Frjáls verslun - 01.11.1996, Blaðsíða 19
kúnstin sé að kunna að stíga ölduna í
rekstrinum. í rekstri er sjaldan logn -
rétt eins og á sjónum.
Árið í ár er hans. Alli ríki er á toppi
öldunnar á hlutabréfmarkaðnum.
Verð á hlutabréfum í Hraðfrystihúsi
Eskiíjarðar hefur hátt í fjórfaldast á
árinu. Það er met á markaðnum. í
fyrra var Alli einnig methafi. Þá nærri
þrefaldaðist gengi hlutabréfanna í
fyrirtækinu. Þetta segir allt sem
segja þarf. Hugur ijárfesta er skýr -
þeir vilja að hinn 74 ára heiðursborg-
ari á Eskifirði ávaxti fé þeirra. Og fá
færri en vilja. Er til betri vitnisburð-
ur?!
Ævintýri Alla ríka hófst árið 1945.
Þá hafði hann sem fátækur verka-
maður safnað 10 þúsund krónum á
fimm vertíðum. Hann tók skref. Við
Kristmann bróður sinn og tvo aðra
keyptu þeir 50 tonna bát, Björgu.
Blaðra, sögðu menn um hana vegna
þess hve smá hún var. En hún var
kná. Næstu níu árin færði hún björg í
bú. Þá var komið að krossgötum hjá
Alla. Leiðir þeirra fjórmenninga
skildu. Alli fékk hlut sinn greiddan út,
heilar 30 þúsund krónur. „Það var allt
of lítið,“ segir Alli sjálfur. „Ég hafði
ekkert vit á þessu í þá daga.“
Engu að síður. Athafiiahjólin höfðu
snúist í níu ár. Hann hafði fundið lykt-
ina. Við bróður sinn, Kristin, braust
hann í gegnum það að kaupa rúmlega
60 tonna bát. Hann skírði hann í höf-
uðið á föður þeirra, Jóni Kjartanssyni.
Allt gekk í haginn. Árið 1960 var
frystihúsið á staðnum til sölu. Alli
önglaði saman hálfri milljón og keypti.
Framhaldið þekkja allir.
llinu 7 1 ;ira heiðursborgmi ;i Kski-
tirði. AðalsU'inn .hinson, jal'nan
iH'lndur \11 i ríki, or maúur ;irsins
1990 í islonsku \ iúskiptaliii. sam-
k\;i'inl utiu'iningu Frjitlsrar vorsl-
nnar. Fyrirlu'kið lu'fur skilað goð-
um hagnaði ;i arinu og mikil oitir-
spurn i'i' i'itir hlutalé i ])\ i.
ÁRSINS
Hraðfrystihúss Eskifjarðar, er maður ársins 1996 í íslensku viðskiptalífi
19