Frjáls verslun - 01.01.1999, Side 60
rÁ
fjÁISMÁL
HVAÐ KOSTAR FERMETRINN?
Um þessar mundir kosta dýrustu plássin í Kringlunni um 3.500 krónur hver fermetri. í
miöbænum í Reykjavík mun hæsti leigutaxti vera rétt um 3.000 krónur en almennt
verö í miðbænum á bilinu 1.500 til 2.000 krónur.
Austurstræti 17, sem Sund hf. keypti á um
170 milljónir, hýsirm.a. 10-11 verslun.
BANKARNIR RÁÐA
Af viðtölum við stóra fjárfesta á þessu
sviði, hvort sem þeir kjósa að láta nafns
sins getið eða ekki, má ráða að mjög aukið
framboð á ijármagni og breyttar lánareglur
eiga mjög ríkan þátt í því hve eftirspurn eft-
ir atvinnuhúsnæði til íjárfestingar hefur
aukist. Það hefur einnig sín áhrif að þeir
sem lána féð telja fasteignir vænlegri lang-
tímaflárfestingu en margt annað. Fasteign-
ir skila ekki eins góðum arði til skamms
tíma, eins og t.d. verðbréf eða hlutabréf, en
þeir sem festa fé í húsum eru að horfa til
tveggja til þriggja áratuga í senn.
Af þessu má ráða að bankarnir hafi ef til
vill meiri áhrif á aukinn áhuga íjárfesta á at-
vinnuhúsnæði heldur en breyttar aðstæð-
ur og hærri leiga.
HAFA FASTEIGNIR HÆKKAÐ UM 20%?
Menn eru sammála um að ákveðinnar
hópsveiflu gæti í þessum efiium, þ.e. þegar
einn stór ijárfestir kaupir meira af húsnæði
en hann hefur áður gert fara aðrir að
hugsa sér til hreyfings í sömu átt. Það eru
tvímælalaust þeir Þyrpingarbræður sem
brjóta ísinn í þeirri tískusveiflu ijárfesting-
ar sem nú gengur yfir.
Fasteignaverð á þessum markaði hefur
hækkað undanfarin ár og það sama má
segja um leiguna. Kringlan og Miðbær
Reykjavíkur eru dýrustu svæðin til að
leigja á, líkt og verið hefur undanfarin ár.
Um þessar mundir kosta dýrustu pláss-
in í Kringlunni um 3.500 krónur hver fer-
metri. I miðbænum í Reykjavík mun hæsti
leigutaxti vera rétt um 3.000 krónur en al-
mennt verð í miðbænum á bilinu 1.500 til
2.000 krónur. Svo virðist sem þessar upp-
hæðir hafi hækkað um 20-30% á undan-
förnum tveimur árum og hafi reyndar
hækkað meira í miðbænum en í Kringl-
unni.
Samkvæmt fréttaskýringu um fast-
eignakaup sem birtist í Frjálsri verslun í
ársbyrjun 1997 virðist almennt vera álitið
að leiguverð á hvern fermetra sé í kringum
1% af því sem það kostar að kaupa þennan
sama fermetra. Sé sú viðmiðun enn í fullu
gildi hefur fasteignaverð á þessum mark-
aði hækkað ámóta mikið á tveimur árum
og leigutaxtinn, eða um 20-30%. SO
Fi/rirhafnarlaus
flutningur
milli landa
Það er góð
tiltinnins
að geta
treyót
tjastólki
fyrir búólcðatilutningi milli
landa. Við komum og pökkum
búóíóðmni þinni, flytjum liana
á átiangaitað, önnumit
tollatigreiðilu og tryggingar og
pökkum ívc upp þyrir þig á nýju
heimili.
£f nýja húinœðið er ekki alveg
tilbúið, bjóðum við jatmtiramt
búilóðageymiíu og þétt riðið
net umboðimanna okkar um
heim allan tryggir fyrirhatnar-
lauian filutning hvert iem er.
Smiðihötiði i
PO. Bcx 5230
125 Reykjavík
Sími 587 9700
Fax 587 9705
e-mail,- propacdútn.ió
- fyrirhafnarlaus flumingur