Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 51
I vinnunni. Það erekki tíminn í New York, Tokyo eða London sem gildir hjá Kauþþingi Norð-
urlands heldur þess vegna tíminn á Hjalteyri. Þorvaldur Lúðvík með forstöðumönnum KN,
þeim Sveini Torfa Pálssyni og Sœvari Helgasyni.
ingu. Ég held að einn af okkar höfuðkost-
um sé sá að við erum smáir og við teljum
að við sinnum okkar viðskiptavinum betur
og persónulegar en stærri fyrirtækin. Auk
þess sem vitneskja um hvern og einn er í
færri höndum - sem þýðir að minni hætta
er á leka eða trúnaðarbrestí. Það er því góð
þjónusta og trúnaður sem gerir það að
verkum að Kaupþing Norðurlands hefur
náð að festa sig í sessi. Þetta á einnig við
um þjónustu við fyrirtæki, sem t.a.m. vilja
kaupa stærri hluta í öðrum fyrirtækjum án
þess að það sé í hámæli, en slík vitneskja
er ávallt í mjög fáum höndum.“
Forsendur árangurs fyrirtækis eins og
Kaupþings Norðurlands eru að sögn Þor-
valdar hæft og vinnusamt starfsfólk með
aðgang að góðum upplýsingakerfum, en
starfsemin byggir að miklu leyti á frum-
leika og útsjónarsemi þess. Smæð fyrir-
tækisins gerir það einnig að verkum að
annars konar samheldni skapast innan
þess en hjá stærri fyrirtækjum þar sem
hætta er á myndun hópa og mismunandi
fylkinga einstakra yfirmanna. Fátt er eins
eyðileggjandi afl og sá andi sem einkennist
af trúnaðarbresti og flokkadráttum. For-
senda árangurs hlýtur ávallt að vera sú að
allir stefni að sama marki; með hagsmuni
fyrirtækisins eina í huga.“
Sérhæfing á færri sviðum liefur einnig
TEXTI: Halla Bára Gestsdóttir
MYNDIR: Gunnar Sverrisson
markað Kaupþingi Norðurlands ákveðinn
bás. „Við vorum áður í allri starfsemi sem
lýtur að verðbréfaviðskiptum og banka-
málum, sbr. ijármögnun fyrirtækja, en það
er svið þar sem stóru bankarnir eru í mik-
illi samkeppni. Þarna er ekki vaxtabrodd-
ur, að okkar mati, og ekki sá vettvangur
sem við sækjumst eftír.“
HRÓPANDI í EYÐIMÖRKINNI
Frá því Þorvaldur kom heim úr námi
segist hann hafa orðið áþreifanlega var við
að fyrirtæki og sveitarfélög í fjarlægð frá
Reykjavík borgi landsbyggðarskatt í réttu
hlutfalli við fjarlægð þeirra frá höfðuborg-
inni. Þessa uppgötvun segir hann hafa gert
sig að hálfgerðum byggðapostula. „Það er
gerð hærri ávöxtunarkrafa tíl hlutabréfa
fyrirtækja útí á landi og ennfremur á útgef-
in skuldabréf þessara fyrirtækja. Sömu
sögu má segja um sveitarfélögin. Meðan
lítið sveitarfélag í nálægð við Reykjavík
getur fjármagnað sig á mjög góðum kjör-
um, þótt að það standi illa, þá eru betur
stödd sveitarfélög útí á landi með dýrari
fjármögnun - og það aðeins vegna þess að
þau eru úti á landi. Þarna nýtur fyrrnefnda
sveitarfélagið þess að vera í nálægð við
höfuðborgina og líklega er skoðun flestra
að það muni í framtíðinni hvort sem er
renna saman við borgina. Þetta virðist vera
reyndin; mér finnst ég vera eins og hróp-
andi í eyðimörkinni þegar ég ræði þetta við
kollega mína í Reykjavík. Ef talað er um
ávöxtunarkröfu skuldabréfa er litið á fjár-
I hagslegar upplýsingar, t.d. fjárstreymi,
Bfitiítivi.
var góður skóli og ég hafði yfirmenn sem
ég lærði mikið af en hugurinn stefndi alltaf
í fjármálaheiminn. Hjá Kaupþingi Norður-
lands byijaði ég 1996 í einstaklingsráðgjöf,
greiningarvinnu og útboðum og í lok árs
1997 tók ég við starfi forstöðumanns verð-
bréfasviðs. Ég hef ekki séð eftír því að hafa
komið aftur heim til Islands enda lentí ég í
farvegi sem ég er ánægður með.“
FRAMSÆKIÐ FYRIRTÆKI
Kaupþing Norðurlands er eina verð-
bréfafyrirtækið utan höfuðborgarsvæðis-
ins og segir Þorvaldur að fyrirtækið
gleymist oft í umræðunni um verðbréfafyr-
irtæki þar sem það sé ekki í póstnúmeri
101 eða 108 og norðar en Ártúnshöfðinn.
„En við gleymumst klárlega ekki meðal
þeirra sem eru þátttakendur á markaði, því
markaðshlutdeild okkar í hlutabréfavið-
skiptum á Verðbréfaþingi Islands er mjög
góð. Þar erum við á okkar syllu sem miðl-
arar. Við höldum okkur á ákveðnum svið-
um og erum í þeirri aðstöðu að geta frekar
neitað verkefnum heldur en hitt. Þeirri
stöðu viljum við halda. Við erum einnig
þokkalega íhaldssamir í t.a.m. ávöxtun
verðbréfasafna; við gerum okkur ákveðnar
hugmyndir um ávöxtun - þegar þeirri
ávöxtun er náð förum við út. Við bíðum þá
ekki í þeirri von að um frekari hækkanir
verði að ræða. Við höfum náð aðstefndri
ávöxtun.“
Starfsemi Kaupþings Norðurlands
skiptíst í þijú svið: Stjórnunarsvið, en und-
ir því er einstaklingsþjónusta, og síðan
eignastýringarsvið og verðbréfasvið. Ný-
leg könnun Ráðgarðs sýndi um 62% mark-
aðshlutdeild fyrirtækisins á Norðurlandi
þegar kom að einstaklingsþjónustunni. I
miðlun og markaðsviðskiptum, sérstak-
lega með hlutabréf, hefur komið fram að
félagið er með góðan hluta heildarvið-
skipta á Verðbréfaþingi. Eignastýringar-
sviðið fór af stað fyrir alvöru á síðasta ári
og hefur þjónustan notíð vinsælda og mjög
góður árangur náðst.
„Við byggðum eignastýringarsviðið ró-
lega upp, einfaldlega vegna þess að við
vildum ekki fara af stað með tölvubúnað
sem ekki gætí valdið verkinu. Fátt er fólki
kærara en peningalegar eignir þess, og því
algert skilyrði að upplýsingakerfi séu
nógu góð til að hægt sé að halda vel utan
um stöðu og hreyfingar. Peningar eru
einkamál fólks og við erum að fá tíl okkar
fólk, félög og fyrirtæki af öllu landinu í
eignastýringu, þ.e. þau láta okkur sjá um
ávöxtun ljármuna sinna með virkri stýr-
51