Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 102
Guölaugur Þór Þórðarson er kynningarstjóri hjá Fjárvangi en er einnig stjórnmálamaður Hann segist þó
flokka stjórnmál sem ákugamál. FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
Guðlaugur Þór
Þórðarson, Fjárvangi
itt starf er að vera
kynningarstjóri fyrir
Fjárvang. Það felst í
því að kynna starfsemi og þjón-
ustu fyrirtækisins fyrir við-
skiptavinum og starfsmönn-
um,“ segir Guðlaugur Þór
Þórðarson.
Guðlaugur er áreiðanlega
þekktari fyrir afskipti sín af
stjórnmálum en nokkurt starf
sem hann hefur gegnt. Guð-
laugur var formaður SUS um
árabil, er borgarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavik
og varaþingmaður sama flokks
á Vesturlandi.
„Um þessar mundir eru það
lífeyrismálin sem taka allan
minn tíma. Fjárvangur er með
stærsta séreignarsjóð landsins
og lífeyrismál eru alla jafna
ffemur flókin en eru um þessar
mundir í uppnámi eftir breyt-
ingar á lögum.
Eg held kynningarfundi um
lífeyrismál og kosti fólks í þess-
um efnum fyrir vinnustaði, fé-
lagasamtök og blátt áfram alla
sem óska. Til mín berst og
fjöldi fyrirspurna frá sölufólki
Fjárvangs sem er í upplýsinga-
leit fyrir sína viðskiptavini. Það
vakna eðlilega margar spurn-
ingar þegar aðstæður breytast
og ég þarf einnig að þjálfa
starfsfólk hér inni svo það má
segja að mín kynning sé bæði
inn á við og út á við.
Þetta á auðvitað aðeins að
vera hluti starfsins því ég sinni
einnig markaðsmálum en um
þessar mundir skyggja lífeyris-
málin á allt annað. Eg er einnig
að hanna reikniforrit sem er
hjálpartæki fyrir starfsfólk
Fjárvangs og aðra til að reikna
út lífeyrisréttindi einstakra við-
skiptavina. Margir þarfnast
ráðgjafar því úöldi sjóða er mik-
ill og ólíkar reglur í gildi.“
IHHB FÓLK
Guðlaugur lauk prófi í
stjórnmálafræði 1996 með við-
skiptafræði sem aukafag og
hóf þá störf hjá Fjárvangi.
Hann hætti þó fljótlega til þess
að gerast útvarpsstjóri hjá Fín-
um miðli en kom síðan aftur til
Fjárvangs fyrir um ári.
„Vinnuveitendur mínir gera
ráð fyrir því að ég þurfi að
sinna stjórnmálastarfinu og
sýna mér skilning. “
En hvaða kostum þarf góð-
ur kynningarstjóri að vera
gæddur?
„Hann þarf að eiga gott með
að setja sig inn í mál, draga
saman aðalatriði þess og setja
þau fram á einfaldan hátt. Oft
hefur maður stuttan tíma til
þess að kynna fyrir væntanleg-
um viðskiptavinum kosti máls
og þá gildir að vera gagnorður
og sannfærandi. Þetta á við um
ritað mál einnig. Starfið felst í
sinni einföldustu mynd í miðl-
un upplýsinga. Margt af því
sem kemur sér vel í pólitík get-
ur átt við mína starfslýsingu.“
Guðlaugur segir að hann
hafi ákveðið að helga sig póli-
tisku starfi á vettvangi borgar-
mála. Hann segist skilgreina
stjórnmál sem ástríðu og í
rauninni dýrt áhugamál því það
sé afar tímafrekt að sinna þeim.
Guðlaugur segist ekki hafa
margar tómstundir aflögu en
hafi gaman af hvers kyns
íþróttaiðkun.
„Eg ann úölbreytni og mér
leiðist endurtekning. Af þessu
leiðir að ég stunda margar
íþróttir sem hentar mér vel því
ég hef áhuga á mörgu. Eg
skokka, syndi, spila skvass, fer
í líkamsrækt, spila fótbolta,
geng á skíðum. Ég hef gaman
af því að sækja tónleika, fara í
leikhús og fara á hestbak. Ég
tek svona skorpur í þessu eftir
árstímum.“
Guðlaugur er einhleypur og
barnlaus enn sem komið er en
telur ekki rétt að útiloka breyt-
ingar á því. III
TEXTI: PALL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
102