Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Qupperneq 39

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1985, Qupperneq 39
fór á fund Aðalsteins konungs, eftir lát Þórólfs, bróður síns. „Egill settisk þar niðr ok skaut skildin- um fyrir fætr sér; hann hafði hjálm á höfði ok lagði sverðit um kné sér ok dró annat skeið til hálfs, en þá skelldi hann aptr í slíðrin; hann sat uppréttr ok var gneyptr mjök ... en er hann sat, sem fyrr var ritað, þá hleypði hann annarri brúninni ofan á kinnina, en annarri upp í hár- rætr... Ekki vildi hann drekka, þó at honum væri borit, en ýmsum hleypði hann brúnunum ofan eða upp.“ 4 Við verðum einnig vitni að þessu við lát Böðvars Egilssonar. Við skulum grípa niður í söguna þar sem Egill hefur fregið lát Böðvars og riðið með lík hans til haugs Skalla-Gríms: „En svá er sagt, þá er þeir settu Böðvar niðr, at Egill var búinn: hosan var strngð fast að beini; hann hafði furst- anskyrtil rauðan, þröngvan upphlutinn ok láz at síðu; en þat er sögn manna, at hann þrútnaði svá, at kyrtillinn rifnaði af honum ok svá hosurnar." 5 Hér er okkur ekki veitt innsýn í hugar- heim Egils, heldur eru það athafnir hans sem vitna um líðan hans. Áhrif hins hrjóstruga umhverfis okkar, í hinni hörðu lífsbaráttu, hafa átt sterkan þátt í mótun skaplyndis okkar og lífsskoð- ana. „Víkingarnir, sem létu fyrstir frá landi út á opið haf, voru aldir upp í um- hverfi, sem hafði bundið þá í báða skó. Þeir áttu ekki einungis að etja við úlf og björn, vetur og harðindi, nízka jörð, sem þeir erjuðu með lélegum tækjum og sveik þá oft um uppskeru, svo að úr varð sultur og seyra. Náttúran var öll vitund gætt, byggð duttlungafullum vættum, sem aldrei var á að ætla ... Engu var treystandi. Við því mátti búast um hver vetrarsólhvörf, áð sólin hækkaði ekki aftur á lofti, aldrei voraði framar, fimbulvetur gengi í garð ... Trú og lífsskoðun voru runnar upp úr þessu umhverfi." 6 Af þessu má ráða að forfeður okkar voru hvattir til dáða af ögrun náttúrunnar og hefur það átt mikinn þátt í mótun eðlisfars þeirra. Hugdirfska Og Hetjulund „Deyrfé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyraldregi, hveim er sérgóðangetur.“(76) 7 Hér að framan var þess getið að í hugum forfeðra vorra hafi orðstírinn í raun og veru verið hið eina sem gaf lífinu gildi. „Orðstírinn er afleiðing manngildisins og framhald þess. Með honum verður líf manns, þegar hann er sjálfur liðinn, starf- andi afl í lífi kynslóðanna, öld eftir öld.“ 8 Og enn eitt dæmi um þennan hugsunar- hátt hetjunnar finnum við hjá Birni Bjarnasyni: „f eldheitri aðdáun fyrir sigur- sælli tilveru, með römmustu fyrirlitningu fyrir kjarkleysinu sækir hún ótrauð fram að því marki, er hún hefur sett sér, og vill heldur bíða bana en missa þess; því að betri er stutt ævi framarík en langt líf við lítinn orðstír." 9 íslendinga sögur hafa verið kallaðar hetjusögur. Skulum við því gera þeim þátt- um, er prýða áttu hetjuna, stutt skil. Fyrst ber að nefna kröfuna um drengskap: „Að ganga á bak orða sinna eða fremja nokkurt ódrengilegt verk kemur sannri hetju aldrei til hugar. Hún er „grandvör", „hvardygg", „eiðvönd", „haldinorð" og hreinskilin í atferli sínu við háa og lága.