Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1998, Side 49

Frjáls verslun - 01.05.1998, Side 49
er að sjá til þess að þessi hótelsamstæða verði rekin með hagnaði. Almennt er álitið að ráðning hennar endurspegli vilja stjórn- arinnar til þess að straumlinulaga rekstur- inn en sérþekking hennar á ferðamálum, sérstaklega ráðstefnuhaldi, er talin hafa ráðið miklu. Það er yfirlýst stefna forráðamanna Hótel Sögu að byggja við hótelið aðstöðu til ráðstefnu- og fundahalda. Nú eru kreiki miklar hugmyndir um að tengja það við byggingu tónlistarhúss og til eru drög að teikningum sem sýna ráðgerða tónlistar- höll og ráðstefnusali í miklum viðbygging- um tíl austurs sem teygja hið forna hótel allt út undir Suðurgötu. Ef af metnaðar- fyllstu útgáfú þessara hugmynda verður mun þetta verða framkvæmt í samvinnu við ríkið og Reykjavíkurborg. Hugmyndir þessar hafa þó ekki verið ræddar til hlítar en vitað er að Reykjavíkurborg er hallari undir áform um að slík höll rísi í miðbæ Reykjavíkur. Ymsar byltingarkenndar hugmyndir eru einnig í farvatninu og snúast um að nýir eigendur komi inn í reksturinn. Við óbreyttar aðstæður er fyrirtækinu þröngur stakkur skorinn til að ráðast í stórfram- kvæmdir. Menn hafa velt því fyrir sér að stækka hótelið með því að taka 3. hæðina, sem nú hýsir Bændasamtökin og ýmsa starfsemi tengda þeim, alveg undir hótelið og smíða þar svokallaðar minisvítur. Slíkar hugmyndir voru síðast ræddar 1995 en þá hafði hótelið ekki bolmagn til að fara í þær breytingar sem hlytu að fýlgja í kjölfarið. Sú staða hefur varla breyst síð- an hafi reksturinn staðið í járnum. Vandinn í þessum efnum er sá að nýtt hlutafé verður varla fengið inn nema breyta eignarhaldi á hótelinu. Það er yfir- lýst stefna Bændasamtakanna að hlutverk þeirra sé ekki endilega að reka hótel, sér- staklega ekki hótel sem þurfi að borga með og þeim fjármunum væri betur varið annars staðar. Kjarni málsins er sá að þær hugmyndir eiga æ meiri hljómgrunn með- al bænda að selja beri hótelið og festa féð í öðrum og arðbærari rekstri. VINIR OG VANDAMENN Hrönn rækir lítt hefðbundin áhugamál utan starfsins en kýs að eyða þeim frí- stundum sem gefast með sinni fjölskyldu og vinum en þau hjón eru vinmörg. Hún er þó áhugamanneskja um menningu og list- ir og sækir listsýningar og tónleika þegar tækifæri gefast. Hún hefur mikinn áhuga á matargerð og góðum vínum og þau hjónin Hrönn Greipsdóttir er stjórnandi kvennaveldis á Hótel Sögu. sækja mikið veitingahús á ferðalögum. Þau hafa ferðast mikið og unna útiveru. Um þessar mundir er ekki um hefð- bundna sambúð að ræða þar sem Sigurð- ur, eiginmaður Hrannar, er enn búsettur í London en hún hér heima en þetta breytist í júlílok þegar Sigurður kemur heim og tekur við starfi sem yfirmaður þjónustu- sviðs Flugleiða. Vegna aldursmunar þeirra hjóna er vinahópur þeirra stór og fjölbreyttur. Hrönn heldur miklu sambandi við sína stóru Ijölskyldu og fer reglulega austur að Geysi til að hlaða batteríin í félagsskap vina og skyldmenna. Hrönn á einn eldri bróður sem heitir Sigurður Greipsson. Hann er doktor í líffræði, búsettur í Líbanon, kenn- ari við Ameríska háskólann í Beirut og gift- ur þarlendri konu sem heitir Hannan og er einnig doktor i líffræði. Meðal vina og skólasystkina úr við- skiptafræðinni má nefna Halldór Friðrik Þorsteinsson hjá Kaupþingi, Jóhann Krist- Góðir vinir þeirra hjóna eru félagar í The Union of Icelandic Badminton Players sem er eins og nafnið bendir til badminton- félag sem Sigurður tílheyrir. Þar eru með- al þungavigtarmanna Einar Benediktsson, Olís forstjóri, og Kristján Jóhannsson, lekt- or í viðskiptafræði. Sigurður tilheyrir reyndar öðrum badmintonhópi þar sem uppistaðan eru félagar sem á sínum tíma stofnuðu saman Gauk á Stöng. Það eru þeir Arni Vilhjálmsson lögfræðingur, sem reyndar var svaramaður þeirra hjóna, Páll Kr. Pálsson, Elías Gunnarsson og Sveinn Úlfarsson verkfræðingar. A þeim árum sem Hrönn og Sigurður hafa búið í London hafa þau stofhað til mik- illa og góðra kynna við Islendinga sem eru búsettir þar. Helstu vinir þeirra frá þeim tíma eru Jakob Magnússon og Ragnhildur Gísladóttír, sr. Jón E. Baldvinsson og Ás- gerður Júníusdóttír og Siguijón Sigurðs- son, sem kallar sig Sjón. Við þetta mættí bæta að Hrönn er félagi HVERNIG STJÓRNAR HÚN? Sem stjórnanda er Hrönn lýst þannig að hún sé varkár, athugul og meiri samvinnu- manneskja en einráður. Hún lítur á sjálfa sig og millistjórnendurna sem eina liðsheild og reynir að starfa samkvæmt því. Samstarfsmenn hennar segja að hún vilji ekki vaða yfir fólk en fái sitt fram að lokum. Einn þeirra orðaði það svo að hún vildi gjarnan vera liðsstjóri en endaði stundum sem einvaldur. jánsson hjá íslandsbanka, Margrétí Richt- er, sem vinnur hjá Húsasmiðjunni, Kristínu Egilsdóttur og Helga Anton. Frá starfstímanum hjá Úrval-Útsýn má nefna Helgu Láru Guðmundsdóttur, Björk Baldursdóttur og Jóhönnu Lárusdóttur, sem nú starfar hjá Flugleiðum í London. í tveimur saumaklúbbum og hefur annar starfað síðan félagar voru 16 ára í MH. Þannig sýnir nærmyndin af Hrönn Greipsdóttur unga velmenntaða og áræðna konu sem hefur færst mikið í fang. Margt bendir til að hún hafi alla burði til þess að leysa það. S3 49

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.