Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 64
lllÁRiYlÁL
Hvernig velja hagsýnir
fjárfestar hlutabréf?
Gestaþenni Frjálsrar verslunar um verdbréfaviöskipti er aö þessusinni
Siguröur B. Stefánsson, hagfræöingur og framkvœmdastjóri VIB.
janúar 1999 hækkaði hluta-
bréfavísitalan á Islandi um 7%
og síðustu tólf mánuði er
hækkunin 17%. Heimsvísitala hluta-
bréfa hefur hækkað um liðlega 21%
síðustu tólf mánuðina. Hlutabréf sýna
að jafnaði bestu ávöxtun til langs tíma
en tvær spurningar brenna þó alltaf á
vörum fjárfesta. Hve lengi geta hluta-
bréf haldið áfram að hækka og
hækka, og - hvernig á að fara að því að
velja réttu hlutabréfin?
Tökum fyrri spurninguna fyrst.
Það er hagnaður fyrirtælq'a sem leið-
ir til þess að hlutabréf geta haldið
áfram að hækka og hækka. Rétt eins
og starfsmönnum greiðast laun í
hverjum mánuði kemur partur af tekj-
um fyrirtækis, þ.e. hagnaðurinn, í hlut
eigenda. Hagnaður er ýmist greiddur
út sem arður til hluthafa eða er notað-
ur áfram í rekstrinum og hækkar þá
bókfært eigið fé. Ef arðsemi er 20% á
ári og arður er ekki greiddur út hækk-
ar eigið fé árlega um 20%. Með 20%
arðsemi (án arðgreiðslna) getur verð
á hlutabréfum hækkað um 20% árlega
að meðaltali án þess að verðmætis-
hlutföll, t.d. VH, raskist. Hlutabréf
geta því endalaust haldið áfram að
hækka - en mismikið milli fyrirtækja,
aðallega eftir því hve arðsemi þeirra
er há.
Síðari spurningin er hin eilífa:
Hvernig á að fara að því að velja
réttu hlutabréfin? Það er hægt að
græða á hlutabréfum eftir ýmsum
leiðum og ekki væri rétt að halda fram
að einhver ein þeirra sé betri en önn-
ur. Til að ná góðum árangri til langs
tíma er mikilvægast að velja sér „sína
FV-MYND: KRISTÍN B0GAD0TTIR
64
eigin” aðferð sem maður er sáttur við,
skilur og er tilbúinn að halda sig við til
lengdar.
Vel þekkt er að fjárfesta aðeins í
vaxtarfyrirtækjum (e. growth invest-
ing) eða kaupa aðeins hlutabréf í fyrir-
tækjum þegar þau sýnast á sérstak-
ORÐK) HEFUR:
Slgurður B. Stefánsson,
framkvæmdastjórl VÍB
Hlutabréf í fyrirtækjum, sem talin eru
sýna afburða hagnað næstu fimm eða tíu
árin, eru venjulega ekki ódýr. Góð ávöxt-
un næst þó sjaldan nema hlutabréf séu
keypt á hóflegu verði. Hagstæðast er að
VH hlutfallið sé lágt.
lega hagstæðu verði (e. value invest-
ing). Aðferðin sem hér er lýst er skyld
báðum og byggist í reynd á því að
velja arðsöm fyrirtæki á góðu
verði. Við nefnum hana aðeins
„hvernig hagsýnir íjárfestar velja
hlutabréf’.
1. Veljið félög sem hafa sýnt háa
arðsemi eigin fjár, t.d. 20% að jafn-
aði, síðustu fimm ár eða lengur.
Einnig má miða við þijú síðustu ár og
spá fyrir tvö næstu.
2. Veljið þau fyrirtæki í lið eitt
sem ykkur finnst líklegust til að sýna
háa arðsemi næstu fimm, átta eða
tíu árin. Hver þeirra eru t.d. líklegust
til að halda 20% arðsemi síðustu ára
áfram um margra ára skeið?
3. Hlutabréf í fyrirtækjum sem
talin eru sýna afburða hagnað næstu
fimm eða tíu árin eru venjulega ekki
ódýr. Góð ávöxtun næst þó sjaldan
nema hlutabréf séu keypt á hóf-
legu verði. Hagstæðast er að VH
hlutfall sé lágt en það er oft frá 30 og
upp í 70 í bestu fyrirtækjum. Ein leið
er að reikna hlutíallið á milli VH (t.d.
25) og arðsemi (t.d. 20%, hlutfallið er
þá 25/20 eða 1,25). í hlutfallinu felst
ákveðin viðurkenning á því að meira
sé borgandi fyrir hlutabréf í fyrirtækj-
um sem eru með afburða arðsemi.
Hagsýnir fjárfestar kaupa ógjarnan
hlutabréf í fyrirtækjum þar sem þetta
hlutfall er hærra en einn. Sumir miða
við 0,7 eða lægra. Ein leið er að gefa
sér góðan tíma til að velja fyrirtækin af
kostgæfni (liður eitt og tvö) en bíða
svo átekta þar til verð á hlutabréfum
lækkar næst og hlutfallið á milli VH
og arðsemi fellur niður fyrir einn. S3