Frjáls verslun - 01.01.1999, Síða 70
Magnús L. Sveinsson, formaöur Verslunarmannafélags Reykjavíkur, segir að símenntun sé
nauðsynleg því störf verði fljótt úrelt vegna tœkniframfara. „Fólk veröur að vera í stöðugri
endurmenntun til að laga sig að breyttum aðstæðum. “ FV-myndir: Kristín Bogadóttir.
erslunarmannafélag Reykjavíkur
stofnaði tímaritið Frjálsa verslun
árið 1939. Stéttarfélagið sjálft
varð 108 ára í janúar sl. en það var stofnað
árið 1891. í félaginu eru 14-15.000 fullgild-
ir félagsmenn og er það því stærsta stéttar-
félag landsins. VR hefur ötullega unnið að
málefnum félagsmanna sinna á þessum
árum. Mikið hefur áunnist á þessum rúm-
lega hundrað árum síðan félagið var stofn-
að. FV hafði samband við núverandi for-
mann þess, verkalýðsforingjann Magnús
L. Sveinsson, og bað hann að segja okkur
frá VR, hlutverki þess, áherslum, helstu
baráttumálum og fleiru. Magnús hefur
verið formaður VR frá 1980.
Magnús L. Sveinsson á að baki langan
feril í stjórnmálum, borgarmálum og
verkalýðsmálum. Þessi lærisveinn Jónasar
frá Hriflu hefur meðal annars verið borg-
arfulltrúi í 20 ár, varaborgarfulltrúi, forseti
borgarstjórnar og setið í borgarráði. Hann
hefur verið formaður fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík, setið í flokks-
ráði Sjálfstæðisflokksins, setið í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins og er nú varaþing-
maður.
Svo skemmtilega vill til að Magnús er
fæddur á sjálfum verkalýðsdeginum 1. maí
árið 1931. Foreldrar hans bjuggu þá á Uxa-
hrygg í Rangárvallahreppi þar sem hann
ólst upp til 17 ára aldurs. Þá flutti öll fjöl-
skyldan til Selfoss. Magnús er kvæntur
Hönnu Hofsdal Karlsdóttur, tannsmið og
verslunarmanni. Þau eiga saman þrjú
börn: Svein, sem starfar í Furu ehf, málm-
endurvinnslu, Sólveigu flugfreyju og Einar
Magnús, auglýsinga- og dagskrárgerðar-
mann. Fyrir átti Hanna soninn Ágúst Kvar-
an sem er prófessor við Háskóla íslands.
Frá Magnúsi sjálfum og yfir í stéttarfélags-
málin:
Verslunarmannafélag Reykjavíkur var
stofnað 27. janúar árið 1891, bæði af laun-
þegum og vinnuveitendum. Vinnuveitend-
ur voru aðilar að félaginu alveg til ársins
1955. Þá náðist samkomulag við þá um að
Baráttan færist
Magnús L. Sveinsson, formaður VR, segir að kjarabaráttan muni færast meira
70