Frjáls verslun - 01.11.1996, Blaðsíða 64
FÓLK
rið 1995 var ár mik-
illa breytinga hjá
Opnum kerfum.
Fyrirtækið tvöfaldaðist að
stærð á skömmum tíma og
starfsmönnum fjölgaði um
nærri helming. Á árinu 1996
munum við ná tæpum millj-
arði í heildarveltu fyrirtæk-
isins. í vor var gerð könnun
íþjónustudeild fyrirtækisins
og í framhaldi af henni var
allt fyrirtækið tekið í gegn.
Könnunin kom reyndar
mjög vel út því 80% að-
spurðra gáfu okkur hæstu
einkunn fyrir þjónustuna.
En það má alltaf gera betur,
— segir Hildur Ýr Amar-
dóttir, þjónustufulltrúi hjá
Opnum kerfum.
Hildur er 24 ára gömul,
borin og bamfædd í Kópa-
vogi. Hún útskrifaðist af
ferðamálabraut Mennta-
skólans í Kópavogi árið 1992
og hélt þá til Bandaríkjanna
en hún hafði hlotið styrk til
náms þar. Hún lauk BA
gráðu í ferðamálastjórnun
frá Johnson and Wales Uni-
versity á Rhode Island, kom
síðan heim til íslands og hóf
störf hjá Opnum kerfum í
ársbyrjun 1995.
MIKLAR BREYTINGAR
Fyrirtækið Opin kerfi var
upphaflega stofnað sem úti-
bú frá Hewlett Packard í
Danmörku. Árið 1991 var
Hildur Ýr Arnardóttir, 24 ára þjónustufulltrúi hjá Opn-
um kerfum. Hún er borin og barnfædd í Kópavogi. Hún er
með framhaldsnám frá Bandaríkjunum.
FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
menn tóku þátt í og gátu lagt
sitt til málanna. Þetta gæða-
átak mun halda áfram að ein-
hverju leyti í breyttu formi.
Starf Hildar felst m.a. í
því að sjá um almenn sam-
skipti við viðskiptavini,
skráningu og umsjón með
námskeiðum og þjónustu-
samningum, markaðs- og
sölumál. ráðgjöf og sölu
rekstrarvara og forðastýr-
ingu . Einnig hefur hún mikil
samskipti við Hewlett Pack-
ard í Danmörku. „Þetta er
mjög fjölbreytt starf og mik-
ið um að vera vegna þess
hve mikill hraði er í fyrir-
tækinu. Það er í rauninni
ótrúlega margt sem dettur
inn á mitt borð,“ segir hún.
VERÐANDIDANSKENNARI
Hildur Ýr hefur notað frí-
tíma sinn undanfarið til að
ljúka danskennaranámi frá
Dansskóla Sigurðar Hákon-
arsonar. Hún hefur dansað
frá fimm ára aldri, er nýhætt
að keppa sjálf og ætlar að
snúa sér að kennslu í stað-
inn. Hún segir þetta góða
tilbreytingu frá kyrrsetunni
dagsdaglega. Útivera og
ferðalög eru ofalega á blaði
hjá Hildi á sumrin. Hún ferð-
ast aðallega innanlands og
Laugarvatn hefur verið í
sérstöku uppáhaldi hjá
henni. Veiði er nýjasta
áhugamálið og hún fékk
maríulaxinn í sumar í Elliða-
HILDUR ÝR, OPNUM KERFUM
því breytt í íslenskt hlutafé-
lag þar sem Hewlett Pack-
ard var hluthafi en á miðju
ári 1995 var hlutur þeirra
keyptur upp og nafni fyrir-
tækisins breytt í Opin kerfi.
Fyrirtækið skiptist í fjórar
deildir, þjónustudeild, sölu-
TEXTI: BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR
64
deild, fjármáladeild og heild-
sölu. Hjá fyrirtækinu starfa
nú u.þ.b. 27 starfsmenn.
Þeim hefur fjölgað mjög
hratt því þegar Hildur hóf
störf voru þeir aðeins 14.
Miklar breytingar hafa fylgt
þessari hröðu stækkun, m.a
þurfti að tvöfalda húsnæði
fyrirtækisins til að fullnægja
þörfum þess. Hildur segir
að þar sem vaxtarverkir
geti oft fylgt svona stækk-
unum hafi verið ákveðið að
fara af stað með gæðaátak
innanhúss sem allir starfs-
ánum. Það var rúmlega 5
punda fískur sem hún veiddi
á flugu. Að sögn Hildar
smakkaðist hann með ein-
dæmum vel. Hildur er í
sambúð með Emi Arnar-
syni, starfsmanni hjá Skelj-
ungi hf.