Frjáls verslun - 01.01.1999, Blaðsíða 42
NÆRMYND
HAGFRÆÐINGURINN
/ qosmu
Þorsteinn Metúsalem Jónsson er
forstjóri Vífilfells, eins stærsta iðnfyrirtœkis á Islandi.
Hann lœrði kagfrœði, hefur verið framkvœmdastjóri
leiksýninga oggefið út geisladiska en undirhans stjórn
hefur Vífilfelli vaxið fiskur um hrygg
eð undiritun viljayfiriýsingar í árs-
lok 1998 um sölu á gosdrykkja-
verksmiðju Vífilfells má segja að
ljúki ákveðnum kafla í 57 ára sögu fyrir-
tækisins. Vífilfell var stofnað kringum
einkaleyfi til að framleiða og selja Coca-
Cola á Islandi árið 1941. Stofnandi þess og
frumkvöðull var Björn Olafsson, síðar ráð-
herra, og Pétur, sonur hans, stýrði fyrir-
tækinu eftir hans dag. Landnám kóksins á
Islandi markaði ákveðin tímamót í út-
breiðslu þess um heimsbyggðina en kók-
verksmiðjur spruttu hvarvetna upp þar
sem ameríski herinn sló tjöldum.
Islendingar heilluðust svo af hinum
þeldökku freyðandi veigum að enn þann
dag í dag eru þeir ein mesta kókdrykkju-
þjóð heimsins miðað við höfðatölu og
skjóta Bandaríkjamönnum auðveldlega ref
fyrir rass á því sviði.
Það er fyrirtækið Coca-Cola Nordic
Beverages sem ætlar að kaupa Vífilfell en
það hefur haslað sér völl í framleiðslu og
dreifingu á kóki á Norðurlöndum og hefur
smátt og smátt yfirtekið fyrirtæki áþekk
Vífilfelli í öðrum löndum Skandinavíu. Fyr-
irtækið er í eigu Coca-Cola Company í Atl-
anta sem á 49% og Carlsberg sam-
steypunnar í Danmörku sem á 51%.
Það vakti nokkra athygli við þessi eig-
endaskipti að nýir eigendur vildu að Þor-
steinn M. Jónsson, sem stýrthefurVífilfelli
frá árinu 1996, gegndi starfinu áfram. Þor-
steinn hefur starfað við hlið Péturs Björns-
sonar, eiganda Vífilfells, og verið honum
handgenginn. Það þykir bera vott um góða
frammistöðu Þorsteins að hann skuli vera
áfram við stjórnvölinn í Vífifelli. Vífilfell
veltir rúmum 2,3 milljörðum árlega og þar
starfa um 150 manns. Hinir nýju eigendur
munu skipa stjórn fyrirtækisins en láta
Þorsteini eftir daglegan rekstur.
Það má einnig nota sem mælikvarða á
velgengni Þorsteins í starfi að síðustu þrjú
ár hefur Vífilfell sett heimsmet í sölu af-
urða Coca-Cola Company miðað við magn
á hvern íbúa. Selt magn á tíambilinu hefur
aukist um nálægt fjórðung úr hundraði.
Þorsteinn var einnig aðalhvatamaður þess
að Vífifell eignaðist snemma á árinu 1997
meirihluta í Víkingi hf. og síðar Sól hf. með
það að markmiði að sameina rekstur félag-
anna undir merkjum Sólar-Víkings. Bæði
fyrirtækin áttu í nokkrum erfiðleikum en
sameinuð skila þau nú myndarlegum
hagnaði á fyrsta heila starfsárinu. Endan-
legir reikningar liggja ekki fyrir en talan 90
milljónir hefur verið nefnd opinberlega.
HVER ER MAÐURINN?
Þorsteinn Metúsalem Jónsson fæddist í
Reykjavík 18. febrúar árið 1963. Það stað-
setur hann í merki Vatnsberans.
Himnarýnar segja að Vatnsberar séu ein-
MEÐ SKILYRÐUM
Þorsteinn hugsaði sig um í tvær vikur en tók síðan tilboði Péturs með því
skilyrði fyrst og fremst að Pétur léti honum eftir stjórn fyrirtækisins og sleppti hend-
inni af daglegum rekstri þess.
þykkir, sérvitrir en skapgóðir og ljúfir í
umgengni. Þeir séu fágaðir einfarar sem
hafi ríka samúð með lítilmagnanum og vilji
helst fara sínar eigin leiðir. Það er einnig
sagt að Vatnsberar verði aðeins einu sinni
á ævinni raunverulega ástfangnir.
Þorsteinn deilir afmælisdegi sínum
með Hallgrími Helgasyni, fjöllistamanni,
og Jóni Thoroddsen, skáldi og lögífæð-
ingi, sem gaf út fyrstu prósaljóðabók á Is-
landi, 1922. Þennan dag hafa tvisvar orðið
mannskæð snjóflóð á Islandi, 1885 á Seyð-
isfirði og 1910 í Hnífsdal.
Þorsteinn er sonur Jóns Þórarinssonar,
tónskálds með meiru, og Sigurjónu Jak-
obsdóttur dómsritara, seinni konu hans.
Þorsteinn er næstelstur ijögurra alsystkina
þar sem Anna María er elst, f. 1962, þá Þor-
steinn en síðan Hallgerður, f. 1966, og
Benedikt Páll, f. 1968. Þorsteinn á einnig
þijú hálfsystkini af hjónabandi Jóns með
Þórdísi Eddu Kvaran leikkonu. Þau eru:
Þórarinn, f. 1944, Ágúst, f. 1948 og Rafn, f.
1952.
Anna María er kennari, Hallgerður rek-
ur skósólaverksmiðju í Portúgal ásamt eig-
inmanni sínum og Benedikt er heimspek-
ingur á leið í framhaldsnám. Fjölskyldan er
afar samheldin og hittast þeir sem geta í
viku hverri við matborð móðurinnar og
treysta flölskylduböndin.
Þorsteinn getur rakið ættir sínar í að
minnsta kosti tvo landsijórðunga. Jón, fað-
ir hans, er fæddur á Gilsárteigi í Eiðaþing-
há, sonur Þórarins Benediktssonar, bónda,
hreppstjóra og alþingismanns þar. Langafi
Þorsteins í móðurætt og alnafni var hinn
þekkti skólamaður og bókasafnari Þor-
steinn M. Jónsson á Akureyri en móður-
ættin rekst um Norðurland, bæði Grímsey
og Þórshöfn.
SLÍTUR BARNSSKÓNUM
Þorsteinn ólst upp í Reykjavík og komst
til vits og ára á þeim tímum sem íslenskt
sjónvarp var að slíta barnsskónum en faðir
hans var árum saman yfirmaður Lista- og
skemmtideildar þar.
Fjölskyldan bjó í þremur borgarhlutum
meðan Þorsteinn var að alast upp. Fyrst í
Hlíðunum, síðan í Mosfellssveit og loks í
Smáíbúðahverfinu. Hann varð stúdent ífá
Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1983
og lærði síðan viðskiptafræði við Háskóla
íslands og lauk því 1988. Síðan tók við
framhaldsnám í þjóðhagífæði við North-
western University í Bandaríkjunum það-
an sem hann lauk MA prófi 1991.
Eftir að náminu í HI lauk vann Þor-
42