Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Qupperneq 27
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
607
fjörð, en hann lét seinna gera
þarna eitt af stórhýsum bæarins
(Aðalstræti 8) og var það stunchim
nefnt Fjalakötturinn, vegna þess
að þar var leikhús. Þar hóf Gamla
Bíó starfsemi sína.
10. Þetta var hús Þórðar Jónas-
sonar dómstjóra, en nú bjó hann
ekki í því, þar sem hann hafði
verið settur stiftamtmaður ogvarð
að flytja upp í „Kóngsgarð“, sem
nú kallast Stjórnarráð. En í hús-
inu var Óli P. Finsen, sem þá var
verslunarstjóri hjá W. Fischer.
Hann var faðir Vilhjálms Fin-
sens stofnanda Morgunblaðsins.
Og þar sem hús Þórðar Jónasson-
ar stóð, stendur nú Morgunblaðs-
húsið.
11. Þar bjó Robert Peter Tærge-
sen kaupmaður ásamt konu og
börnum. Þarna hafði áður staðið
krambúð kóngverslunarinnar, sem
flutt var úr Örfisey um 1780. Hús-
ið hafði Tærgesen keypt 1850, rif-
ið það og reist þar nýtísku stór-
hýsi, eitt hið mesta er þá var til í
bænum. Þetta hús stendur enn og
er þar nú Veiðarfæraverslunin
Geysir. s
Austurstræti.
Tölusetning húsa í Austurstræti
virðist hafa verið hagað öðru vísi
en í öðrum götum, eftir því sem
stendur í kirkjubókinni. Þar er
byrjað að telja að norðverðu og
vestur eftir, en síðan hlaupið aust-
ur undir læk og húsin að sunnan
verðu því næst talin í röð að aust-
an. Verður þetta að skýrast eftir
því sem húsin verða talin.
2. Þetta var hið svonefnda Stólpa
hús, sem byggt hafði verið á Græna
bæarlóð. Þar bjó Jónas Guðmunds-
son skólakennari. Þar bjó einnig
Rasmus Peter Hall, sem hafði
verið veitingaforstjóri í klúbbnum,
en var nú farinn að fást við ljós-
myndasmíði. í þessu húsi var og
i
Davíðshús
og Ló.
skurðar-
stofan,
reist á
rústum
gamla
Víkur-
bæarins.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, fertug
saumakona og hafði 2 námsmeyar.
Um hana kvað Gröndal:
Ingibjörg Guðmundsdóttir góð
götuga brók með prjónum nælir
og klökk í huga kjálkann skælir,
því mygla tekur meyarblóð.
Þar sem Stólpahúsið stóð er nú
Búnaðarbankinn.
3. Nú kemur húsið sem Káetu-
Pétur lét reisa á austurhluta Stýri
mannslóðarinnar. Þarna hafði
Sveinbjörn Egilsson skáld átt
heima, en þetta ár keypti húsið
Einar nokkur Bjarnason, kallaður
„stutti“, Árnesingur að ætt. Bjó
hann nú þarna og hafði verslun.
Hjá honum leigði skósmiður, sém
Paul Johannes Nicolaisen hét.
Seinna fékk þetta hús nafnið Velt-
an. Þar stóð seinna Austurstræti
1, en var rifið á þessu ári og er
nú lóðin auð.
Þá verðum vér að bregða oss aust
ur að læk og kemur þá:
4. Húsið sem ísleifur Einarsson
dómari lét byggja. Nú var þetta
yfirréttarhús og bjó þar enginn
nema C. P. Steenberg fimleika-
kennari. Hann hafði áður gegnt
lögregluþjónsstörfum og fékk þá
íbúð í húsinu og sat þar sem fast-
ast þótt hann hefði sagt af sér
lögregluþjónsstarfinu og Árni
Gíslason leturgrafari hefði tekið
við því. Var nokkur óánægja út
af því að Steenberg skyldi sitja
áfram í íbúðinni, sem aðeins var
ætluð lögregluþjóni. — Þetta hús
stendur enn, 159 ára að aldri, og er
kunnast undir nafninu Haraldar-
búð.
5. Þar bjó Árni Thorsteinsson
landfógeti og hafði nýlega keypt
húsið. Þetta hús var reist 1806 og
upphaflega kallað „Svenska húsið“
vegna þess að það .var flutt hing-
að tilhöggvið frá Svíþjóð. Árni
landfógeti stækkaði það mikið.
Elzti hluti hússins er nú 155 ára
gamall. Þarna er nú Hressingar-
skálinn.
6. Þetta var hið svokallaða
„Jordemoderhús“, kennt við fyrstu
lærðu yfirsetukonuna hér, konu
Lars Möller lögregluþjóns, en
hann mun hafa reist húsið. Þarna
bjó Kristín Benediktsen ekkja og
Kristjana Norðfjörð dóttir hennar
með barn sitt. Nú er þarna ný-
bygging Almenna bókafélagsins.
7. Þar bjó Pétur biskup Péturs-
son og Sigríður Bogadóttir kona
hans, og var húsið þá altaf kallað
Biskupshúsið. Seinna var þarna
verslunin Gothaab sem brann 1915
og nú er þarna Lyfjabúð Reykja-
víkur.