Frjáls verslun - 01.05.1998, Qupperneq 63
MARKAÐSMÁL
FJÁRFEST Á VEFNUM!
Þetta gefur viðskiptavinum okkar tækifæri til að stunda viðskipti við tölvuskjá hvar
sem þeir eru staddir. Þetta er þjónusta sem hefur mælst mjög vel fyrir hjá okkar
viðskiptavinum og við höfum fengið talsverð viðskipti vegna þessarar þjónustu.
bréf fyrir. Hvert leiktímabil stendur í þrjá
mánuði og að því loknu fær sá keppandi
vegleg verðlaun sem mesta ávöxtun hefur
sýnt.
Það sem gerir leikinn áhugaverðan fyr-
ir þá sem unna viðskiptum með hlutabréf
er að allar forsendur í markaðsumhverfinu
eru þær sem raunverulega eru á markaðn-
um. Þannig er leikurinn í raun sýndarvið-
skipti sem styðjast við raunverulegar for-
sendur.
Verðlaunin eru 150 þúsund krónur fyrir
fyrsta sæti, 75 þúsund krónur fyrir annað
sætí og 50 þúsund fyrir þriðja sæti fyrir
hvert leiktímabil þannig að eftir töluverðu
er að slægjast.
5000 MANNS KEYPTU OG SELDU
„Þátttaka í leiknum hefur verið
gríðarlega mikil og í rauninni miklu
meiri en við reiknuðum með. Fyrsta
tímabilið voru 5000 þátttakendur
sem spiluðu með að jafnaði. Margir
sýndu þessu mikinn áhuga og lögðu
sig alla fram. Alltaf er hægt að sjá
stöðu 10 efstu manna í leiknum.
Ohætt er að fullyrða að þeir sem
standa sig best í leiknum séu þeir
sem opna leikinn á hverjum degi,
fylgjast vel með fréttum og mark-
aðnum og í stuttu máli sagt eru
alltaf á tánum.“
Nú væri freistandi að halda að
þetta væri leikur sem höfðaði
einkum til þeirra sem væru á kafi
í viðskiptum og þekktu lögmál slíkra mark-
aða og væru þar af leiðandi ekki líklegir tíl
þess að leika sér. Kristján segir það ekki
vera svo?
„Það er gríðarlega mikill áhugi á hluta-
bréfamarkaði hjá yngra fólki. Það er hins
vegar sjaldan beinir þátttakendur í raun-
verulegum viðskiptum. Mjög stór hluti
þeirra sem taka þátt í þessum leik okkar
eru nemar sem eru að læra eitthvað sem
tengist þessu. Þetta eru nemendur á há-
skólastigi í viðskiptafræði, hagfræði,
rekstrarhagfræði og þar fram eftír götun-
um. Síðan eru auðvitað talsvert margir
sem taka þátt í leiknum sem eru raunveru-
legir þátttakendur í hlutabréfaviðskiptum
og finnst gaman að spreyta sig.“
KAUPHÖLL Á NETINU
Verðbréfaleikurinn er
í rauninni spegilmynd
raunveruleikans í Kaup-
höll Landsbréfa þar sem
að boðið er upp á við-
skiptí á vefnum. Eini munurinn er sá að í
Kauphöll Landsbréfa eru öll viðskiptí
raunveruleg. Þess vegna er gerður sér-
stakur samningur milli Landsbréfa og
þeirra sem vilja stunda viðskiptí í Kaup-
höllinni en skráning og þátttaka í leiknum
er án fyrirhafnar.
„Þetta gefur viðskiptavinum okkar
tækifæri til að stunda viðskipti við tölvu-
skjá hvar sem þeir eru staddir. Það eina
sem þeir gera er að ýta á rétta takka með
músinni en við sjáum um allt annað. Þetta
er þjónusta sem hefur mælst mjög vel fyrir
hjá okkar viðskiptavinum og við höfum
fengið talsverð viðskiptí vegna þessarar
þjónustu."
I Kauphöllinn er hægt að kaupa og selja
verðbréf í verðbréfa- og hlutabréfasjóðum
Landsbréfa og hlutabréf í sjóðum Alliance
Capital Management og bréf í öllum fyrir-
tækjum sem skráð eru á Verðbréfaþingi Is-
lands. Viðskiptamenn Kauphallar fá ókeyp-
is vörslu verðbréfa sinna hjá Landsbréfum
og bmdsbréf annast tilkynningar til hlut-
hafaskrár og annast allan frágang vegna
viðskiptanna.
„Öll viðskipti koma samstundis fram og
því er einkar þægilegt að fylgjast með
hreyfingum á markaðnum;
þægilegra en hægt er í
gegnum blöðin og það gera
margir," sagði Kristján.
Landsþréf bjóða lægri
þóknun fyrir þessa þjónustu
eða aðeins 2% í sölulaun í stað þeirra 3%
sem almennt tíðkast.
Þegar litið er til þess hve áþekk þessi
tvö fyrirbæri eru, annars vegar leikurinn
með sínum sýndarviðskiptum og hinsveg-
ar Kauphöllin þar sem nútíma raunveruleg
viðskipti fara fram í netheimi, þá vaknar sú
spurning hvort hlutverk leiksins sé fyrst
og fremst að kenna mönnum að versla
með hlutabréf fremur en að skemmta
þeim.
Þetta starfar saman,“ segir Kristján.,,
Við höfðum fræðslu
og leiðbeiningarhlut-
verkið talsvert í huga
þegar verið var að
þróa leikinn. Islensk-
ur hlutabréfamarkað-
ur er ungur og margir
ekki vanir slíkum við-
skiptum. Við teljum að
með leiknum gefist
mönnum tækifæri til
þess að æfa sig áður en
til alvörunnar kemur.
Við sjáum að þátttak-
endur í leiknum bregð-
ast við fréttum rétt eins
og um raunveruleg við-
skipti væri að ræða.
Þannig var það tíl dæmis
þegar fréttíst af auknum þorskkvóta næsta
árs þá jukust mjög viðskiptí með hlutabréf
í sjávarútvegsfyrirtækjum í leiknum. Það
sama gerðist síðan í raunveruleikanum.
Þannig eru það sömu öfl sem stýra leikn-
um og framvindu hans og hafa raunveru-
leg áhrif. Þetta hefur gagnast okkur tækni-
lega á þann hátt að þegar við höfúm leyst
einhver vandamál tengd leiknum erum við
í raun að leysa þau fyrir Kauphöllina líka
og öfugt.“
Þannig má ef tíl vill segja að leikurinn
sé í senn nokkurs konar Matador í
netheimi en um leið æfing fyrir raunveru-
leikann. Ekki er víst að allir sem spiluðu
Matador af mikilli ákefð i æsku hafi síðan
hagnast á fasteignaviðskiptum og á sama
hátt er ekki borðliggjandi að þeir sem
græða á tá og fingri í Verðbréfaleiknum
auðgist á því að kaupa og selja hlutabréf.
En lögmálin eru þau sömu. Æfingin skap-
ar meistarann. 11]
68 GUðjÓnSSOn °« Guðmundur örn ZðLln" ***** JÓha'
SAGANÁBAK
VIÐ HERFERÐINA:
Páll Ásgeir Ásgeirsson
63