Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Page 15
Norðurhlíðar Heimakletts. Greinarhöfundur-
inn tók allar myndirnar.
Lundinn horfir i hraun-
ið og bæinn ofan frá
Klifinu.
Hún bregður stórum srip yfir umhverfíð: Aida aldanna eftir Einar Jónsson
myndhöggvara.
Straumar
í Eyjum
eir sem koma til Vestmannaeyja verða strax
snortnir af náttúrufegurð Eyjanha sem er
mjög fjölbreytileg. Það fyrsta, sem maður
tekur eftir þegar siglt er innsiglinguna að
eyjunum, er Heimaklettur. Voldugir hamra-
BJÖRGVIN
BJÖRGVINSSON
SKRIFAR UM UMHVERFI,
MENNINGU OG MANNLÍF
í VESTMANNAEYJUM
veggir klettsins rísa tignarlega til himins.
í björgunum eru sérkennilegar holur og
sprungur, sem eru bústaðir iðandi fuglalífs
yfir sumarmánuðina. En það eru ekki bara
fuglar sem sjást á Heimakletti. Oft má
sjá sauðfé á beit í snarbröttum hlíðunum
uppi á klettinum, og jafnvel fólk á göngu-
ferð þar uppi, sem virkar dálítið glannalegt
fyrir ókunnuga, en Eyjamenn láta sér fátt
um finnast, enda vanir að klífa Eyjarnar.
Með tilkomu hraunsins, sem flæddi yfir
stóran hluta Heimaeyjar í eldgosinu fyrir
nærri 13 árum, hefur umhverfið fengið á
sig dulúðugan blæ. Við hraunjaðarinn má
enn sjá rústir gamalla húsa. Þessi hús
standa upp úr hrauninu eins og minn-
isvarði, um þann hluta bæjarins sem
hraunið lagðist yfir.
Nýja hraunið er nú víða orðiö mosavaxið, þótt aðeins séu tæp 13 ir liðin fri gosinu.
LESBÖK MORGUNBLAOSINS 24. DESEMBER 1985 15