Frjáls verslun - 01.05.1998, Qupperneq 30
FRETTASKYRING
keppnisaðferðum þeim sem Lands-
síminn hefur beitt og taldi að aðskiln-
aður þjónustu og samkeppnissviðs
hefði algerlega mistekist þar á bæ.
Hann benti á að
Landssíminn hefði
lækkað stofngjald
GSM þjónustu um
50% daginn sem Tal
sótti um GSM leyfi á
Islandi og Landssím-
inn hefði lækkað
verðskrá sína um
12% 1. mars, tveimur
mánuðum áður en
Tal kom inn á mark-
aðinn.
Þegar þetta er
skrifað er enn ekki
hægt að fá upplýs-
ingar um símanúm-
er hjáTali í þjónustu-
símanum 118 sem flestir landsmenn
eru vanir að nota. Það er vegna þess
að ekki hafa tekist samningar um verð
fyrir skráninguna og auk þess telur
Arnþór vafasamt að slík miðlæg þjón-
usta sé í umsjá keppinautar sem hafi
þá yfirburði á markaðnum sem Lands-
síminn hefur. Hann telur eðlilegt að
óháður aðili annist slíka þjónustu. í
glænýrri símaskrá er aðeins skráð
símanúmer Tals en engra viðskipta-
vina þess enda var lokað fyrir skrán-
ingu áður en fyrirtækið tók til starfa. í
öðrum löndum hefur þetta verið leyst
með því fela óháðum aðila útgáfu
símaskrár, einstök fyrirtæki hafa gefið
út sínar eigin skrár og í dag er hægt
að fá upplýsingar um símanúmer Tals
í þjónustusíma fyrirtækisins.
Þór Jes Þórisson,
framkvæmdastjóri mark-
aðs- og sölusviðs Lands-
símans, sagði að lækkun
á GSM gjaldskránni hefði
að meginhluta verið
vegna hagræðingar sem
orsakaðist af mun meiri
flölgun farsímanotenda
en gert hafði verið ráð fyr-
ir. Að hluta til hefði Land-
ssíminn verið að laga sig
að væntanlegri sam-
keppni. Hann taldi að
símaskrárþjónustu Lands-
símans væri fullkomlega
treystandi og aðeins tíma-
spursmál hvenær síma-
númer Tals yrðu tekin þar inn.
„Hvað varðar verðið á þjónustunni
þá teljum við að um þessar mundir sé
markaðurinn í jafnvægi og fögnum
þeirri samkeppni sem komin er á. Hitt
er annað mál að við teljum að enn sé
svigrúm til verðlækkunar þótt hún sé
ekki í augsýn í augnablikinu.“
í skýrslu um farsímanotkun á
Norðurlöndum, sem blaðið hefur und-
ir höndum, er talið að sá hluti markað-
arins sem enn hefur ekki fengið far-
síma hugsi meira um verðlagið en
þeir sem þegar hafa nýtt sér þjónust-
una.
ER ÓDÝRTAÐTALA?
Eitt af því sem haldið hefúr verið
fram er að ekki sé svigrúm til mikilla
lækkana á símakostnaði á íslandi
vegna þess að hann sé með því lægsta
sem þekkist í heiminum. Könnun frá
OECD, sem Landssíminn leggur
fram, styður þessa staðhæfmgu. í
þeirri könnun er miðað við verð án
vsk.og kaupmáttur í hverju landi
reiknaður inn í. Lauslegur saman-
burður við gjaldskrá farsímafyrir-
tækja á Norðurlöndum leiðir ekki í
ljós greinilegan mun á mánaðargjaldi
eða verði fyrir mínútu á dagtaxta.
Símakostnaður hefur lækkað um 20%
á Islandi síðustu 10 ár miðað við vísi-
tölu neysluverðs.
Samkvæmt nýrri skýrslu um sam-
keppnishæfni Islands samanborið við
önnur Evrópuríki má sjá að síma-
kostnaður á íslandi er ekkert sérstak-
Þjónustugjöld á árí
í krónum Tal LSÍ
Talhólf 0 2.119
Textaskilaboð 0 1.880
Símtalslæsing 500 760
Númerabirting 0 760
Númeraleynd 500 760
Leyninúmer 500 760
Sundurl. reikn. 2.400 2.398
VERÐIÐ LÆKKAR HRATT í JACKSONVILLE
í Jacksonville hefur gjald fyrir hverja mínútu lækkaö um 46% á tiltölulega skömmum
tíma. Ný fyrirtæki á markaðnum hafa lækkaö verðið meira en reiknað var með en hafa
fyrir vikið náð miklum viðskiptum frá þeim sem fyrir voru.
oftið
komd
þú átt oröiö
Yidu viö f glæsilegri GSM verslun TALs við Síðumúla 28, þjónustusími 570 6060, eða hjá umboðsaöilum TALs. www.tal.is
30