Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1998, Qupperneq 55

Frjáls verslun - 01.05.1998, Qupperneq 55
FRÉTTASKÝRING markstryggingavernd og í lögunum er gert ráð fyrir að sjóðfélagar geti gert það með því að greiða bæði í séreignar- og samtryggingasjóð,” sagði Gunnar Baldvinsson, for- stöðumaður ALVÍB. „Helstu ókostir laganna eru að mínu mati þeir að aðild að tilteknum lífeyrissjóðum er ekki frjáls, en ég tel það vera mannréttindamál að fólk geti valið sér lífeyrissjóð auk þess sem það myndi leiða til aukinn- ar samkeppni og betri reksturs sjóð- anna. Að vísu gera lögin ráð fyrir nokkurri tilslökun að þessu leyti frá þvi sem var og vonandi er það bara fyrsta skrefið að því að einstaklingar geti valið sér lífeyrissjóð sjálf- ir. Til viðbótar gagnrýni ég lögin fyrir að taka ekki tillit til áunn- inna lifeyrisréttinda heldur láta sjóðfélaga að halda áfram að byggja upp rétt til ævilangra lifeyrisgreiðslna þrátt fyrir að þeir séu búnir að tryggja sér viðunandi lífeyrisgreiðslur. Hjá ALVÍB munum við bjóða sjóðfélögum að velja sér verðbréfa- söfn en þannig geta þeir sniðið ávöxtunina að eigin þörfum. Þá hef- ur stjórnin ákveðið að setja á stofn Tryggingadeild lífeyrissjóða en þar geta sjóðfélagar tryggt sér nauðsynlega lágmarkstrygginga- vernd auk þess að bæta við sig viðbótartryggingum. ALVÍB er það fjölmennur sjóður að þessi leið er fær og með þessu getum við boð- ið sjóðfélögum ódýrar og öruggar tryggingar. Við munum jafn- framt bjóða sjóðfélögum viðbótartryggingar frá SAMLIF, eins og nánar er útskýrt í Litlu bókinni um lífeyrismál. Utkoman er sú að sjóðfélögum okkar stendur til boða að velja sér verðbréfasöfri og meira úrval trygginga en nokkur annar lífeyrissjóður býður.” 33 Gunnar Baldvinsson, forstöðumaður ALVIB. Guðbjörn Maronson hjá Búnaðarbanka Verðbréjum: MARGIR NÝIR VALKOSTIR E1 ikilvægasta at- riði nýrra laga er að nú verður öllum gert skylt að greiða í lífeyrissjóð og er skattyf- irvöldum ætlað að hafa eft- irlit með því og sjá til að svo verði. Þetta mun ör- ugglega leiða til þess að þeir sem hingað til hafa ekki greitt í neinn lífeyris- sjóð, eða gert það á ófull- nægjandi hátt, munu nú þurfa að skipuleggja sín lifeyrismál,” sagði Guðbjörn Maronson, forstöðumaður Eignavörslu hjá Bún- aðarbankanum Verðbréfum. „Almenna þróunin í lífeyrismálum er sú að fólk vill bæði fara fyrr á eftirlaun og eins vill fólk hafa meira á milli handanna til að njóta sem best áranna eftir að það hættir að vinna. Ríkisstjórnin hefur gefið fyrirheit um að frá og með næstu áramótum geti laun- þegar aukið greiðslur í lífeyrissjóði úr 4% af launum í 6% án þess Guðbjörn Maronson, forstöðu- maður Eignavörslu hjá Bún- aðarbankanum Verðbréfúm. að greiða af þeim tekjuskatt (fyrr en að eftirlaunaaldri er náð) og almennt má gera ráð fyrir að fólk muni á næstu árum leggja hærri hluta launa sinna fyrir í þessum tilgangi. Þótt ný lög hafi vissulega ekki opnað fyrir almenna samkeppni á sviði lífeyrismála þá opna þau fyrir ýmsa aðra spennandi mögu- leika fyrir þá sem geta valið á milli sjóða og einnig fyrir þá sem vilja auka við þau lífeyrisréttindi sem þeir eiga von á úr öðrum sjóðum. Fyrst ber að nefna að með nýju lögunum gefst möguleiki fyrir sjóðfélaga að samþætta sparnað og tryggingar eins og hent- ar best hverjum og einum. Þannig geta þeir sem eru með fjöl- skyldu og vilja tryggja sér og sínum aukna vernd gegn ýmsum áföllum gert það með ýmsum hætti og notið um leið þess skatta- lega hagræðis sem greiðslur í lífeyrissjóð njóta samkvæmt lögum. Þá geta sjóðfélagar nú valið um marga mismunandi fjárfesting- arkosti og mótað sér þá fjárfestingarstefnu sem hentar best hveij- um og einum. Þeir sem yngri eru, og þeir sem aimennt vilja taka meiri áhættu, geta nú valið að fjárfesta hlutfallslega meira t.d. í hlutabréfum og erlendum verðbréfum sem ætla má að gefi betri ávöxtun til lengri tíma. Þeir sem eldri eru, og þeir sem vilja taka minni áhættu, geta valið að fjárfesta meira í rikistryggðum bréf- um. Aðstæður manna eru misjafnar og ýmsir valkostír í boði. Það er mjög æskilegt að fólk skipuleggi h'feyrismál sín í tíma og leití sér ráðgjafar sé það í vafa um hvað það eigi að gera.” B3 Brynhildur Sverrisdóttir hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum: TRYGGJUM SEM MEST VAL Qrjálsi lífeyrissjóðurinn mun bjóða upp á eins mikið val- frelsi og mögulegt er sam- kvæmt lögum. Við munum bjóða upp á val um mismunandi fjárfest- ingarstefnur. Við munum bjóða upp á mismunandi tímabil sem sjóðfé- lagar geta hafið töku samtrygginga- lífeyris og við munum bjóða félög- um upp á að blanda saman séreign og sameign tíl að tryggja sér lág- marksréttindi,” sagði Brynhildur Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Frjálsa lífeyrissjóðsins hjá Fjár- vangi, aðspurð um viðbrögð þeirra við nýju lögunum. „Sameignardeild verður stofnuð þar sem réttíndaávinnslan verður háð aldri. Þannig mun ungt fólk geta notið þeirra réttínda sem það á skilið. Samkvæmt lögum um lifeyrismál hafa lífeyris- sjóðir eins árs aðlögunarfrest tíl að breyta reglugerðum sjóðanna: Þannig geta allir sem eru að greiða í séreign í dag haldið áfram að greiða allt iðgjaldið í séreign fram tíl 1. júlí 1999 . Fyrir þann tíma munum við samt sem áður bjóða upp sam- tryggingadeild frá og með 1. júlí næstkomandi. Auk þess verður boðið upp á valkostí varðandi mismunandi fjárfestingarstefnur. Þá verður einnig boðið upp á fjiilbreytta kostí varðandi viðbótarlífeyr- issparnað en nú þegar bjóðum við upp á mjög spennandi söfnun- artryggingar sem fólk getur nýtt sér í því skyni að eiga viðbótar- sparnað.” 33 Brynhildur Sverris- dóttir, framkvæmda- stjóri Fjárvangs og Frjálsa lífeyrissjóðsins. 55
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.