“10 Hetjan skyldi aldrei láta blett falla á sæmd sína. Á henni mátti ekki greina nein veikleikamerki og reisn sinni átti hún að halda í meðlæti sem mótlæti. Henni bar að ganga mót hverri raun með hugprúðu hjárta. Viljastyrkur hennar átti að vera ofar líkamsþreki. Hetjan gat verið fim að beita vopnum, en það var enginn mæli- kvarði sannrar hetju. Enginn gat orðið hetja sökum vígfiminnar einnar. Hetjan átti að vera seinþreytt til vandræða en engu að síður bar henni að halda hlut sínum fyrir hverjum sem var. Jafnvel andspænis dauðanum átti hún að vera æðrulaus og hugprúð. Eins og áður var getið, voru þeir menn sem brugðust að fullnægja hefndarskyldunni, álitnir væskl- ar og í augum hinna fornu kappa var fátt viðurstyggilegra. Á mönnum hvíldi sú kvöð að hefna frænda sinna og vina. En þessir þættir sem hér að framan greinir, þurftu ekki ávallt að vera til stað- ar, til að „réttlæta" mannvíg. Oft réðu duttlungar gjörðum manna og vildi þá iðulega til að menn voru vegnir án minnsta tilefnis. í Fóstbræðra sögu finnum við dæmi þessa. Þar er maður nefndur Þorgeir Hávars- son. Atgerðir hans voru lítt til þess fallnar að marka honum bás meðal hetjanna. Hann leitaði á menn til þess eins að svala vígalöngun sinni. „Þorgeirr hafði riðit undan suðr, ok er hann kom til Hvassafells, stóðu þar menn úti. Sauðamaðr var þá heim kominn frá fé sínu ok stóð þar í túninu ok studdist fram á staf sinn ok talaði við aðra menn. Stafrinn var lágr, en máðurinn móðr, ok var hann nökkut bjúgr, steyldr á hæli ok lengði hálsinn. En er Þorgeirr sá þat, reiddi hann upp öxina ok lét detta á hálsinn. Öxin beit vel, ok fauk af höfuðit ok kom víðs fjarri niðr. Þorgeirr reið síðan í brott, en þeim fellust öllum hendr, er í túninu höfðu verit."11 Og er Þorgeir var spurður, hví hann dræpi þennan mann, varð honum að orði: „Eigi hafði hann nökkurar sakar til móts við mik, en hitt var satt, at ek mátta eigi við bindast, er hann stóð svá vel til höggs- ins.“12 í Gerplu hefur Halldór Laxness þetta að segja um hetjuna. Þórelfur húsfreyja, Skarphédinn Njálsson er hin dæmi- gerda hetja og því hlutverki trúr, hvað sem á dynur: Glottir við tönn þegar hann á engrar undankomu auðið í brennunni. Á myndinni að ofan er hetjan Skarphéðinn aftur á móti í Lögréttu á Aiþingi, þar sem hann lendir í rimmu við Flosa út af fébótum fyrir Höskuld Hvítanes- goða. Málverk eftir Einar Hákonar- son. móðir Þorgeirs Hávarssonar, er hér „mál- pípa“ höfundar: ... „hetja tekur lítt af um flesta hluti og fæst ekki af honum lof né last, og ekki utan það orð sem hann er á hverri stundu reiðubúinn að styðja með vopni: eru eingi svör rétt uppi höfð í neinu máli utan sannyrði sverða. Dugur manns í ófriði, hreysti og slægviska, það er mann- gildi hans. Hvort hann lifir leingur eða skemur, hvort hann stendur eða fellur í orustu, aungu máli skiftir það ef frægðarljóma ber á verk hans. Það voru manngæði að vera jafnóhræddur um líf sitt þótt við ofurefli væri að etja, eins og þá er menn höggva máttarlítinn óvin sinn óviðbúinn ... Aldregi skyldi góður dreingur láta þá skömm af sér spyrjast að kjósa frið ef ófriður var í boöi. Það mælti og móðir hans að góður víkingur þyrmdi aldregi konu né barni í hernaði.“13 Við skulum nú hverfa frá Gerplu og halda innreið okkar í Fóstbræðra sögu að nýju og taka þar fyrir fleiri dæmi um hinn ranhverfa hetjuskap Þorgeirs. Þorgeir var óblíður hversdagslega við alþýðu og óþokkaður. Hetjan átti að vísu að vera stórlát, en þó alþýðleg við menn. Þorgeir kunni ekki að hræðast, en að öðru leyti var hann vanur flests sem tengd- ist hetju eða hetjuskap. Sigurfljóð hús- freyja ber honum á brýn heigulskap og Þorgeir lætur hana storka sér til mann- drápa: ... „Þér þykist vera garpar miklir, þá er þér eruð í þeim veg at kúga kotunga, en hræðizt þegar, er í mannraunir kemur.