Frjáls verslun - 01.01.1999, Síða 106
#
FÓLK
Aðalheiður Héðinsdóttir rekur Kaffitár sem samanstendur af kaffibrennslu og tveim-
ur kaffiverslunum. FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
lúxusvöru og því er þriggja vikna gamalt kaffi ónýtt
í okkar huga. Okkar eigin búðir fá nýtt kaffi 2-3var
í viku.“
Kaffitár er níu ára gamalt íyrirtæki sem skiptist
í þrjár einingar. Kaffibrennslan í Njarðvík hefur
verið starfrækt frá 1990. Fyrir ijórum árum var
opnuð kaffibrennsla og kaffihús og verslun undir
nafni Kaffitárs í Kringlunni og fyrir einu ári var svo
opnuð önnur Kaffitársverslun í Bankastræti.
Á þessum tíu árum sem Aðalheiður hefur rekið
fyrirtæki sitt hefur vöxtur þess verið jafn og stíg-
andi og útlitið er gott. Á dögunum var Aðalheiður
kjörin maður ársins á Suðurnesjum og í því felst
viðurkenning á því starfi sem hún hefur unnið til að
breyta kaffimenningu einnar mestu kaffidrykkju-
þjóðar heimsins, Islendinga.
„Þetta er þjóðardrykkur okkar og við drekkum
um 8 kíló á mann af ári. í Bandaríkjunum er þessi
tala kringum 4 kíló á ári. Félagslegt hlutverk kaffi-
drykkju er mikið en minna hefur verið horft á kaff-
ið sjálft."
Aðalheiður dvaldi í Madison í Bandaríkjunum í
rúmt ár skömmu fyrir 1990 þar sem eiginmaður
hennar var í námi. Þar kynntist hún kaffidrykkju
og kaffibrennslu að hætti þarlendra og heillaðist af.
„Eg máttí ekki vinna svo ég samdi við eiganda
kaffihúsa og kaffibrennslu um að fá að vinna hjá
honum og læra kúnstina að brenna kaffi. Það var
mjög skemmtílegt og lærdómsríkt.
Þetta er ekki iðngrein og menn skiptast í fýlk-
ingar um það hvort kaffibrennsla sé list eða vísindi.
Það er margt hægt að mæla í þessu en ekki allt. I
okkar fyrirtæki er allt handgert og brennarinn
horfir á baunirnar og metur hvenær þær eru full-
brenndar.
Undirstaða míns fýrirtækis er traust og gott
starfsfólk í kaffibrennslunni sem hefur unnið með
mér allan tímann og sem ég treysti fullkomlega.
Við höfum fetað okkur áfram, fyrst í allar búðir á
Suðurnesjum, svo í Reykjavík hægt og rólega og
Bg byrja daginn oftast í kaffi-
brennslunni í Njarðvík og
fyrsta verk mitt er að jafnaði
að smakka kaffi. Kaffismökkun er
ekki ólík vínsmökkun. Eg og Sigriður,
kaffibrennarinn minn, smökkum
hverja tegund og hveija brennslu til að
ganga úr skugga um að framleiðslan
sé eins og hún á að vera. Eftir það fer
ég að sinna ýmsum erindum sem flest
eru rekin gegnum síma en ég kem nú
orðið lítíð nálægt daglegri framleiðslu.
TEXTI: PÁLL ÁSGEIR ÁSGEIRSSON
Upp úr hádeginu fer ég oftast til
Reykjavíkur," segir Aðalheiður Héð-
insdóttir í Kaffitári.
„Það fer mikill tími í að hafa sam-
band við viðskiptavinina, sérstaklega
matvöruverslanir og veitíngahús. Við
viljum að kaffið okkar sé nýbrennt í
búðunum og setjum því ekki meira en
vikuskammt í hverja verslun. Kaffitár
afskrifar kaffi sem er orðið þriggja
vikna gamalt. Þá hefur það misst suma
afþeimeiginleikum semgerðu þaðað
síðan komu okkar eigin búðir og vonandi verða
þær fleiri í framtíðinni."
Eiginmaður Aðalheiðar er Eiríkur Hilmarsson,
aðstoðarhagstofustjóri. Þau búa í Reykjanesbæ og
eiga þrjú börn, 18-12 ára. Aðalheiður segist aðal-
lega sinna ijölskyldunni þegar tómstundir gefast
og ferðalög innanlands með henni séu efst á óska-
listanum.
„Svo reyni ég að stunda svolitla hreyfingu, er
nýbyrjuð í spinningtímum og mér finnst mjög gam-
an að fara á skíði.“ SD
106