Frjáls verslun - 01.08.1996, Síða 59
SEX MÁNAÐA MILLIUPPGJÖR ÞESSA ARS
agnaður 26 þekktra fyrirtækja
á hlutabréfamarkaði var um
3,1 milljarður króna fyrstu sex
mánuði þessa árs borið saman við um
1,9 milljarða á síðasta ári. Þetta er
baett afkoma upp á um 1,2 millj-
arða króna. Lítill munur var
hins vegar á afkomu þessara
fyrirtækja í sex mánaða milli-
uppgjörum árin 1994 og 1995.
Hagur flestra fyrirtækja hefur
því vænkast á þessu ári og
kemur það glöggt fram í verði
hlutabréfa sem hefur rokið upp
í flestum fyrirtækjum.
Flugleiðir eru ekki á meðal
þessara fyrirtækja þar sem sex
mánaða uppgjör þeirra er vill-
andi fyrir árið í heild. Afkoma
félagsins var þó mun verri
fyrstu sex mánuði þessa árs en
eftir sama tímabil í fyrra. Tap fyrstu
sex mánuðina í ár var um 844 milljónir
en 642 milljónir í fyrra. Þetta er yfir
200 milljónum króna verri afkoma.
Sfldarvinnslan í Neskaupstað hagn-
aðist mest allra fyrirtækja á hluta-
bréfamarkaði fyrstu sex mánuði árs-
ins, eðaum375millj-
ónir króna eftir
skatta. Það er fimm-
falt meiri hagnaður
en var hjá félaginu á
sama tíma í fyrra
þegar það hagnaðist
um 76 milljónir.
Forstjóri Síldar-
vinnslunnar er Finn-
bogi Jónsson. Hann
hefur stýrt fyrirtæk-
inu í um tíu ár og
gengið afskaplega
vel með það. Verð
hlutabréfa í Sfldar-
vinnslunni nærri
þrefaldaðist fyrstu
m'u mánuðina -
hækkaði um 187%.
Hraðfrystihús
Eskiþarðar, sem Að-
alsteinn Jónsson,
Allir ríki, stjómar,
hagnaðist um 315
milljónir fyrstu sex mánuðina og var
það annar mesti hagnaður félags á
hlutabréfamarkaðnum. Verð hluta-
bréfa í fyrirtækinu nærri fjórfaldaðist
fyrstu níu mánuðina, hækkunin nam
Hraðfrystihús Eskifjarðar
Þróun á gengi hlutabréfa frá jan.1996 til okt.1996
Jan. Feb. Mar. Apr. Maí Jún. Júl. Sep. Okt.
Svona hefur gengi hlutabréfa í Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar hækkað á árinu. Hreint lygileg
hækkun.
284%. Það er langmesta hækkun á
verði hlutabréfa í einu fyrirtæki á
markaðnum. í raun er þetta lygileg
hækkun. Segja má að Alli, sem á um
27% í fyrirtækinu, beri viðurnefni sitt
með rentu þessa dagana. Þess skal
getið að hlutur fjölskyldu Alla í fyrir-
Hlutabréfavísitalan 1996
Mánaðarlegt gildi 31. des 1992 = 1000
1300
1200
Feb. Mars Apr.
Mai
Júni Júlí Ágúst Sept
Hlutabréfavísitalan hefur hækkað hressilega á árinu. Sala á hluta-
bréfum á Verðbréfaþinginu nam yfir 4,1 milljarði fyrstu níu mánuðina
miðað við um 1,6 milljarða sölu í fyrra. Mest viðskipti hafa verið með
hlutabréf í Islandsbanka og Flugleiðum, rétt um hálfur milljarður í
hvoru félagi.
tækinu er meiri, eða um helmingur.
Eimskip var með þriðja mesta
hagnaðinn fyrstu sex mánuðina, eða
um 291 milljón króna. Það er um 46
milljónum króna meiri hagnaður en
eftir sama tímabil í fyrra. Hluta-
bréf í Eimskip hækkuðu um
48% fyrstu níu mánuði þessa
árs. Hörður Sigurgestsson,
forstjóri Eimskips, getur vel
við unað. Félagið hefur hagnast
stórlega undir stjóm hans í á
annan áratug og hefur hann
gert félagið að stórveldi.
Eðlilega kemur batnandi af-
koma fyrirtækjanna fram í
hærra hlutabréfaverði. En fyrr
má nú fyrr vera. Sú spurning
hlýtur að vakna hvort svo mikl-
ar hækkanir á verði hlutabréfa
fái staðist til lengdar, hvort
raunveruleg „innistæða“ sé fyrir
þeim í fyrirtækjunum, hvort svo gíf-
urlegur hagnaður sé í pípunum á
næstu árum, eins og verð bréfanna
gefur vísbendingu um. Draga verður
það í efa.
Kaup á hlutabréfum er langtíma-
fjárfesting. Að kaúpa
hlutabréf á háu verði
krefst mikils hagnað-
ar viðkomandi fyrir-
tækis í framtíðinni,
annars skila kaupin
sér ekki í nægilegri
arðsemi hluthafans.
Þess vegna verður
að ætla að miklar
verðhækkanir á
hlutabréfamarkað-
num megi meðal
annars rekja til þess
að eftirspurn eftir
hlutabréfum sé meiri
en framboð.
Margt bendir því
til þess að nú sé lag
að opna lokuð einka-
fyrirtæki og gera þau
að almenningshluta-
félögum - og enn-
fremur að einka-
væða ríkisfyrirtæki.
59