Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Side 20

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Side 20
GUÐRIÐUR , SÍMONARDOTTIR Guðríður Símonardóttir er nafnkunnust kona úr Vestmannaeyjum. Hvað vann hún til? Það er tvíbentur ómur í þeirri spurn- ingu. Af hverju varð hún nafntoguð kona? Og hvað vann hún til þess að verða fræg á þann veg sem hún varð? Vér stöndum hér í dag í túninu henn- ar. Héðan hvarf hún á brott fyrir 358 árum, óþekkt hús- freyja, 29 ára gömul, og átti ekki afturkvæmt hingað. Nú er henni reistur minnisvarði á vellinum, þar sem grasið grær yfir sporum hennar hér og héðan, léttum og þungum. Hvað vann hún til? Hún átti ekki frumkvæði að því að komast í annála. Henni var skákað inn í hrikalegasta harmleik aldar sinnar. Flestir þeirra mörgu, sem voru hremmdir inn á það dimma svið, voru þar með úr sögunni. Guðríður týnd- ist ekki. Hún skilaði sér fram úr dæmafárri þolraun. Varnarlaus Fyrir Löndum Sínum En þegar hún kemur í augsýn á ný, í óvelkomnum áningarstað á leiðinni heim í varpann sinn, mætir hún enn óvæntum og stórum örlögum. Með þau á herðum sér gengur hún inn í sögu þjóðar sinnar, hljóðum skrefum brattan og grýttan veg. Varnarlaus var hún, þegar hún féll í grimmar greipar hér í Stakkagerði. Ennþá varnar- lausari varð hún seinna fyrir löndum sínum, fyrir þess háttar hnýsni um dáið fólk og þess kyns skáldgáfu, sem vor góða þjóð þarf síst að miklast af. Í þeirri smiðju var nafn hennar hnoðað og hnjaskað og mynd hennar af- skræmd samkvæmt næsta dularfullum eigindum og lög- málum í undirdjúpum mannlegs eðlis. Þar varð hún sú Tyrkja-Gudda, sem blótaði fjandann á laun og reyndist blessuðum manni sínum þyngstur kross, næst holdsveik- inni. Ég hef að vísu ekki rekist á það í þessum vonda skáld- skap, að Vestmanneyingar hafi viljandi att flagði upp á dýrðarmanninn Hallgrím Pétursson. En héðan var sú kona, sem hefur fylgt honum eins og skuggi úr undir- heimum. Það hefur sjálfsagt lengstum verið hljótt um hana hér í Eyjum. Vestmanneyingar hafa ekki fundið efni til að miklast af þessari frægustu konu úr sínu plássi. Ekki hafa þeir heldur talið sig bera þunga van- virðu hennar vegna. Þeir áttu sem aðrir sinn hlut í dýrum arfi Hallgríms. Gudda þjóðtrúarinnar var partur þess verðs, sem hann varð að gjalda vegna köllunar sinnar. Hvað um það: í dag er fjölmenni saman komið í Stakka- gerðistúni til þess að minnast þessarar konu og heiðra minningu hennar með veglegum hætti. Hún er á sjálfum þjóðhátíðardegi íslendinga boðin velkomin heim aftur, eftir alla sína löngu útlegð og hrakning. Vestmannaeyjar gangast skörulega við henni sem sinni dóttur og lýsa yfir því, að þeim sé sæmd að því að hafa gefið Hallgrími ogþjóðinni Guðríði Símonardóttur. Þetta er manndómsbragð og drengskapur, sem mér þykir vænt um að vera vitni að. Ég samfagna og þakka framtakssömum forgöngumönnum þessa máls, ágætri listakonu og öllum, sem lagt hafa lið. En spurningin er ekki afgreidd: Hvað vann hún til? Og ekki verður hún afgreidd hér í dag. Fáar íslenskar konur hafa verið heiðr- aðar með sambærilegum hætti og nú er gert við Guðríði. Heiðursvarði er háð fremur en lof ef engir eru verðleikar til. Hver var þessi kona? Mynd hennar er móðu hulin. En ytri feril hennar er unnt að rekja í stórum dráttum úr Stakkagerðistúni og í kirkjugarðinn