Frjáls verslun - 01.11.1996, Blaðsíða 61
Þess má geta að börn Eyjólfs og
Elsu Walderhaug eru: Ragnhildur,
starfsmaður ESB (Evrópusambands-
ins), Hrafnhildur, starfsmaður Efta,
Haukur, flug- og háskólanemi og El-
ísabet og Alexander sem eru í bama-
skóla. Bróðir Eyjólfs er Guðmundur
Hauksson, sparisjóðsstjóri Spari-
sjóðs Reykjavíkur og nágrennis. Hálf-
bróðir er Atli Hauksson endurskoð-
andi.
AÐSTOÐARFORSTJÓRI
1995 var Eyjólfur gerður að að-
stoðarforstjóra Cargolux en forstjóri
félagsins hefur fjóra aðstoðarfor-
stjóra sér við hlið og er hver þeirra
yfirmaður ákveðins sviðs. Eyjólfur
Hauksson er yfir flugrekstrarsviði.
En hann er einnig yfirflugstjóri félags-
ins. Vinnudagur Eyjólfs er langur og
verður hann iðulega að bregða sér í
styttri og lengri ferðalög. Þrátt fyrir
það er hann enn að fljúga annað slag-
ið.
En hverju þakkar Eyjólfur vel-
gengni Cargolux ? „Mér dettur fyrst í
hug starf frumherjanna. Þeir ruddu
brautina, eins og ég hef komið inn á
hér áður. Hjá félaginu starfa nú um
900 manns þar af 90 íslendingar. Við
emm með mjög dugmikið og hæft
starfsfólk, það skiptir nú ekki svo litlu
máli. Við erum stöðugt að byggja upp
og þróa nýja markaði. Að undanförnu
höfum við lagt áherslu á Norður- og
Suður-Ameríku, með góðum árangri,
held ég að hægt sé að segja. Við þurf-
um að stækka en það byggist fyrst og
Eins og gefur að skilja hefur Eyjólfur
víða komið. Þessa mynd tók hann í
Hanoi í lok Víetnamstríðsins af þeim
Sigþóri Óskarssyni og Maurice
Reisch.
Slakað á úti á sjó - og aldan stíginn.
fremst á að nýta tæknina. Hafa ávallt
yfir að ráða heppilegustu flugvélateg-
undunum. Við eigum nú 6 vélar og
starfrækjum þá sjöundu. Árið 1995
fluttum við um það bil 248.000 tonn af
vöru og veltan var um 400.000 miljón
dollarar, sem var viðunandi.
Það em öflugir aðilar sem standa
að félaginu. Helstu eigendur eru Luft-
hansa, LuxAir og fjárfestar í Lúxem-
borg. Það má segja að það sé erfitt að
benda sérstaklega á eitthvað eitt atr-
iði sem meginþátt í velgengni okkar.
Við höfum sérhæft okkur í vömflutn-
ingum í lofti, engu öðru. Mörg flugfé-
lög, sem stundavöruflutninga, emoft
á tíðum einnig, og þá aðallega, í far-
þegaflugi. Sum þessara félaga, og
þeim fjölgar stöðugt, em einnig með
þjónustu á jörðu niðri, ef svo má
segja, flytja vöruna „door to door“
eins og það heitir.
Mörg flutningafyrirtæki, sem sér-
hæfa sig í landflutningum, kjósa því að
skipta við okkur af skiljanlegum
ástæðum.
Að lokum er Eyjólfur Hauksson,
aðstoðarforstjóri Cargolux og yfir-
flugmaður, spurður að því hvemig
það leggist í hann að vera meira og
minna úr flugstjórasætinu í stól
stjómandans á skrifstofunni? „Flugið
á alltaf jafn mikil ítök í mér. Ég er alltaf
með sömu flugdelluna. Ég var svo
heppinn að geta starfað við það, sem
mig langaði mest til, og það var að
fljúga. Það hefur svo verið stórkost-
legt ævintýri að taka þátt í uppbygg-
ingu Cargolux. Okkur hefur liðið vel
hér í Lúxemborg, hér er mjög gott að
vera. Þau verkefni, sem ég er nú að
fást við, eru feikiskemmtileg og
spennandi, ekki síður en flugið, þótt
þau séu annars eðlis. Mikilvægast er
að hafa áhuga og ánægju af því, sem
maður er að fást við og leysa þau
verkefni, sem manni em falin, eins
vel og unnt er.“
MEGALUX
Lagermal eru okkar sergrein
Bjóðum allskonar lager- og hiliukerfi
fyrir vélvædd vörugeymsluhús
sem minni lagera.
Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar.
Aðeins vönduð vara
úr sænsku gæðastáli.
Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
Þjonusta - þekking - ráðgjöt. Áratuga reynsla.
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SÍMI564 4711 • FAX 564 4725
61