Frjáls verslun - 01.05.1998, Síða 8
Þór Jes Þórisson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Landssímans.
FV-myndir: Geir Ólafsson.
Þjónusta Símans
í stöðugum vexti
tarfsemi Landssímans og þjónusta fer sívaxandi. GSM þjónustan eykst
og notendum bjóðast lægri gjöld að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Sólarhringsneyðarþjónusta er nú fyrir hendi og sérstök upplýsinga-
þjónusta veitir almenningi hvers kyns upplýsingar alla daga vikunnar. Komið
hefur verið á fót fyrirtækjaþjónustu og vefsíðu Símans og loks sinnir rannsókn-
ardeild umfangsmiklum rannsóknarverkefnum, bæði innlendum og í tengslum
við erlenda aðila.
Fyrirtækjaþjónusta er ný deild innan
Landssímans. Hlutverk hennar er að eiga
samskipti við fyrirtæki sem þurfa sér-
hæfða þjónustu. Deildin annast sölu á
leigulínum, gagnaflutningsþjónustu og
margvíslegri þjónustu. Sérstakir þjón-
ustustjórar verða tengiliðir við stærri fyr-
irtæki, sem geta leitað beint til þeirra.
Þjónustustjórarnir annast tilboðsgerð og
leiðbeina fyrirtækjum sem leita lausna í
síma- og gagnaflutningsmálum. Fyrir-
tækjaþjónustan mun á næstu misserum
kynna starfsemi sína meðal stærri fyrir-
tækja á Reykjavíkursvæðinu. Fyrirtækja-
þjónustan gefur út „Fyrirtækjafréttir Sím-
ans" þar sem komið er á framfæri upplýs-
ingum um þjónustu og nýjungar eru
kynntar.
GSM þjónustan nær nú til um 90%
þjóðarinnar, til allra þéttbýlissvæða með
a.m.k. 500 íbúa, og helstu sumarbústaða-
svæða. Árlega eru settir upp nýir sendar,
vél- og hugbúnaður endurbættur og upp-
færður og þjónustuframboðið aukið. Dæmi
um það eru númerabirting og númera-
leynd, SMS, fax- og gagnasendingar.
Stórnotendur GSM síma geta valið um
að greiða lægra mínútugjald og hærra af-
notagjald í samræmi við nýtt tilboð. Mán-
aðargjald verður 1560 kr. í stað 633 kr. en
mínútuverð fer úr kr. 17,50 í 15,90 á daginn
og úr kr. 11,70 í 10,60 á kvöldin. Þessi kost-
ur hentar þeim vel, sem hringja mikið úr
GSM símanum og er gjarnan miðað við að
minnsta kosti fimm klukkustunda notkun á
mánuði á dagtaxta.
GSM par er nýr áskriftarflokkur GSM
kerfisins sérstaklega ætlaður hjónum, pör-
um, vinnufélögum og öðrum tvíeykjum
sem þurfa að vera í stöðugu sambandi.
Annar aðilinn fær helmingsafslátt stofn-
gjalds og mánaðargjalds GSM kortsins og
8
AUGLYSINGAKYNNING