að fjalla um
málið.
Guðni Þórðarson hjá Flugferðum-
Sólarflugi sagði í blaðaviðtali að fyrir-
tækið væri ekki að brjóta neinar
reglugerðir. Flugið væri eins ódýrt
og raun bæri vitni sökum hagstæðra
samninga og góðrar nýtingar.
GRIPIÐ í TAUMANA
Einnig kvörtuðu Fiugleiðir yfir aug-
lýsingum í þeim dúr sem áður getur.
Niðurstaða þess varð sú að verðlags-
stjóri greip í taumana og samkomulag
varð um að ferðaskrifstofur miðuðu
verð á flugferðum í auglýsingum sín-
um við gildandi gengi þá stundina sem
auglýsingin birtist. Verðlagsráð, Fé-
lag ferðaskrifstofa og Neytenda-
samtökin munu síðan hafa samvinnu
um gerð reglna hvað þetta varðar
sem fara skal eftir í framtíðinni.
f viðtali við DV hafði Pétur J. Ei-
ríksson m.a. þetta að segja um aug-
lýsingar ferðaskrifstofanna: „Síðan
gerist það að þegar aðrar ferðaskrif-
stofur sjá að Flugferðir-Sólarflug
komast upp með að auglýsa berstríp-
uð fargjöld þá fara þær að gera það
sama. Fyrir tveim vikum auglýstu í
sama dagblaðinu þrjár ferðaskrifstof-
ur. Þá töldum við ástæðu til að hnippa
í flugmálastjóra og benda honum á að
þarna væri greinilega verið að gefa til
kynna með auglýsingu að verið væri
að brjóta reglugerð um leiguflug. Við
getum ekki sætt okkur við það að
þurfa að fylgja alls konar reglum með-
an aðrir sleppa við þær. Menn eiga að
vera jafnir fyrir lögunum."
En þessi mál virðast vera marg-
slungin og menn eru fráleitt á einu
máli um það hvort allir séu jafnir fyrir
lögunum - og einkum það hverjir séu
rétthærri en aðrir.
Um það heyrum við m.a. í viðtali
við Guðna Þórðarson hjá Flugferð-
um-Sólarflugi hér á eftir.
STÖRF ERLENDIS
Viltu breyta til?
Nú er fáanleg bók með ítarlegum upplýsingum um atvinnuleyfi,
launakjör, aðstöðu og húsnæðismál, vegabréfsáritun, ferðakostnað
o.fl. erlendis. I bókinni eru einnig nöfn og póstfang fyrirtækja í
Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada, Vestur-lndíum, Ástralíu og Aust-
uriöndum fjær, sem leita eftir evrópskum starfsmönnum, fyrirtæki
sem starfa á sviðum oliu- og málmvinnslu, skrúðgarðyrkju, hótel- og
veitingareksturs, skemmtiferða á sjó, ferðamála auk þjónustu (t.d.
einkabílstjórar, „au pair" o.fl.).
Hafir þú áhuga skaltu óska eftir ókeypis kynningarbæklingi okkar
um bókina. Sendu okkur umslag með þinni utanáskrift (með alþjóð-
legri greiðslu burðargjalds, en slík umslög fást hjá Póstinum) og við
munum senda þér þessar ókeypis upplýsingar um hæl.
Skrifið tii: LOUVI AB
Box 48
Skogástorget 2
S-142 01 Trángsund
Sverige
Ath. Við útvegum upplýsingar en stundum
ekki atvinnumiðlun.
Fastéigna- & rirmasalan§
Nýbýlavegi 20
éSé
Fyrirtækjaeigendur
takið eftir!
Fasteigna- og firmasalan hefur það á stefnu-
skrá slnni að láta hlutina ganga hratt fyrir sig
og vinna vel fyrir umbjóðendur sína.
Okkur þætti vænt um ef þú myndir hafa sam-
band við okkur ef þú hefur í hyggju að selja,
breyta eða stækka fyrirtæki þitt. Við munum
leggja okkur í líma að uppfylla þínar óskir.
Vinsamlega hafið samband.
Kristinn Kjartansson, Friðrik Gunnarsson,
Guðmundur Þórðarson.hdl.
47