Frjáls verslun - 01.11.1996, Blaðsíða 56
Eyjólfur Hauksson. Hann verður fimmt- Cargolux er eingöngu í vöruflutningum í lofti og engu öðru. Um 90 íslending-
ugur í febrúar en byrjaði 24 ára hjá félag- ar, af um 900 manna starfsliði, vinna hjá félaginu. Loftleiðir voru eitt þeirra
inu. Eyjólfur er bróðir Guðmundar félaga sem stofnuðu Cargolux.
Haukssonar, sparisjóðsstjóra SPRON.
VELGENGNIN BYGGIST
Eyjólfur Hauksson ereinn fjögurra aðstoðarforstjóra Cargolux, sem nýlega var
þótt hann sé ekki orðinn fimmtugur - enþað verður hann ífehrúar. Eyjólfur
0rið 1996 var flugfélagið Cargo-
lux í Lúxemborg kjörið besta
vöruflutningaflugfélag heims-
ins. íslendingar voru á meðal stofn-
enda Cargolux flugfélagsins, og í dag
starfa þar um 90 íslendingar, flestir
þeirra flugmenn og flugstjórar. Fyrsti
forstjóri félagsins var Einar Ólafsson.
Jóhannes Einarsson var í mörg ár að-
stoðarforstjóri. Af öðrum yfirmönn-
um mætti nefna yfirflugvirkjana
Gunnar Björgvinsson og Birki Bald-
vinsson. Einnþeirramanna, semekki
áttu svo lítinn þátt í sigurgöngu
Cargolux, er Eyjólfur Hauksson yfir-
flugstjóri og aðstoðarforstjóri. Það
verður að teljast mjög óvenjulegt að
einn maður gegni tveimur svo mikil-
vægum störfum en Eyjólfur er yfir-
maður flugrekstrarsviðs félagsins.
ÁKVAÐ 8 ÁRA AÐ VERÐA FLUGMAÐUR
Eyjólfur Örn Hauksson er fæddur í
Reykjavík 6. febrúar 1947. Foreldrar
hans eru Haukur Eyjólfsson, en hann
starfaði hjá Reykjavíkurborg, lengi
hjá Hitaveitu Reykjavíkur. Haukur
lést 1963. Móðir Eyjólfs er Ragnhild-
ur Guðmundsdóttir skrifstofumaður.
„Ég er fæddur í Vesturbænum en ólst
upp í Miðtúni 58. Þar eyddi ég mínum
æskuárum," segir Eyjólfur og bætir
við: „Ég átti frábæra æsku í einu orði
sagt. Ég gekk í Laugamesskólann og
fór síðan í Verslunarskólann, áður en
VIÐTAL:
SIGMAR B. HAUKSSON
MYNDIR: ÝMSIR
ég fór í flugið. Ég fékk snemma
ólæknandi flugdellu. Nágrannar mínir
voru á þessum tíma meðal annarra
Helgi H. Jónsson fréttamaður, Þórar-
inn Sveinsson læknir og Runólfur Sig-
urðsson flugvélstjóri. Hjá þessum
strákum sá ég flugmódel og þá kvikn-
aði áhuginn sem eiginlega hefur verið
brennandi síðan. Ég var líklegast ekki
nema 8 ára þegar ég var staðráðinn í
því að gerast flugmaður. Runólfur dró
mig svo með sér í svifflugið þegar ég
var 14 ára og úr því varð ekki aftur
snúið. Ég átti margar ánægjustundir í
sviffluginu og fékk í því ómetanlega
þjálfun og reynslu. Um tíma var ég í
stjóm Svifflugfélags íslands, meðal
annars með þeim sómamönnum Ás-
bimi heitnum Magnússyni, Leifi
Magnússyni framkvæmdastjóra hjá
56