“ Þá spratt Þorgeirr upp ok mælti: „Standið upp, sveinar, ok launið húsfreyju gist- ing.“ 14 Siðan fóru Þorgeir og hans félagar og vógu menn að áeggjan hennar. Þorgeir gekk einnig á bak orða sinna, en eins og að framan greinir, gat sönn hetja aldrei lagst svo lágt. Gautur Sleituson og Þorgeir áttu eitt sinn í deilum. Þann fyrrnefnda hafði skort eldivið og hafði hann því gengið til búða Þorgeirs og tekið ofan spjótskefti hans og skjöld. Eldaði hann þetta síðan undir katli. Annan dag tók Þorgeir sig til og „efndi hefnd fyrir hnekk“. Gautur hjó þá til Þorgeirs sem bar af sér höggið, en skeind- ist hann þó lítt á fæti. Hlupu þá menn á milli þeirra og reyndu að fyrirbyggja frek- ari árekstra, þeirra í millum. Þá mælti Þorgeir: „Eigi þurfið þér at halda mér, því at ek mun mik nú til engis ófriðar líkligan gera.“ 16 Ekki þarf að orðlengja það að um nóttina reis Þorgeir úr rekkju og fór inn i tjald Gauts og klauf hann í herðar niður. Áður en lengra verður haldið, langar mig að gera örlitla grein fyrir einni af hetjum fornkvæðanna. Völsunga saga er mjög sérstæð saga og harmsaga í öllu eðli sínu. í henni eru feiknanlegir atburðir settir á svið með hrikalegum afbrotum og stórfenglegum manndrápum af furðulegri grimmd. Signý Siggeirsdóttir er ein af þeim hetjum sem gátu boðið hinni almennu lífsskoðun birginn. Hún var kona Siggeirs konungs sem réð fyrir Gautlandi. Þrátt fyrir hefndarverkin sem hún drýgir, stendur hún upp úr. Hún fórnar öllu til að koma fram föðurhefndum. Hún drepur börn sín og elur barn með bróður sínum. Allt er þetta svívirðilegt og við veltum því fyrir okkur hvort hægt sé að fara mikið neðar í viðurstyggð. Hefnd- arskyldan var svona rík. Signýju var boðið líf, hún hafnaði. „Hefi ek ok svá mikit til unnit, at fram kæmist hefndin, at mér er með engum kosti lift. Skal ek nú deyja með Sigurgeiri konungi lostig, er ek átta hann nauðig." 16 Kvöð héfndarinnar veldur glæpum Signýjar. Við skynjum hana sem mikla konu og hetju. Hún var tilneydd að láta drepa mann sinn og börn, til að sinna hefndarskyldunni. í þessum þætti ritgerðarinnar hefur mér orðið tíðrætt um Þorgeir Hávarsson, en ógleymanleg er lýsingin á hetjudauða Þormóðar Kolbrúnarskálds, fóstbróður hans: „Svá er sagt, þá er lokit var bardaganum, at Þormóðr væri ekki sárr. Hann harmaði þat mjök ok mælti: „Þat ætla ek nú, at eigi muna ek til þeirar gistingar sem konungr í kveld, en verra þykkir mér nú at lifa en deyja.“ Ok í því bili, er hann mælti þetta, þá fló ör at Þormóði ok kom fyrir brjóst honum, ok vissi hann eigi hvaðan at kom. Því sári varð hann feginn, því at hann þóttist vita, at þetta sár mun honum at bana verða."17 Þormóður lét sig ekki muna um að kveða nokkrar vísur á eftir þessu. Nú skulum við grípa niður í Ólafs sögu helga og upplifa það hvernig Þormóður mætti örlögum sínum. Þegar hér er komið sögu er Þormóð- ur búinn að kippa út örinni; „En þar váru á krókar, ok lágu þar á tágar af hjartanu, sumar rauðar.sumar hvítar, ok er hann sá þat, mælti hann: „Vel hefir konungrinn alit oss. Feitt er mér enn um hjartarætr." Síðan hné hann aptr ok var þá dauðr.“ 18 Þannig var hetjudauðinn fyrir hugskots- sjónum hins rómantíska fólks sem setti þetta saman. Gísli Súrsson deyr sönnum hetjudauða. í lok sögunnar sækja að honum tólf menn, LESBÓK MORGUNBLAOSINS 24. DESEMBER 1985

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.