Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 72
sem svarar 10% af byggingarkostnaði Eir-
ar. I dag svarar það til rúmlega 100 milljóna
króna. Heimilið hefur starfað í um fimm ár
og um 30 félagsmenn VR hafa notið þar
umönnunar. Þá veitti VR fé til nýbyggingar
sem er að heijast á vegum SÁÁ. Félags-
menn VR, eins og aðrir, hafa notið umönn-
unar SÁA og margir fengið bata. Þá hefur
VR einnig stutt við byggingu sem er að
hefjast hjá Reykjalundi en þar hafa margir
félagsmenn einnig notið endurhæfingar.
Árið 1986 stóð VR fyrir byggingu 60 þjón-
ustuíbúða fyrir eldri félaga sína sem seldar
voru á kostnaðarverði.
„Krafan mína erfjölskylduvœnna umhverfi. Vinnutími á íslandi er ennþá óheyrilega langur.
Við stefnum á 35 stunda vinnuviku," segir Magnús.
aðrar þjóðir að geta stillt okkur inn á þetta
vinnuform. Auðvitað er grundvallaratriði
að fólk geti lifað sómasamlegu lífi á þeim
launum sem það hefur fyrir 40 stunda
vinnuviku eða 35 þegar þar að kemur.“
„Þegar ég tala um fjölskylduvænt þjóð-
félag meina ég meðal annars að það þurfi
að lengja fæðingarorlof. Á hinum Norður-
löndunum er fæðingarorlofið eitt ár eða
lengra en hér einungis sex mánuðir. Það er
ekki nóg með að erfitt sé fyrir konurnar að
fara frá börnunum svo ungum, heldur er
að mínu mati einnig mjög mikilvægt fyrir
barnið og fjölskylduna að geta verið lengur
saman en þessa fáu mánuði. Sálarlega er
mjög þýðingarmikið fyrir barnið að mynda
þessi fyrstu tengsl við foreldra sína. Það
getur haft varanleg áhrif á sálarlíf barns ef
þessi tengsl eru rofin of fljótt. Við skulum
ekki gera lítið úr þessum þætti þegar við
tölum um fjölskylduvænt þjóðfélag. Það er
ekkert hlutverk merkilegra en foreldra-
hlutverkið."
AUKIN TRYGGINGAVERND
„Við höfum lagt áherslu á aukna trygg-
ingarvernd félagsmanna VR með tilkomu
sjúkrasjóðsins. Því munum við halda
áfram. Einnig höfum við lagt mikla áherslu
á að í slysa- og veikindatílfellum haldi fólk
sem mestum tekjum í Qarveru sinni. Ný-
lega höfum við aukið tryggingaverndina í
sjúkratilfellum og greiðir sjúkrasjóðurinn
nú sem svarar 80% af launum viðkomandi
félagsmanns í allt að 270 daga eftir að
greiðslum vinnuveitanda í veikindatilfell-
um lýkur.“
VR greiðir dagpeninga til foreldris sem
þarf að vera heima vegna veikra barna i allt
að 90 daga. Sjúkrasjóðurinn hefur ráðið úr-
slitum um mjög þýðingarmikla þætti í
þessu sambandi. Á síðasta ári var ákveðið
að hækka greiðslur til barna að 21
árs aldri vegna fráfalls foreldris.
Barn sem missir foreldri
sem er félagsmaður VR
fær greiðslu sem nemur
allt að 800 þúsund
krónur frá VR.
„Þá höfum við
stutt verulega við
bakið á foreldrum
sem þurfa að fara
utan með veik börn
þegar ekki hefur verið
hægt að gera aðgerðir
á þeim hér heima. í fyrra
greiddi VR 110 milljónir
króna úr sjúkrasjóði til 4.000
félagsmanna sinna.“
Eiginlegar Ijárfestíngar á
vegum VR eru engar að sögn
Magnúsar. Aftur á móti hefur
stéttarfélagið reynt að að-
stoða félagasamtök og stofnanir sem unnið
hafa að málum sem veita félagsmönnum
aðstoð, aðhlynningu og umönnun. Meðal
þeirra stofnana sem notið hafa stuðnings
VR er hjúkrunarheimilið Skjól og hjúkrun-
ar- og umönnunarheimilið Eir. VR greiddi
Friðþjófur O. Johnson
var formaður VR á
uþþhafsárum Frjálsrar
verslunar.
FORVARNARSTARF
„Besta ljárfesting sjúkrasjóðsins felst
að mínu mati í forvarnarstarfi. Mikilvæg-
ast er að vinna markvisst að því að koma i
veg fyrir að fólk verði veikt. Við veitum fé-
lagsmönnum okkar til dæmis styrki til
þess að stunda líkamsrækt í líkamsræktar-
stöðvunum. Það stuðlar að heilbrigði og
síður er hætta á að fólk í góðri jrjálfun missi
úr vinnu. Við veitum einnig styrk til sjúkra-
þjálfunar fyrir þá félagsmenn okkar sem
þurfa á henni að halda. Við styðjum við
krabbameinsskoðunina, hjartavernd og
ýmsa aðra staði þar sem fylgst er með
heilsunni og komið í veg fyrir alvarlega
sjúkdóma. Auðvitað er það dýrast þjóðfé-
laginu þegar menn forfallast og
geta ekki stundað vinnu.“
Að sögn Magnúsar hef-
ur fjölmargt áunnist frá
því VR var stofnað.
Fólk er fljótt að
gleyma því sem
áunnist hefur og fer
að líta á það sem
sjálfsagðan hlut.
Hann segir að það
sé ekki langt síðan
launþegar höfðu lítil
sem engin réttindi og
að það megi alls ekki
allt gleymast sem lagt
hefur verið í sölurnar til
þess að öðlast hin og þessi
réttindi.
„Menn huga ekki að því
að margt, sem fólki finnst
nú flokkast undir mannrétt-
indi, kostaði fólkið, sem barðist fyrir því,
miklar fórnir. Stofnun Lífeyrissjóðs Versl-
unarmanna var eitt af því fyrsta sem VR
barðist fyrir eftir að það varð hreint laun-
þegafélag. Lífeyrissjóðurinn var stofnaður
með samningum árið 1955 og sjóðurinn
72