Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Side 38

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Side 38
Lestur bókmennta hefur löngum skipað háan sess meðal íslensku þjóðarinnar. Islendinga sögur eru sú grein fornbókmennta sem notið hefur hvað almennrasta vinsælda hér á landi og hafa þær veitt okkur innsýn í hugarheim fornaldar og verið okkur ómetanleg hjálp í varðveislu móðurmálsins. Um þessar merku bókmenntir og áhrif þeirra á síðari tíma bókmenntir hafa mörg orð fallið. Er ekki ætlunin að feta þá hálu braut hér, heldur verða teknir fyrir tveir þættir er lúta að hugmyndafræði fornrita okkar, hin ríka örlagatrú forfeðra vorra, ásamt með hetjuhugsjónum þeirra. Leitað verður fanga í ýmsum íslendinga sögum og einnig lítillega stuðst við Eddukvæði. Fyrst verður stuttlega drepið á skapgerð forfeðranna. Að því búnu verður fjallað um aðalsmerki sannrar hetju og hetjudáðir og verða ranghverfu hetjuhugsjónarinnar gerð einhver skil. Að síðustu verður fjallað um örlagatrú í fornbókmenntum. EFTIR MATTHÍAS ÆGISSON má Eigi sköpum renna Um hetjuhugsjónir ogforlagatrú fornbókmenntum okkar /ij’i S/ J W'-Pc fyj Skaplyndi Forfeðranna Við lestur íslendinga sagna hrífst lesandinn ósjaldan inn í atburðarás sem tengd er saman af ákveðnum hefndarþáttum. Les- andinn gerir sér fljótt grein fyrir þessari hefndarkeðju sem oftast á sér smávægilegar orsakir í fyrstu. Lífsskoðanir manna leyfðu þeim ekki að slíta þennan hlekk. Hinar ríkjandi aðstæður neyddu menn til að fullnægja þessari skyldu. Hin ýmsu víg þessara tíma eiga rót sína að rekja til þessara þátta. „Deiluefni íslendinga sagna eru með ýmsu móti. Stundum er barizt út af konum, stundum út af eignum, stundum vegna illmælgi, stundum út af ofbeldis- árás, en oft af smávægilegri atvikum. En eitt er sameiginlegt öllum þessum deiluefnum. Einhver maður hefur orðið fyrir skapraun, sem hann telur sér skylt aðhefna.*1 Virðing skipaði háan sess í hugum for- feðra okkar. Þeir voru mjög viðkvæmir fyrir öllu því sem skert gat virðingu þeirra og var þeim þá lundin bráð. Skapmiklir menn voru þeir með eindæmum og var vissara að verða ekki á vegi þeirra, þegar þeir voru í slíku ástandi. En aðrir þættir urðu til þess að efla alls konar metnað og framagirni í hópi forfeðranna og er þar efstur á lista ætternismetnaðurinn. „Helgasta skylda einstaklingsins var að halda á lofti heiðri ættar sinnar, í orði og verki, að halda við frægðarljóma hennar og auka hann enn meir, ef kostur gafst. Honum bar til þess að vinna, að óbornar aldir kölluðu hann kynfrömuð. Hið glæsi- lega dæmi forféðranna, margfegrað í sög- um og kveðskap, stóð honum sí og æ fyrir hugskotssjónum, knúði hann fram til at- orku og fyllti sál hans fyrirlátslausri frægðargirni. Hann varð að hefja sjálfan sig jafnhátt fyrirmyndinni, því að annars kostar brann á enni hans svívirðing ættler- ans og heilladísir feðranna sneru við hon- um bakinu.“2 í beinu framhaldi af þessu skulum við gefa Ólafi Briem orðið: „Þessi siðferðilega samábyrgð innan einstakra ætta á rót sína að rekja til þess, að sæmdin var ekki að öllu leyti séreign einstaklingsins, heldur einnig sameign ættar hans. Hver sá, er vann frægðarverk, gerði allri ætt sinni sóma, en níðingurinn var ættarskömm. Sómatilfinningin er burðarásinn i flest- um íslendinga sögum. Nær ailar deilur risu af særðri sómatilfinningu, sem ætt eða einstaklingur hlaut að reyna að rétta við. Án sæmdar var lífið einskis virði, og orðstírinn var í raun og veru hið eina, sem gaf því varanlegt gildi." 3 Við skulum ekki fara lengra út í þessa sálma að sinni þar eð þessir þættir fléttast inn í síðari hluta þessarar greinar. Beinar mannlýsingar í fornsögunum gefa yfirleitt lítið til kynna um skapgerð forfeðranna. Persónur sagnanna lýsa sér sjálfar með athöfnum sínum og tali og af þeim þáttum getur lesandinn ráðið hina sterku þætti í skaplyndi þeirra. Við fáum aldrei að skyggnast inn í hugarheim per- sónunnar, heldur upplifum við dramatíska tjáningu tilfinninganna. í Egils sögu Skallagrímssonar finnum við góð dæmi þessa. Þekkt er lýsingin af Agli, er hann Hetjan á fleygiferd: Skarphéðinn flýgur eftir ísnum á Markarfljóti, en Þráinn liggur í blóði sínu. Lýsingin í Njálu á þessum garpskap hefur löngum verið fslendingum hugstæð, enda mikilfenglegt að stökkva yfir Markarfljót, 12 álnir milli höfuðísa. Á myndinni er fljótið þó fremur sem sakleysislegur bæjarlækur. Það er eftir danskan málara frá öldinni sem leið, Otto Bade, og er ein þeirra mynda, sem Björn Bjarnason gaf íslendingum 1884 og myndaði með þeirri gjöf Listasafn íslands.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.