Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Síða 2
582 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS JÓLAHLGVEKJA GLEÐIFREGIMIN eftir Bjarna Jónsson vígslubiskup H\rAÐ er í fréttum? Á hverj- um degi heyra menn þessi orð: „Nú verða sagðar fréttir“. Það er að morgni, um hádegi, síð- degis og að kvöldi hlustað á er- lendar og innlendar fréttir. Á uppvaxtarárum mínum var lesið í vikublaði stutt ágrip af merkustu viðburðum utan úr heimi, og þannig fengu menn fregnir um ýmislegt, er gerst bafði á síðustu 3 mánuð- um. En nú berast tíðindin samstundis. Það er hlustað og þvmæst lesa menn um hið sama 1 dagbiöðunum. Hvað er að frétta? Á hverju ber mest? Heyrast ekki á hverjum degi helfregnir, slysafréttir, sorgar- tíðindi, frásagnir um deilur, óírið og hatur? Það er eins og finnist ylur af vermandi sólar- geisla. ef sögð eru gleðitíðindi. En nú koma jólin, og hvað er þá að frétta? Um jólin er talað löngu áður en þau koma. Menn kannast við svo margt, sern byrjar með orðinu jól, það er talað um jóiagjafir, jólatré, jólaskemmtun, jólaverslun jólasölu, jólaös og jólaþreytu, og mörg fleiri heiti má nefna. Hve oft er sagt jól áður en jólin koma? Áreiðanlega bíða menn svo eftir margvíslegum jóiafréttum. En hvað sem öllu þessu líður, ölJu sem snertir hin ytri jól, þá koma hin réttu jól á ákveðn- um tíma, og þá verður talað um jólahátið, jólamessur, jóla- ræður, jólasálma og jólagleði. Jólin koma. Vér fögnum þeim nú, eins og svo oft áður, því að hinar helgustu minn- ingar eru tengdar við þá stund, er búið var að kveikja á jóla- kertinu. Fagnandi höfum vér sagt og segjum nú: „Kom blessuð þú nótt, sem boðar frið! Kom blessuð til vorra stranda“. Það verður margt í fréttum nú á jólunum. En hugfangin hlusta ég eftir jólafréttinni, hinni einu frétt, fregninni með ákveðnum greini. Hátíðin er komin, og í hjarta mínu skulu enduróma þessi orð: Nú gleðiíregn oss flutt er ný úr fögrum himinsölum. Hver er þessi fregn, þessi óvíðjafnanlega gleðifregn? Svarið er: „Sá Guð, er hæst býr hæðum í, vill hér í jarðar- döJum oss búa hjá“. Guð sjálf- ur viil búa hjá oss Hér er ekki um skvndiheimsókn að ræða, heldur um gleðiríka dvöl. Veitum eftirtekt þessu heil- aga jólaorði: „Orðið varð hold — og hann bjó með oss, fullur náðar og sannleika“. Jólin koma, en umfram allt, Drott- inn kemur, og vill búa með oss. Þessi er gleðifregn jólanna. Vér þekkjum söguna, er seg- ir frá þessari fregn. En er það nóg að kunna söguna? Nei. En þegar ég finn, að þessi fregn er send mér, og ég tek fagnandi á móti henni, þá fyrst á ég sanna jólagleði og sælan jóla- frið. Fregnin er send mér, ég tek fagnand' á móti henni og segi með þakklátri gleði: „Hið

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.