Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1961, Page 30
510
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Þorkelsson í norðurendanum sína
prestskapartíð.
7. Þar bjuggu Jóhannes Jónsson
snikkari og Helga Gísladóttir-kona
hans. Hafði hann reist þetta hús
1849. Seinna eignaðist Andrés
Andrésson „hjá Bryde“ húsið og
reisti þar tvílyft hús, er stend
ur enn. Þar er nú tengdasonur
hans Kornerup-Hansen heildsali
(Suðurgata 10).
Tjarnargata.
1. Þetta var timburhús reist um
1830 þar sem hinn svonefndi
Brúnsbær hafði verið áður. Þar
bjó nú Gísli Magnússon adjunkt.
— Húsið hvarf þegar Steindórs-
prent var reist.
2. Þarna hét áður Teitsbær,
kenndur við Teit Sveinsson vefara.
Oddur Guðjónsson trésmiður
breytti bænum í timburhús. Nú
bjó þar ekkja hans, Ingibjörg
Jakobsdóttir alþm. Péturssonar á
Breiðamýri. Hún var yfirsetukona
og hafði tekið við af Ragnheiði í
Brunnhúsum. — Þetta hús er nú
horfið.
3. Suðurbær. Þar bjó Guðmund-
ur Hannesson böðull með Margréti
konu sinni. Annars voru Suður-
bæirnir tveir, en vestri bærinn var
ekki talinn til neinnar götu. Þar
bjó þá Björn Hjaltested járnsmið-
ur. Báðir munu Suðurbæirnir hafa
verið rifnir árið eftir og þótti ekki
eftirsjá að þeim.
4. Þar bjó Jóhanna Petersen
ekkja Jóhanns Péturssonar gull-
smiðs, ásamt Guðrúnu dóttur sinni
gjafvaxta. — Þetta hús lét Parker
konsúll reisa 1813. Nú var það kall
að Petersenshús. Árið eftir keypti
Tærgesen það og lét reisa þar nýtt
hús, sem enn stendur, Tjarnargata
5 A.
5. Þarna stóð smiðja innrétting-
anna, síðar Zöggersbær, kenndur
við Jóhannes Zoega. Þar var reist
timburhús 1847 og nú bjó þar
Jónas H. Jónasson verslunarstjóri
og Kristjana kona hans, systir
Geirs Zoéga útgerðarmanns. —
Þetta hús gekk síðar undir nafn-
inu Þerneyarhús, en Gunnar Ein-
arsson kaupmaður reif það og
byggði þar stórhýsi. Þar var sein
ast kaffihúsið Tjarnarlundur, en
brann og stendur lóðin nú óbyggð.
Lækjargata.
1. Lækjarkot. Þar bjó Guðrún
Ólafsdóttir ekkja Þorkels Runólfs
sonar, Klemenzssonar. Hjá henni
leigði Einar Einarsson múrari. —
Lækjarkot er nú horfið úr sögunni
fyrir löngu.
3. Þar bjó nú Helgi Thorder-
sen biskup og Ragnheiður kona
hans, og hjá þeim var Stefán son-
ur þeirra 32 ára gamall. Seinna
eignaðist Bjarni á Esjubergi hús
þetta og síðan Þorlákur Johnsen
tengdasonur hans. Stendur húsið
enn, en hefir verið stækkað frá
því sem það var upphaflega. Nú
hefir Seðlabankinn keypt það.
4. Þetta er húsið á hominu á
Lækjargötu og Austurstræti, er
Knudtzon lét reisa 1852. Nú býr
þar Ólafur prófastur Pálsson á-
samt konu sinni Guðrúnu Ólafs-
dóttur og 8 börnum. — Húsið eign
aðist síðar Sigfús Eymundsson bók
sali og hefir það löngum verið við
hann kennt.
Lækjartorg.
1. Thomsenshús. Þar bjó H. Th.
A. Thomsen kaupmaður og móðir
hans. Þetta hús var mikið stækkað
seinna, en var rifið í sumar og
stendur lóðin auð eftir.
2 Þar bjó Sigurður Melsted dos-
ent og Ástríður kona hans. — Þetta
var fyrrum íbúðarhús Gísla Símon
arsonar kaupmanns, sem fyr get-
ur.
Hafnarstræti.
I. Þar bjó Edward N. G. Siemsen
kaupmaður með konu sinni Sigríði
Þorsteinsdóttur frá Brunnhúsum
og 8 börnum. — Þetta hús stendur
enn og eru þar nú „Dráttarvélar".
' 2. Þar bjó Sigurður Sivertsen
kaupmaður sonur Bjarna riddara.
Seinna var bætt hæð ofan á þetta
hús. Stendur það nú sem klettur
upp úr hafi umferðarinnar eftir
að „Hekla“ var rifin.
5. Józka húsið. Þar var verslað
niðri, en uppi bjó Chr. L. Möller
verslunarmaður með konu og börn
um. Hjá þeim leigði Ingibjörg Han
sen ekkja með Morten Hansen son
sinn, þá 6 ára gamlan. — Seinna
var bygð hæð ofan á húsið og það
gert að gistihúsi og kallaðist „Hót-
el Alexandra“. Nú heitir það að-
eins Hafnarstræti 16.
6. Þetta var verslunarhús Moritz
Bierings kaupmanns, en hann
hafði farist 1858 og bjó nú í hús-
inu Eiríkur Magnússon, síðar meist
ari í Cambridge, og kona hans Sig-
ríður Einarsdóttir frá Brekkubæ. —
Á þessu ári var bænum gefið húsið
handa barnaskóla, og hafði þá eng
inn barnaskóli verið í bænum síð-
an 1848. — Nú stendur þarna Lög-
reglustöðin.
8. Þetta var verslunarhús Knudt
zons og bjó þar Anton Peter
Wulff verslunarstjóri hans. —
Þarna er nú verslunin Edinborg.
9. Þar var kallað Robbshús og
þar bjó Carl Ole Robb. — Löngu
seinna eignaðist Gunnar Gunnars-
son kaupmaður þetta hús.
10. Þar bjó Hannes kaupmaður
Johnsen og kona hans Sigríður
dóttir Símonar Hansens, og er hjá
þeim Simon sonur þeirra er síðar
tók við verslun föður síns. — Nú
er þarna Bókabúð Norðra og hús
ið eitt af elztu húsum í bænum.
II. Þetta var verslunarhús Hav-
steens og stóð þar sem gamla