Frjáls verslun - 01.01.1999, Blaðsíða 56
Austurstrœti 16 var selt Kirkjuhvoli ehf, eignarhaldsfélagi KarlsJ. Steingrímssonar athafna-
manns. Ásett verð var 290 milljónir en kauþverð hefur ekki verið gefið upþ.
FV-myndir: Geir Ólafsson.
□ eir aðilar sem hvað mest hefur
sópað að á þessum markaði er
Þyrping ehf. Þyrping er í eigu
fjölskyldunnar sem er kennd við Hag-
kaup. Það eru ekkja og börn Pálma Jóns-
sonar, stofnanda Hagkaups. Fyrir hópn-
um fer Sigurður Gísli Pálmason en auk
hans eru Jón, Ingibjörg og Lilja, börn
Pálma. Félagið á og rekur fasteignir og
sýslaði lengi með húseignir Hofs, þ.e.
hluta af Kringlunni, og fleira en hefur gert
tvo stóra samninga á síðustu mánuðum.
Annar var um kaup á m.a. Holtagörðum
þar sem t.d. IKEA verslunin er til húsa
sem er í eigu sömu aðila. Samningurinn
hljóðaði upp á um milljarð en eignarhalds-
félag Landsbankans, Hömlur, er einnig
þátttakandi með um 20% hlut en var jafn-
ffarnt seljandi.
ÞYRPING KAUPIR HÓTEL
Þyrping hefur síðan bætt um betur og
keypt Hótel Loftleiðir og Hótel Esju af
Flugleiðum fyrir tvo milljarða. Samtímis
voru gerðir leigusamningar við Flugleiðir
um leigu á hótelunum til 15 ára.
Þetta eru samtals samningar um fast-
eignakaup upp á um 3 milljarða. Með þess-
um kaupum er Hagkaupsfjiilskyldan að
færa það fé sem áður var bundið í verslun-
arrekstri yfir í fasteignir. Eins og kunnugt
er hefur fjölskykian að verulegu leyti dreg-
ið sig út úr rekstri matvöruverslana en þær
verslanir sem áður voru í eigu Hagkaups
og Bónuss eru nú reknar af Baugi hf.
Það sem mun vaka fyrir Þyrpingar-
systkinum er að setja saman „portfolio"
fjárfestinga þar sem blandað er saman
áhætturekstri og langtímaíjárfestingum.
Það er með öðrum orðum verið að dreifa
eggjunum í fleiri körfur.
Fyrir utan þetta hefur Hagkaupsljöl-
skyldan verið að kaupa meira húsnæði í
Kringlunni. Þau viðskipti eru ekki gerð í
Fasteign er I járfesting
Nokkrir þekktir fiárfestar hafa látið til sín taka á fasteignamarkaðnum
undanfarið. Stórar eignir fyrir 4-5 milljarða samtals hafa skipt
um eigendur og svo virðist sem margir telji fjármunum sínum vel borgið í
steinsteypu um pessar mundir.
56