Frjáls verslun - 01.11.1996, Blaðsíða 25
FORSÍÐUGREIN
VERÐUR FUÓTUR AÐ FARA ÞEGAR ÞÚ KEMUR
Alli spurdi hvort einhver væri inni hjá bankastjóranum. „Nei, það er enginn inni
hjá honum,“ svaraði gjaldkerinn. „Nú, Guð hlýtur þó alltafað vera hjá honum,“
sagði Alli og glotti. „Hann verður fljótur að fara þegar þú kemur, “ svaraði
gjaldkerinn um hæl.
„Þetta eru toppmenn allt saman.
Mínir menn.“
SÁÁÞEIMGAMLA
HVERNIG STAÐAN VAR
Þegar Alli er þýfgaður nánar um
stjórnunaraðferðir og leiðir til að reka
fyrirtæki er hann stuttorður.
„Ég hef aldrei skipt mér af peninga-
málum. Aldrei haft lykil að peninga-
kassanum og sjaldnast haft lykil að
skrifstofunni. Ég var að vasast í öðru,
að vinna og stjóma fólki.
Þetta hefst ekki nema maður vinni
eins og þræll.“
Alli fullyrðir að hann hafi oft ekkert
vitað hvernig staðan var á fyrirtæk-
inu.
„Ég vissi oft ekkert hvort ég átti
eitthvað inni á reikningnum eða ekki.
Það var gamall maður sem vann sem
bókari héma í bankanum. Ef hann
heilsaði mér glaðlega þá var allt í lagi.
En stundum þegar ég hitti hann þá tók
hann varla undir kveðju, rétt mump-
aði í honum. Þá vissi ég að reikningur-
inn var í mínus.“
SAMSTARFIÐ VIÐ NORÐFIRÐINGA
Frá því að Hraðfrystihús Eskifjarð-
ar var sett á Opna tilboðsmarkaðinn
hefur gengi hlutabréfa í fyrirtækinu
farið stighækkandi.
„Fyrirtækið var vanmetið af
bankakerfinu og þegar hið rétta var
komið í ljós hefur það mesta arðsemi
eigin fjár af öllum fyrirtækjum í sjáv-
arútvegi. Þetta styrkir auðvitað
stöðu fyrirtækisins en fyrirtækið er
ekki til sölu og það er ekki skráð á
neinum verðbréfamarkaði og verður
ekki.“
Eins og sakir standa á fjölskylda
AUa og hann sjálfur samtals 51%
hlutafjár en aðrir eiga 49%. Eskifjarð-
arbær ætlar að losa um 40% af 6.8%
hlut sínum í fyrirtækinu og fá fyrir það
um 80 milljónir. Bæjarbúar fá for-
kaupsrétt á genginu 8.35 en mark-
aðsgengi er 8.70. Það þótti frétt-
næmt þegar Sfldarvinnslan á Nes-
kaupstað keypti töluvert af
hlutabréfum í Hraðfrystihúsi Eskilja-
rðar og hagnaðist vemlega á því að
selja þau aftur. Alli er ekki par hrifinn
af þessum tilfæringum.
„Ég vil bara að það sé alveg á
hreinu að Norðfirðingamir keyptu
þessi bréf ekki af okkur. Þeir keyptu
þau af Lífeyrissjóðnum á Norðfirði og
Olís. Við seldum sjóðnum bréfin á sín-
um tíma af því bankinn vildi það endi-
lega. Sá, sem stýrir lífeyrissjóðnum,
neitaði að láta okkur hafa forkaups-
rétt á bréfunum. Annars hefðu þau
aldrei farið neitt annað en hingað aft-
ur.
Sfldarvinnslan græddi ekkert á
okkur með þessu braski. Þeir, sem
töpuðu, voru Lífeyrissjóðurinn á
Norðfirði og Olís sem seldu bréfin,“
oryggi
Öryggisskápamir frá Rosengrens
em traust geymsla fyrir peninga,
skjöl, tölvugögn og önnur verð-
mæti. Skáparnir sem em í hæsta
gæðaflokki fást í ýmsum stærðum
og gerðum. Kynnið ykkur úrvalið.
Bedco & Mathiesen
Bæjarhrauni 10
Hafnarfirði
Sími 565 1000
25