Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 25

Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 25
Það voru snarþarsennur: Guðmundur: „Símtöl til útlanda hafa lœkkað stórlega hjá Landssímanum á und- anfórnum árum þráttfyrir að Tal hafi ekki verið á markaðnum. “ Þóróljur: „Þú vilt kannski ekki hafa neina samkeppni, að best sé að Landssíminn sé einn, þvíþá lœkki verð- ið stöðugt. “ JGH: - í augum almenn- ings lítur samkeppni ykkar út sem taugastríð? Hvers vegna þetta taugastríð? Guðmundur: „Eg tel það hluta af markaðssetningu Tals að stilla okkur upp gagn- vart almenningi og neytend- um sem hinum slæmu sem gera allt til að hindra sam- keppnina - og að þeir séu písl- arvottar.“ Þórólfur: „Þetta er rangt. Þetta taugastríð, sem svo er nefnt hér, er ekki til að aug- lýsa okkur upp - hvað þá gagngert til að sverta Lands- símann. Við erum að berjast fyrir rétti okkar í því frelsi sem búið er að veita í íjarskiptum." JGH: Þórólfúr, þér hefúr verið tíðrætt um að ríkið selji Lands- símann og skapi þannig jafhréttisgrundvöll. Má ekki ætla að nokku langt verði í það þar sem hagnaður og arður Landssímans skiptír ríkissjóð verulegu máli? Þórólfúr: „Ríkissjóður á ekki að halda dauðahaldi í einhveijar arðgreiðslur frá Landssímanum upp á um 2 milljarða króna á ári. Ríkið á að selja fyrirtækið. Ekki einungis vegna jafnréttissjónar- miðsins heldur annarra og meiri hagsmuna sem eru í húfi. Það fengi áfram tekjur vegna beinna skatta af hagnaði - en líka auknar óbeinar tekjur í formi virðisaukaskatts vegna stóraukinna umsvifa alls viðskiptalífsins með auknum fjarskiptum." Guðmundur: „Eg er alls enginn talsmaður þess að Landssím- inn verði í eigu ríkisins um aldur og ævi. Eg er þvert á móti mjög hlynntur því að ríkið losi um eignaraðild sína að fyrirtækinu — og það að fullu. Stórt skref hefur þegar veríð stigið við að breyta því í hlutafélag. Sömu skattar og skyldur hvíla núna á Landssímanum og öðrum hlutafélögum. Nauðsynlegt er samt að henda á að Landssíminn hefur samkvæmt rekstrarleyfi sínu ákveðnum skyld- um að gegna um svokallaða alþjónustu. Fyrirtækið skal þjóna öll- um landsmönnum í talsímaþjónustu á sama verði án alls tillits til kostnaðar. Landssíminn getur ekki, líkt og keppinautarnir, valið sér arðbærustu markaðina til að starfa á, heldur verður fyrirtæk- ið að þjóna öllum á sama verði um land allt.” Þórólfur: „Eg vil koma hér inn á verðgildi Landssímans. Rætt hefur verið um að fyrirtækið sé um 30 til 40 milljarða króna virði. Því spyr ég: „Hvers vegna drífur ríkið ekki í þvi að selja Landssím- ann og nýta sér þá miklu eftirspurn sem núna er eftir hlutabréfum á almennum verðbréfamarkaði? Það er ekki víst að jafngott færi gefist á næstu árum; hið opinbera verður að gæta þess að sitja ekki uppi með fyrirtækið." JGH: Miðað við að hagnaður Landssimans sé um 2 milljarðar og að V/H hlutfallið gætí verið í kringum 15 þá er 30 milljarða markaðsverð ekki íjarri sanni. Guðmundur: „Ég get lítið sagt um þessar verðhugmyndir því að auðvitað verður það markaðurinn sem ákveður verð fyrirtækis- ins. Komi til þess að ríkið ákveði að selja hlutaféð í fyrirtækinu er auðvitað mikilvægast að standa þar vel að verki og vanda til söl- unnar.“ JGH: - Landssíminn skilar um 2 milljörðum á ári í hagnað en er á sama tíma, að þinni sögn Guðmundur, með lægstu simgjöld í Evrópu. Hvernig fer það saman að vera bæði með mjög góðan hagnað og lægstu símgjöld í Evrópu? Guðmundur: „Við höfum um nokkuð langt skeið verið með lægstu símgjöld í Evrópu og líka góðan hagnað. Ástæðan er sú að Landssíminn er mjög vel rekið fyrirtæki - þótt það sýnist kannski sem sjálfshól þegar ég segi þetta. Við höfúm verið lánsamir; við höfum ætíð haft mjög góða starfsmenn, ekki síst tæknimenn, menn sem hafa af dugnaði horft til framtíðar. Þess vegna höfum við verið snöggir að innleiða helstu nýjungar á sviði fjarskipta. Þetta - ásamt þvi að launakostnaður hjá fyrirtækinu hefúr ekki ver- ið þaninn til hins ýtrasta í gegnum tíðina - hefur stuðlað að því að við höfum getað boðið upp á góða þjónustu á góðu verði og skilað ágætum hagnaði á sama tíma.“ JGH: - Hvað er Landssímanum ætlað að sldla miklum hagn- aði, hversu há er krafan um arðsemi eiginfiár? Guðmundur: „Á meðan Póstur og sími var ríkisstofnun var framlag fyrirtækisins í ríkissjóð ákveðið í fjárlögum. Eftir að Landssíminn varð hlutafélag fær ríkið tekjur af fyrirtækinu í formi skatta og arðs af hlutafénu. Núna er krafan um arðsemi eigintjár í kringum 15% - en eigið féð er um 12,5 milljarðar. Því má segja að arðsemiskrafan sé núna um 1,8 milljarðar í hagnað á ári. Á síðasta ári greiddum við um 7% arð af hlutafénu. Auk þess greiðum við skatta, beina og óbeina, eins og önnur hlutafélög sem ganga vel.“ Þórólfur: „Ég hef haldið því hér fram að Landssíminn njóti verndar samgönguráðuneytisins en ráðherra samgöngumála fer með eina hlutabréfið í fyrirtækinu. Rökin eru þessi: Það hlýtur að vera erfitt fyrir ríkið sem eiganda Landssímans að gera mikla arð- 25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.