í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Og tví- mælalaust er það, að enginn kemst uppréttur þann veg, sem hún varð að ganga, nema þrekið sé frábært til líkama og sálar. Bandingi Fluttur á Sölutorg Hér var hún gripin höndum í kotinu. Eyjólfur, maður hennar, hefur ekki verið nærstaddur, hann gekk úr greip- um ræningjanna með einhverjum hætti. Guðríður varð ein að mæta óðum, grenjandi mannhundum, sem þrifu af henni barnið hennar og drógu bæði síðan um blóðvöll- inn, þar sem vinir og grannar lágu myrtir eða fjötraðir. Svo var hún kösuð með öðrum bandingjum, sem hníptu undir þiljum vikingaskipsins, sárir og stjarfir af skelf- ingu. Eftir langa siglingu á vit óþekktra, uggvænlegra afdrifa tekur við 9 ára ánauð í Afríku. Þar var hún fyrst keyrð á sölutorg, ásamt þrekuðum og sturluðum löndum sínum. Þó að þeir ættu eitthvað misjöfnu óláni að mæta með húsbændur, beið þeirra allra Eftir SIGURBJÖRN EINARSSON biskup Ræða við afhjúpun á minnisvarða um Guðríði í Stakkagerðistúni í Vestmannaeyjum 17. júní 1985. hin versta ævi, sem varð mörgum ofraun, þeir gáfu frá sér alla von og lífsvilja. Sumir, sem hjörðu af, létu leiðast til þess í örvilnan sinni að játast undir trú kúgara sinna. Kristnum mönnum voru öll sund lokuð í þessari útlegð og veikar líkur eða engar á því, að henni myndi lykta. Kristin ambátt var óhreint kvikindi, ekki einu sinni boðleg frilla, þótt álitleg væri. Glæsilegri, norrænni konu gátu hins vegar boðist freistandi kostir í þessu múham- meðska mannfélagi, ef hún fórnaði trú sinni og sjálfsvirð- ingu. Bréf Guðríðar Ber Henni Fagurt VlTNI Um Guðríði er það víst, að hún bilaði ekki, hún hafði þrek og manndóm til að halda reisn sinni, lét ekki áþján- ina buga sig, lét ekki lokkast til að falla frá sinni kristnu trú. Getsakir um það, að hún hafi orðið blendin í trúnni eða fráhverf henni, eru rakalausar, styðjast ekki við nokkurn finnanlegan flugufót. Næg sönnun um hið gagn- stæða er sú staðreynd, að hún leggur allt kapp á að komast aftur heim. Enginn, sem varð afhuga kristindómi sínum eða kastaði honum, hugsaði framar til heimferðar. En aðrar órækar heimildir eru einnig til vitnisburðar í þessu máli. Það er vottfest með gildum hætti í skráðu skjali frá árinu 1635, þegar hún hefur verið 8 ár í Alsir, að hún er meðal þeirra, sem „Drottinn varðveitir enn nú við trú og góða samvisku". Og síðast en ekki síst er til bréf frá henni sjálfri, varðveitt í bréfabók Gísla biskups Oddssonar. Bréfið skrifar hún manni sínum í Vest- mannaeyjum, Eyjólfi Sólmundarsyni, og er þá búin að vera nokkur ár í ánauðinni. Vera má, að hún hafi skrifað fleiri bréf, þótt þetta eitt sé til og reyndar ekki nema að hluta. Bréfaleiðir sunnan frá Alsír voru harla ótrygg- ar. En orð Guðríðar í þessu bréfi taka af allan vafa um það tvennt, að hún ann manni sínum af fullri tryggð og „Þjóðsagan gerði hana að dimmu skýi og geislarnir frá Ijóðum Hallgríms urðu að brjótast fram úr því. En Guðríður Símonardóttir á önnur eftirmœli skilið. Hún stóð með manni sínum í blíðu og stríðu.fœddi honum börn, stóðyfir moldum þeirra allra, hjúkraði manni sínum í strangri legu ogstóð að lokum einnigyfir moldum hans, allt- af óbuguð, alltaf með fullri reisn. “ dyggð, og að hún er vel kristin. Hún vill láta Eyjólf vita, að hún sé á lífi og hugsi sterkt til hans. Og hún er að hrópa á hjálp til þess