Frjáls verslun - 01.11.1996, Blaðsíða 5
'0'
,55
Igl
il
MAÐUR
ÁRSINS
Ég er
3 ekki
r
‘ ríkur
Fi-jáls verslun hefur valið Aðalstein Jónsson, hinn 74 ára heiðurs-
borgara á Eskifirði og forstjóra Hraðfrystihúss Eskiíjarðar, sem
mann ársins 1996 í viðskiptalífinu. Undir stjórn Aðalsteins hefur
rekstur fyrirtækisins gengið framúrskarandi vel á árinu og verð
hlutabréfa í jní hefur nær fjórfaldast. Það er methækkun á
hlutabréfamarkaðnum. Hugur fjárfesta er því skýr, jieir vilja að
hinn 74 ára heiðursborgari ávaxti fé þeirra. Og fá færri en vilja. Er
til betri vitnisburður?! „Eg er ekki ríkur. Maður, sem er að verða
75 ára, er ekki lengur ríkur. Ungt fólk, sem á lífið fram undan í
þessu vndislega fagra landi, það er stórríkt,” segir Alli í einstöku
viðtali við Frjálsa verslun.
Sjá bls. 18 til 28.
Arið 1996
Uað verður árið sem þjóðin minnist með
hlýhug. Arið, sein nú fer í hönd, verður
ekki eins gott, efnahagslega. En það
verður allt í lagi.
Arið 1996 var einnig sögulegt í 57 ára
sögu Frjálsrar verslunar. Fyrir nákvæm-
lega ári tók fyrirtækið Talnakönnun hf.
við útgáfu Frjálsrar verslunar af Fróða.
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á
blaðinu, bæði útlitslegar- og efnislegar.
Sjá bls. 12, 30
og annál á bls. 34. {
«*%■ f *
GOTT AR KVEÐUR
EFNISYFIRLIT
1 Leiðari
8 Fréttir: Einar J. Skúlason fær eftir-
sótta gæðavottun, fyrst íslenskra
fyrirtækja.
10 Frétlir: Nýtt Alþingismannatal er
komið út. Það er hið fjórða í röð-
inni.
12 Gott ár kveður: Hagvöxtur á árinu
1996 var um 5,5%. Það er einhver
mesti hagvöxtur hérlendis til
margra ára. Spáð er nokkru minni
hagvexti á árinu 1997.
18 Forsíðuefhi: Utnefning Frjálsrar
verslunar á manni ársins í íslensku
viðskiptalífi 1996. Aðalsteinn Jóns-
son, forstjóri og aðaleigandi Hrað-
frystihúss Eskifjarðar, er sérlega
vel að þessum heiðri kominn. Þetta
hefur verið hans ár. Hann hefur
verið nokkuð í sviðsljósinu vegna
góðs gengis fyrirtækisins.
20 Einstakt viðtal: Einstakt viðtal er
við Aðalstein Jónsson, mann ársins.
Alli er mikill sagnakarl og fer bók-
staflega á kostum í þessu viðtali.
Mörg ágæt viðtöl hafa verið tekin
við hann í gegnum tíðina. En í þetta
skiptíð hættír enginn lestrinum fyrr
en að viðtalinu loknu.
30 Markaðsmál: Frjáls verslun velur
fyndnustu auglýsingar ársins. Þær
komu fram á lokasprettí ársins. Það
eru tímælalaust auglýsingarnar um
Leitz bindin. Þessi bindi hafa að
sjálfsögðu „vængi”.
34 Bækur: Valin er viðskiptabók árs-
ins.
36 Friðrik og Finnur: Fjármálaráð-
herra og viðskiptaráðherra gera
upp árið 1996 og líta tíl ársins 1997.
38 Veitingahús: Sigmar B. metur
stöðuna hjá íslensku veitinga-
húsunum nú um áramótín.
39 Veröldin og við: Sigmar B. skoðar
helstu tískustraumana sem menn
telja að verði á árinu 1997.
40 Annáll: Stíklað á stóru úr Frjálsri
verslun á árinu 1996, fyrsta árinu
sem Talnakönnun gefur blaðið út
48 Aramótin: Hvað segja þau um ára-
mótín?
52 Markaðsmál: Kærustu verkefni
fimm þekktra auglýsingamanna.
57 Stjórnun: Frábært viðtal við Eyjólf
Hauksson, aðstoðarforstjóra og
yfirflugstjóra hjá Cargolux í Lúx-
emborg. Eyjólfúr rekur velgengni
félagsins og útskýrir hvers vegna
félagið var valið það besta á sínu
sviði á árinu 1996.
62 Fólk.
5