Frjáls verslun - 01.01.1999, Síða 73
6 Qy/wafrnæli
tók til starfa 1. febrúar árið 1956. Hann er
nú orðinn stærsti lífeyrissjóður landsins og
er mjög mikilvægt kjaraatriði fyrir sjóðfé-
laga.
Menn fá yfirleitt ekki allt sem þeir vilja
í einum samningum. Þegar við sömdum
um lífeyrissjóðinn þurftum við að gera upp
við okkur hvort við vildum stofna lífeyris-
sjóð eða eiga aðild að atvinnuleysistrygg-
ingasjóði sem þá var verið að beijast fýrir í
landinu. Verslunarmenn ákváðu að semja
um lífeyrissjóðinn frekar þar sem ekki var
atvinnuleysi í stéttinni. Aðrir sömdu hins
vegar um atvinnuleysistryggingasjóð sem
tryggði það að hann var stofnaður með lög-
um. Við treystum því að síðar meir mynd-
um við semja um aðild að atvinnuleysis-
tryggingasjóði.“
„Það var ekki sjálfgefið að við fengjum
aðild að atvinnuleysistryggingasjóði. Við
þurftum að heyja verkfall árið 1966 til þess
að fá aðild eins og aðrir launþegar höiðu
haft frá árinu 1955. Það voru verkamenn og
verkakonur á Reykjavíkursvæðinu sem
fórnuðu eins og hálfs mánaðar launum til
þess að ná fram réttindum um atvinnuleys-
isbætur 1955. Lægst launaða fólkið tryggði
að atvinnuleysistryggingasjóður varð til.
Oft hefur það einmitt komið í hlut lægst
launaða fólksins að fórna miklu lil þess að
tryggja ýmis réttindi sem menn búa við í
dag og halda að séu sjálfsögð mannréttindi.
Þess má geta að árið 1997 voru greiddar
tæpar 500 milljónir króna úr atvinnuleysis-
tryggingasjóði til félagsmanna VR.“
LENGRA SUMARFRÍ
Magnús segir að þess sé skemmst að
minnast að vinnuvikan haíi verið sex dagar
eða 48 stundir. Núna er vinnuvikan unnin á
fimm dögum eða 40 stundum. Sumarfrí
hefur lengst úr 18 dögum í 27 daga á síð-
ustu áratugum. Laugardagar eru ekki
lengur taldir með í sumarírium. Hér er um
mikla framför að ræða og merkur áfangi á
leiðinni að fjölskylduvænna umhverfi.
„Fjölskyldan fær meira svigrúm til þess að
vera saman,“ segir Magnús.
„VR hefur samið um þýðingarmikið
ákvæði um slysa- og örorkutryggingu í
vinnutíma. Greiðslur í veikindaforföllum
hafa lengst úr tveimur mánuðum í sex
90®
Myndir afforverum Magnúsar, öllum formönnum VR frá upphafi - en félagið varstofnað hinn
27. janúar árið 1891, eða fyrir 108 árum.
mánuði. Sjúkrasjóður var stofnaður árið
1979 og veitir hann gríðarlega miklar
tryggingar eins og áður hefur verið nefnt.
Akvæði er um fæðingarorlof en við leggj-
um mikla áherslu á að það verði lengt sem
fýrst.
Ymis ákvæði um aðbúnað hafa einnig
unnist. Það má ekki gleymast að menn eru
stóran hluta ævi sinnar á vinnustaðnum.
Það er mjög þýðingarmikið að vinnustað-
urinn sé aðlaðandi og góður. A þetta hefur
verkalýðshreyfingin lagt áherslu. Eg verð
að segja fyrirtækjum til hróss að margir
vinnustaðir eru til mikillar fyrirmyndar
varðandi aðbúnað starfsmanna."
„Áður fýrr voru ákvæði um afgreiðslu-
tíma verslana í samningum okkar en þau
voru stöðugt brotin. Reykjavíkurborg
hafði einnig reglugerð sem kvað á um af-
greiðslutíma verslana. Sú reglugerð var
síðan afnumin, meðal annars vegna þess
að sveitarfélögin í nágrenni borgarinnar
liöfðu engar slíkar reglugerðir. Verslanir í
nágrannasveitarfélögunum gátu því haft
opið lengur en verslanir í Reykjavík. Það
gekk ekki, jafnl verður að ganga yfir alla.
Það er auðvitað sjálfsagt að veita eins mikla
þjónustu og hægt er á hveijum tíma. Það
réttlætir þó ekki að vinnulími fólksins sem
starfar í verslunum verði óheyrilega lang-
ur og að þetta verði hálfgerðar þrælabúðir.
Við höfum beitt okkur fýrir því að
tryggja með fýrirtækjasamningum, sem
gerðir hafa verið í kjölfar aðalkjarasamn-
inganna í mars 1997, að komið yrði á vakta-
fýrirkomulagi. Það verður að segjast eins
og er að í stórmörkuðunum er komið
nokkuð skikk á þetta með nokkrum und-
antekningum þó.“
Verslunarmannafélag Reykjavíkur var stofnaö 27. janúar árið 1981, bæöi af
launþegum og vinnuveitendum. Vinnuveitendur voru aðilar aö félaginu til ársins 1955.
Frjáis verslun hefur að geyma mjög merkilega sögu.
Það verður aldrei ofmetið hversu mikla þýðingu útgáfa blaðsins hefur fyrir söguna.
Magnús segir að staða verslunarfólks í
dag sé ekki óáþekk því sem hún er hjá öðr-
um launþegum. Verslunar- og skrifstofu-
fólk býr við það að hluti þess er á lægstu
Gæðahirslur á góðu verði.
Fagleg ráðgjöf og þjónusta.
JbOfnasmiöjan
Verslun Háteigsvegi 7 • Sími 511 1100
Verksmiðja Flatahrauni 13 • Sími 555 6100
73