Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1998, Page 41

Frjáls verslun - 01.05.1998, Page 41
VIÐTALIÐ var það svo að hvar sem maður fór sem ís- lendingur datt engum annað í hug en ull, síld eða fiskur en ekkert af þessu var á boðstólum inn á markað í Sovétrikjunum á þeim tíma. Maður þekkir mann og þetta rekur sig. Við hófum útflutning á fiski til Rússlands og stunduðum þau viðskipti fram í september á síðasta ári. Við fluttum töluvert út af síld, saltsíld og öðrum fiski sem við keyptum af íslenskum framleið- endum.” Jón Helgi segir fiskviðskiptin hafa verið umtalsverð og hafa færst í vöxt síð- ustu árin. Engu að síður hafi verið ákveðið að Byko drægi sig út úr þessum viðskipt- um. Viðskiptasamböndunum var komið yfir til Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Báð- ir hafi verið ánægðir. SH-menn að fá við- skiptin og Byko menn að hætta fiskútflutn- ingi. Byko gat því einbeitt sér að bygginga- vörunni og SH fékk nýja viðskiptavini í austri. BRJÁLÆÐISLEG HUGMYND Byko ílytur hins vegar enn út ull. Fyrir- tækið flutti á síðasta ári út um níutíu pró- sent af þeirri ull sem fór til Rússlands. Þar er Byko í samstarfi við að- ila sem kaupir prjóna- voð héðan og saumar úr henni í Moskvu. Þetta eru umtalsverð viðskipti að sögn Jóns Helga. Út úr þeim við- skiptum þróaðist timburvinnslan í Lettlandi. „Segja má að það hafi þó verið svolítið brjálæðis- leg hugmynd, en við hófum starf- semi í Lettlandi árið 1993. Bygg- ingarmarkaður- inn á Islandi í hefðbundnum byggingagrein- um, sem var okkar helsti vettvangur, hafði dregist saman um þrjátíu til tjörutíu prósent. Allir vita hvernig ástandið var á þessum tíma, útlitið var dapurt. Við töld- um að þörf væri á að leita leiða til að eiga áfram tækifæri til vaxtar og viðgangs.” Jón Helgi segir Byko menn hafa metið það svo að besti kosturinn væri að leita í vinnslu sem stæði þeirra framleiðslu nærri og gætí orðið grunnur að uppbygg- ingu. „Við höfðum lengi átt í viðskiptum við austantjaldslönd og þá Sovétríkin sérstak- lega, en Lettland tílheyrði þeim þá. Við töldum tækifæri þarna, sérstaklega í Lett- landi sem er skógríkt land og að miklu leytí byggt vestrænu fólki, Lettum.” Jón Helgi seg- ir stöðu trjáiðnaðar í landinu hins vegar ekki hafa verið beysna og enga þróun hafa orðið þar á tímum Sovétríkj- anna. Tækifæri var því til að nýta íslenskt verkvit í Lettlandi. Sam- starfsaðilar fundust þar, ungt fólk sem vildi leggja grunn að tram- tíðarstarfi og segir Jón Helgi Lettana hafa stað- ið sig mjög vel. „Við fórum rólega af stað til að kanna umhverfið og sjá hvort við gætum látið þetta ganga áður en farið var út í fjárfestingar.” Arið 1995 keypti Byko svo samyrkjubú í 100 kíló- metra fjarlægð ffá borginni Riga í Lett- landi á skóglendu svæði í grennd við höf- uðstaðinn í héraðinu þar sem greiður að- gangur var að vinnuafli. „Byggingarnar, sem voru um átta þús- und fermetrar að flatarmáli, hentuðu okk- ur mjög vel.” HAFA EKKIUNDAN AÐ FRAMLEIÐA FYRIR ERLENDAN MARKAÐ Jón Helgi neitar því ekki að nokkra und- irbúningsvinnu hafi þurft tíl að koma starf- seminni í Lettlandi á fót. Hann hafi sjálfur sinnt verkefninu að talsverðu leyti. Vel- gengnin í Lettlandi hafi þó ekki hvað síst byggst á því að fundist hafi gott fólk á staðnum sem tilbúið var að leggja sitt af mörkum tíl að dæmið gengi upp. „Starfsemin hefur geng- ið vel og við byggðum fýrir- tækið upp með það í huga að vera með hráefnisöflun fyrir okkur sjálfa. Ætlunin var þó alltaf að útfæra starf- semina frekar svo vinnslan væri ekki eingöngu byggð á vinnslu fyrir okkur heldur vildum við koma á laggirnar útílutningi á timbri og úr- vinnsluafurðum timburs á álitlegan markað. Við byrj- uðum á þessu fyrir tveimur árum og vinnslan hefur undið upp á sig. Nú flytjum við mest út tíl Hollands og Belgíu en einnig tíl Bretlands og Danmerkur.” Svo vel hefur tekist tíl að í raun er það fram- leiðslugeta verksmiðjunnar sem setur mörkin um sölu afurðanna. Mark- aðir hafa verið nægir. Heildarút- flutningur Byko- lat frá Lettlandi á þessu ári verður að líkindum þijátíu til fjörutíu þúsund rúmmetrar. Þar af fara um fimmtán þúsund rúmmetrar af tímbri tíl Islands. Og ekki eru menn af baki dottnir því nú á að breiða úr sér í Lett- landi. „Við erum að fjár- festa útí núna og að tvöfalda afkastagetu verksmiðjunnar. Við ætlum að setja upp heflunarlínu sem verður tilbúin í haust” RISINN ELKO ■ FJÁRFESTING FYRIR TUGI MILLJÓNA Einhverjum þættí ef tíl vill nóg að vera Hlutdeild Byko í byggingavörumarkaði BF k. Aðrir 70% By 30 ko V U y J Byggingavörumarkaður- inn velti um 13,2 millj- örðum á síðasta ári. Byko er með um 30% markaðarins. 41

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.