Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 12
Alþjóðlegt félag viðskiþta-
nema, AIESEC, stendur
að Framadögum. A þeim
kynna 40 stœrstu fyrir-
tœki landsins starfsemi
sína. Hér eru þau Gunn-
ar Páll Tryggvason, for-
maður Framadaga, og
Elínborg Kvaran,
markaðsstjóri dagana.
Framadagar fram undan
Qramadagar, atvinnulífsdagar Háskóla íslands, verða haldnir
fyrstu vikuna í mars 1999. Hádegisfyrirlestrar tengdir námi og
atvinnulíli verða haldnir á háskólasvæðinu dagana 3.- 4. mars.
Þann 5. mars munu 40 af stærstu og framsæknustu fyrirtækjum landsins
kynna starfsemi sina fyrir háskólanemum í Þjóðarbókhlöðunni. Mark-
mið Framadaga er að brúa bilið milli háskólanema og atvinnulífsins. Fyr-
irtækin fá þar tækifæri til að kynna starfsemi sína og veita stúdentum inn-
sýn í atvinnulífið. Nemendum gefst kostur á að kynnast því sem fyrirtæk-
in hafa fram að færa og leita upplýsinga um hvernig þeir geta gert nám
sitt markvissara. Fjölmargir nemendur hafa fengið störf og lokaverkefni
í gegnum Framadaga. Það er AIESEC, alþjóðlegt félag viðskipta- og hag-
fræðinema, sem stendur að verkefninu.
slensk-
sænska Versl-
unarráðið hélt
á dögunum fund um
framtíð farsíma. Ræðu-
maður var Anders Wa-
esterlid, framkvæmda-
stjóri hugbúnaðar- og
þróunarsviðs sænska
símafyrirtækisins Er-
icsson. Hann fjallaði
um hina öru þróun í far-
símum: Þyngd símanna
hefur farið úr 700 g nið-
ur í rúm 100 g; verðið
Anders Waesterlid, fram-
kvœmdastjóri hjá Ericsson,
á fundi hjá Islensk-sœnska
verslunarráðinu. „Sala far-
síma hefur tvöfaldast á ári
á undanfórnum árum. “
Framtíð farsíma
hefur lækkað; rafhlöðurnar eru öflugri; og salan heíur
tvöfaldast á ári á undanförnum árum. Ný kynslóð far-
síma mun gefa ýmsa nýja möguleika. Skjárinn stækk-
ar, auðveldara verður að taka við skriflegum skilaboð-
um, og símarnir verða með innbyggðu útvarpi, reikni-
vél, dagbók, staðsetningartækni, tölvuleikjum og
tölvutenginum svo eitthvað sé nefnt.
SÍMGJÖLD GETA
ORÐIÐ STÓR HLUTI
REKSTRARGJALDA
NETsíminn er nýr kostur til að efla
erlend viðskiptasambönd.
Allt sem til þarf hefðbundið símtæki.
Þú velur 1100 nýtt númer til útlanda
í stað 00 og notar símþjónustu
NETsímans.
Með þessum nýja valkosti lækka
símgjöldin um allt að 30%.
- Bættu afkomuna
- Lækkaðu símgjöldin
- Skróðu fyrirtæki þitt hjó NETsímanum.
Þjónistusími NETsímans er 575 1100
12