að losna og komast aftur heim. Menn hafa haft Guðríði grunaða um að hafa fengið annan til þess að skrifa bréfið fyrir sig. Það má vera, almúgakonur þeirrar tíðar voru lærðar til annarra starfa en skrifta. En Guðríður var enginn meðalmaður að at- gervi og hefði vel getað komið mönnum á óvart í því, eins og ýmsu öðru, að vera skrifandi. Bréfið er ekki til nema 1 afriti biskupsskrifarans í Skálholti. Og síðari hluti þess hefur glatast, ásamt undirskrift. En hvort sem hún hefur sjálf dregið stafina á blaðið eða fengið annan sér færari til þess, þá á hún heiðurinn af skörulegu framtaki sínu og af efni bréfsins. Hún biður vel fyrir manni sínum, talar um sína aumu ævi, en „ég hjari, einkum fyrir Guðs náð og sérlega velgerninga". Hún hefur þunga áhyggju af ungum Syni þeirra Eyjólfs, „að vita hann í þvílíkri neyð og háska“ — hún á við þá neyð og háska, að barnið hlaut að verða aliðupp í múham- meðstrú. Sami maður hafði keypt þau bæði mæðginin, „hvað mig gerði bæði að hryggja og gleðja í mínum hörmungum ... ég særist daglega" (hans vegna). „Drott- inn haldi oss stöðugum allt til enda. Vér vitum, hvað vér skrifum“. Hér talar Tyrkja-Gudda sjálf. Orðin eru ekki mörg miðað við allt, sem um hana hefur verið sagt. En þau bera henni það vitní, sem ekki verður hrakið: Ambáttin frá Stakkagerði er gerðarkona, holl og heil í lund. Húsverð Til Lausnar Guðríði Þegar hún skrifar bréfið er hún að glæða veika von um að verða frjáls aftur og komast heim. Það var fyllsta tvísýna á því, að sú þrá gæti ræst. En hún situr um hvert færi til þess að vinna sér inn einn og einn skilding, utan daglegrar kvaðarvinnu ambáttarinnar, til þess að geta greitt eitthvað upp í lausnargjald, ef til þess kæmi, að hún yrði föl og henni byðist áskilið lausnarverð. Helst var auðvitað hjálpar að vænta frá kónginum í Danmörku. En sá landsfaðir íslendinga, sem átti sér á parti allar Vestmannaeyjar með gögnum og gæðum, hafði ekki handbært fé til stórra útgjalda vegna þegna sinna og landseta, sem hafði rekið suður um allan sjó til Afríku. í þeim hópi voru enda fleiri en íslensku hræðurnar. Ófáir danskir og norskir sæfarar höfðu lent i sömu ræningja- klóm. Reynt var að afla fjár með samskotum í öllum löndum konungs. Framlag íslendinga var ekki stórt og gekk treglega að ná því saman. Árin 9 hafa verið löng og lýjandi biðtími þeim, sem þó vildu halda í vonina. Loksins kom konunglegur fulltrúi til þess að leysa út þá fanga, sem falir væru og finnanlegir. Hálfur fjórði tugur Islendinga var þar á meðal (af 360 sem rænt var, 27 komust til íslands). Sonur Guðríðar er horfinn. Hvort hann var lífs, og þá seldur annað, eða liðinn, er ókunn- ugt. Líklegast er, að hann hafi verið dáinn. Hún hafði af miklum dugnaði önglað saman upphæð, sem nam 10. hluta þess verðs, sem sett var upp fyrir hana. Þetta framlag reið baggamuninn, því sjóður konungsfulltrúans var á þrotum, þegar samningar náðust um lausn hennar og skipið á förum. Eigandi Guðríðar hefur verið tregur til að láta hana. Og hún var hátt metin, í hæsta flokki. Það sýnir að hún hefur verið gjörvuleg og gengið í augu. Hún var ekki föl fyrir minna en 200 ríkisdali. Það voru 50 kýrverð, vænt jarðarverð þá, líklega sæmilegt húsverð núna. Engar Fréttir Frá Stakkagerði Og nú sneri stafn til norðurs, til Heimaeyjar og Helga- fells. Þótt löng væri leiðin framundan