Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1942, Page 30
4
414
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
■....... . ..J .... ■■■ — . ■ .... ......
FJ AÐRAFOK
Romain Rolland, rithöfundurinn
frægi segir í bók sinni, „Jean Christ-
ophe“:
* Dýrin gefa umhverfinu gaum. Hós-
dýr verður gott eða vont, undirförult
eða hreinskilið, viðkvæmt eða tilfinn-
ingarlaust, ekki aðeins í samræmi við
það, sem húsbóndi þess kennir því,
heldur einnig í samræmi það það, sem
húsbóndi þess er.
„Jeg er fæddur fimmta dag fimmta
mánaðar ársins. Húsið, sem jeg bý i
er númer fimm við götuna. Jeg bý á
fimmtu hæð og hef fimm herbergi.
Og við veðreiðarnar veðjaði jeg á
hest númer fimm í fimmta riðli“.
„Varin hann?“
„Nei, hann varð númer fimm“.
Á hjarta mannsin eru sams konar
dyr og á Hótel Borg. Um leið og ný
ást gengur inn um þær, fsr sú út-
kulnaða út.
„Góðan daginn. Jeg er hjerna með
dálítið, sem jeg hef fundið upp.
Þessi uppfinning hefur kostað mig
þrotlaust starf I 25 ár. Hún er margra
millíóna virði“.
„Nú og hvað viljið þjer fá fyrir
hana?“
„Fimm krónur - eigum við að segja
fimm krónur?“
„Heyrðu lagsi, þú drekkur alt of
mikið“.
„Hvaða vitleysa. Á hverjum morgni,
þegar jeg vakna, þá langar mig í
snaps. Nú — og þegar jeg er búinn
að fá mjer einn lítinn, þá verð jeg
strax alt annar maður. Nú — og það
er sá náungi, sem genguT um síþjór-
andi allan daginn".
★
Kvenfólk er vitrara en karlmenn.
Það veit minna, en skilur meira.
• ★
„Skrambi ertu orðinn horaður“.
lrJá, jeg er byrjaður að megra mig.
Jeg ljettist um 20 pund á mánuði“.
„Jæja, þú verður þá alveg horfinn
einhvern tíma í september".
★
Margar konur gera menn að fíflum.
En sumar gera fífl að mönnum.
★
Engir tveir menn eru eins. Og báðir
eru því fegnir.
★
Eiginmaðurinn: Veistu það, Inga,
að vísindamennimir hafa fundið það
út, að konan þarf meiri svefn en mað-
urinn?
Eiginkon&n: Nú og hvað svo?
Eiginmaðurinn: Jeg meina aðeins að
þú eigir ekki að vaka og bíða eftir því,
að jeg komi heim i nótt.
★
Málarinn: I>egar jeg mála eða skapa
listaverk, þ4 er það altaf af innri þörf.
Bóndinn: Auðvitað... Þjer eruð
svangir... þjer þarfnist peninga.
Feitur maður leitað ráða hjá lækni
um það, hvernig hann ætti að fara
að því að megra sig. Læknirinn ráð-
lagði honum að fara út £ skóg á hverj-
um degi og höggva við.
Viku seinna kom maðurinn til lækn-
isins, sem þá spurði hann, hvemig hon-
um gengi með megmnina.
„Jeg hefi höggvið skóg reglulega i
4 tíma á dag“, svaraði maðurinn.
„Og þjer emð ekki farair að finna
afleiðingamar", spurði læknirinn.
„J.ú, vissulega, nú hefi jeg ekki
nema þrjá fingur á annari hendinni og
annað lærið er flakandi í sárum“.
★
„Þa8 var skírnarveisla hjá ólsen
í gær“.
„Nú, og hvaÖ var dóttirin látin
heita?“ '
„Hún átti að heita Sara. En af þvl
að guðmóðirin stamaði, þá var stelp-
an skírð Sahara".
★
Vinurinn: Jeg hefi lesið eina bók
eftir þig.
Skáldið (brosandi): Þá síðustut
Vinurinn: Já, það vona jeg.
★
„Hvað gerðist árið 1483 V'
„Þá fæddist Lúther“.
„Nú, en hvað gerðist árið 1487?"
„Nú, þá varð Lúther 4 ára".