Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 52
lllÁltMÁI ■
Meðan lítið sveitarfélag í nálægð við Reykjavík getur fjármagnað sig á mjög góðum
kjörum, þótt að það standi illa, þá eru betur stödd sveitarfélög úti á landi með dýrari
fjármögnun - og það aðeins vegna þess að þau eru úti á landi,
Af hverju gæti ekki vel stætt sveitarfélag, eins og Akureyri, laðað til sín fyrirtæki með
því að bjóða lágt útsvar, lágt raforkuverð, lág hitaveitugjöld og skattafríðindi?
eignir og skuldir, og út frá því verður hugs-
anlega til eðlileg krafa, t.a.m. 6,10. Þegar
hins vegar kemur í ljós að fýrirtækið
starfar úti á landi hækkar ávöxtunarkrafan
um 20-30 punkta. Þessi afstaða er að sumu
leyti skiljanleg. Það er flestum mun eðlis-
lægra að einblína frekar á sitt nánasta um-
hverfi, sem þeir þekkja, en horfa með sem-
ingi á það sem óþekkt eða framandi er.“
Þorvaldur segist þeirrar skoðunar að
sveitarfélögin eða ríkið geti ekki spornað
við þeirri byggðaþróun sem er að gerast
með núverandi leiðum. „Það stöðvar eng-
inn að fljót renni í þann farveg sem því er
ætlað. Hins vegar geta sveitarfélögin úti á
landi reynt að breyta þeim farvegi með því
að laða til sín fyrirtæki með ýmiss konar
ívilnunum. Það er óskynsamlegt að á út-
svari sé lögbundið hámark og lágmark.
Af hverju gæti ekki vel stætt sveitarfé-
lag, eins og Akureyri, laðað til sín fyrirtæki
með því að bjóða lægra útsvar en það sem
núna er. Ennfremur væri hægt að gera út á
lágt raforkuverð, lág hitaveitugjöld og
skattafríðindi á næstu árum í stað þess að
fara gömlu leiðina - sem oftast er bein
þátttaka með hlutafjárkaupurn eða annars
konar beinum afskiptum. Væri þetta stað-
an hlytu forráðamenn fyrirtækja að setjast
niður og kanna hvar hagstæðast væri að
vera þegar staður fyrir nýja starfsemi væri
valinn; hvar besta kostnaðar- og starfsum-
hverfi væri. Sveitarfélög verða að keppa
um fyrirtækin og fólkið eins og verið hefúr
- en það þarf að rýmka samkeppnisskilyrði
þeirra og þá fer allt í sinn eðlilega farveg.“
Þorvaldur viðurkennir að það sé hollt
fyrir mann í hans stöðu að búa á Akureyri
og gera sér grein fyrir þessum hlutum. Það
séu margir kostir við Akureyri - þótt vissu-
lega ráði áhugaverð störf líklegast mestu
um hvar fólk velji sér búsetu og setjist að.
En það er þó ekki eingöngu vinnan sem á
hug hans allan. „Vinnan er að vísu áhuga-
mál númer eitt og ég vakna með þá spurn-
ingu á hverjum morgni hvað ég ætli að
gera þennan daginn, þessa vikuna, þennan
mánuðinn. Fyrir ufan vinnuna er það ílug-
ið sem fangar mig. Eg er einkaflugmaður
og er nokkuð duglegur að fljúga. Eg hef
mest gaman af hálendisflugi hvers konar
og þykir hvað skemmtilegast að fara í úti-
legur í flugvélinni. Pakka niður svefnpoka,
tjaldi og kælitösku og fara í ferð um landið.
Það kalla ég almennilegt frí og einu leiðina
til að gleyma vinnunni um stund, missa að-
eins jarðsamband í orðsins fyllstu merk-
ingu.“ m
Jundamöppur
Sölumöppur
Nafnspjaldamöppur
Nafnspjaldahyliti
Dagskinna
Seóla- og kortaveski
Cyklaveski
og margt fleira
Handunnið úrfyrsta fiokks hráefni,
kdlfskinni og hlýraleðri.
Sérmerkjum með nafni eða vörumerki.
LEÐURIÐJAN ehf.
Sími 561 0060 • Fax 552 1454
atson@simnetis
Verslun Laugavegi 15 • Sími 561 3060
52