og háskasöm, hefur hún stigið léttum skrefum á skipsfjöl, frjáls kona, sigur- sæl í ströngu stríði, með land sinna bestu minninga og allra vona fyrir stafni. En þegar kom til Kaupmannahafnar, varð ekki lengra haldið að sinni. Það var komið haust 1636, engin sigling til íslands fyrr en næsta vor. En íslandsförin voru komin úr siglingu sumarsins eða að tínast til Hafnar eitt af öðru. Með þeim bárust fréttir að heiman og má nærri geta, að langferðafólkið að sunnan hefur spurst fyrir um vandamenn sína og verið þyrst í tíðindi af íslandi. Ekki er vafamál, hvað Guðríði hefur verið hugleiknast að spyrjast fyrir um. En hvað hún frétti veit enginn með vissu. Víst er, að Eyjólfur hennar hafði tekið saman við aðra konu og átt við henni börn. Slíkt var algeng saga um karla og konur, sem misstu maka sína í greipar Tyrkjans, og ekki tiltökumál, eins og komið var fyrir þeim. Þeim mátti þykja örvænt, að hernumdir ástvinir sæust framar. En sögur um barneignir og hórdómsbrot þeirra, sem stóðu á rústum heimila sinna eftir Tyrkjaránið, voru útbærar og vel fleygar, enda taldist slíkt ekki til einka- mála á þeirri öld, sem hilma mætti yfir þjóðfélaginu að skaðlausu. Það hefur verið rótgróin skoðun og lítt véfengd, að Guðríður hafi þetta haust engar fréttir haft að heiman. Ég veit ekki, á hverju menn hafa getað byggt vissu sína um það. Mér finnst varla hugsanlegt, að hún hafi ekki fengið sannar fréttir af heimilishögum í Stakkagerði. Og trúlegast, að hún hafi þar á ofan spurt þaö, að Eyjólfur var kominn í sjóinn. Það liggur fyrir skjalfest að hann drukknaði á fyrra hluta ársins 1636. Þau afdrif hans og skipshafnar hans (bróðir hans fórst á sama skipi) vita allir, þegar Vestmannaeyjaskipið siglir héðan til Kaup- mannahafnar síðsumars þetta ár, skipið, sem Guðríður hefur mænt eftir og leitað uppi hið fyrsta hún gat. Hrásvalir danskir haustvindar hafa verið naprir eftir breiskjuna í Alsír. Allar líkur eru á því, að miklum mun kaldari gust hafi lagt að henni norðan frá íslandi og bitið dýpra. Hún var ekkja í tvöföldum skilningi. Hún hafði háð hetjulega baráttu. En til hvers? Guðríður var ekki komin yfir harminn eftir drenginn sinn, hvernig sem hún hefur misst hann. í nær áratug hafði hún verið mállaus ambátt, án þess að mega vænta nokkurs tillits, allar tilfinningar varð hún að byrgja með sjálfri sér. Það sem svalaði henni í glóðheitri móskunni syðra og svíaði henni í þeim hörmungum, sem hún nefnir í bréfi sínu, var hljóður draumur um að ná aftur heim og hefja lífið að nýju með manni sínum. Hún hafði stritað og strítt til þess að sá draumur mætti rætast. Nú var hún vakin upp af honum með harkalegum hætti. Hún þarf ekki að hafa verið tiltakanlega örgeðja, eins og sumir sagnamenn þykjast vita, þó að nú hafi brimað þunglega í sál hennar. Hún hafði orðið að bera allar byrðar næstliðinna ára ein og þögul. Nú var sem hrelling- ar og sárindi þeirra ára kæmu yfir hana með nýju og miskunnarlausu heljarafli. Hvernig sem geðslagi hennar hefur verið háttað, hefur hún haft þörf eðlilegra manna á því að geta sagt „einum allan hug“. Hér er getið í eyður, vel veit ég það. Guðríður hefur mátt sæta því, að lesinn væri misjafn texti af auðum síðum lífsbókar hennar, og sjaldnast af samúð né í því skyni að setja sig í hennar spor.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.