Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1988, Qupperneq 4

Lesbók Morgunblaðsins - 19.12.1988, Qupperneq 4
jr U R G L A T K 1 S T U N N 1 Móðir guðs og lækning þjóða UM LIUU EYSTEINS ÁSGRÍMSSONAR Það hefur flestum nútíma íslendingum verið kennt í skóla, að „allir vildu Lilju kveðið hafa“. Fæstir munu þó þekkja kvæðið, sem rúmar heila heimsmynd með táknrænu myndmáli, með átökum á milli hins guðdómlega annarsvegar og Lúsífers hinsvegar, persónugervings ofbeldishneigðar og skammsýni. Ohófsmaður í ástríðu sinni eftir heilagleika — að verða heill hið innra — og lenti því þráfald- lega í útistöðum við menn og stofnanir á spilltri tíð; þannig var Eysteinn Asgrímsson sem sjá má af kvæði hans Lilju. Kvæðið er kristin heimsmyndarlýsing: sköpunar- saga, lýsing á tilvistarkjörum manna al- mennt, sem eru samkvæmt kvæðinu slæm. Skáldið lýsir úrræðum við aðstæðum sem eru heilbrigðri skynsemi þrálát ögrun, leit- ar jafnframt ástríðufullt að bestu möguieg- um kjörum fyrir sjálft sig á þeim vett- vangi sem það lýsir. Kvæðið er langt, hundrað erindi, átta vísuorð hvert. Kveð- skaparhátturinn er tilbrigði við dróttkvæð- an hátt, svonefnt Liljulag. ‘Ágústíiíus keis* ari er sagður hafa ort baráttuljóð undir þessum hætti; svö ritar Finnur Magnússon, og telur Finnur háttinn vera í grundvallar- atriðum forngrískan. En vísar þó til fræða um skáldskap Asíuþjóða, segir að með líkum hætti hafí Persar órt. Kvæðið er talið ort einhvemtíma á árun- um milli 1350 og 1360, annaðhvort að Heigafellsklaustri á norðanverðu Snæfells- nesi eða í klaustrinu Helgisetri í nágrenni Þrándheims í Noregi. Ef svo var sem líklegt er að Eysteinn Ásgrímsson hafí ort fleira en kvæðið Lilju þá er glataður allur annar skáldskapur hans en þetta kvæði — og vísubotn einn. Eiginhandarrit höfundar að kvæðinu er ekki tií. Elsta uppskrift er frá 15. öld, svo- nefnd Bergsbókargerð og er hún talin áreiðanlegust þeirra uppskrifta sem til eru; talin standa næst frumgerð höfundar. Bergsbók er varðveitt á safni í Stokk- hólmi, en til er meðal minnisblaða Jóns Sigurðssonar, á handritadeild Landsbóka- safns íslands, eftirrit hans af Bergsbókar- upþskriftinni, og er eftirrit þetta notað við samningu þessarar greinar. Eiríkur Magn- ússon notaði sömu uppskrift og önnur gögn frá Jóni Sigurðssyni — sem lét sér mjög annt um kaþólsk helgikvæði — er Eiríkur þýddi Lilju á ensku; hafði til hliðsjónar aðra uppskrift sem varðveitt er í British Museum, þangað komin frá Ólafí Stephen- sen stiptamtmanni sem gaf sir Josep Banks er gaf þá uppskrift safninu. Þýðing Eiríks þykir til fyrirmyndar sem og skrif hans um kvæðið og höfúnd þess sem fylgja hinni ensku útgáfu hans á kvæðinu. Hann og Guðbrandur Jónsson hafa skrifað ítarlegast um kvæðið og eru önnur skrif um það í minna mæli Iiðtæk þeim sem öðlast vill fræðilega þekkingu á ljóði þessu. Meðal uppskrifta Jóns Sigurðssonar á kaþólskum helgikvæðum er umfjöllun Finns Magnús- sonar um Lilju, birt í bókinni Dana 1820. Finnur segir kvæðið enn vel þekkt á ís- landi en eingöngu í endurskoðaðri gerð. Mótmælendur hafí fundið sér not fyrir helgikvæðið Lilju en ekki fyrr en gerðar höfðú verið á því breytingar til samræmis við breyttar áherslur í trúarlífí kristinna Islendinga, það hafí verið fært til lúthersks horfe. Amgrímur Jónsson, kallaður „hinn lærði", breytti kvæðinu í þessu skyni og var sú gerð gefín út 1612, hin fyrsta út- gáfa þess. í annað sinn kom ljóðið út 1748 og þá aftur hin endurskoðaða gerð Amgríms lærða sem í anda siðskiptanna hafði snúið Maríubænum ljóðsins yfír á Krists. Til eru a.m.k. 25 uppskriftir þess frá fyrri tímum, flestar frá því eftir siða- skipti og ritstýrðar með sama fyrir augum. Algengt var um mótmælendur að þeir teldu sér skylt að þylja kvæðið allt vikulega, sumir daglega, en einmitt vegna þess að kvæðið hélt aðdráttarafli sínu þrátt fyrir siðaskiptin orðuðu menn sig sjálfa og ortu inn í kvæðið eftir hentugleikum, allir vildu Lilju kveðið hafa. Að sama skapi hefur reynst örðugt að fínna „hina einu sönnu Lilju" eftir að áhugi fyrir kvæðinu tók að vakna á annað borð. * Ljóðið hefur verið gefíð út a'.m.k. þrjátíu sinnum. Á íslensku og latínu, dönsku, norsku, sænsku, þýsku, ensku, frönsku, hollensku og tékknesku og e.t.v. fleiri málum. Það kom út í þriðja sinn á íslensku 1913, Finnur Jónsson sá um útgáfuna. Guðbrandur Jónsson gaf kvæðið út 1944 og aftur síðar. Við útgáfu sína bar Guð- brandur saman flestar eða allar uppskriftir að ljóðinu og fann út einhverskonar meðal- tal sem virðist ekki hafa verið vænlegra til árangurs en ef hann hefði notast við Bergsbókargerðina eina, — enda ljóðið víða lítt skiljanlegt í frágangi hans. 1947 gaf Páll Eggert. Ólason Lilju út í safnritinu Islands þúsund ár. Þrívegis síðan hefur kvæðið komið út og í öilum tilvikum í við- hafnarútgáfum án þess að rannsókn á sögu kvæðisins, efni eða gerð hafí legið til grundvallar, að þvf er séð verði. Um þá umijöllun, sem kvæðið hefur fengið á íslensku, gildir að einlægnin, sem einkenn- ir það, er lögð að jöfnu við bamaskap og fávísi fyrri tíðar manns með hliðsjón af heimsmennsku hins upplýsta nútíma- manns; skáldið virðist þá einhverskonar loftsýn, því miður án nokkurrar áreiðan- legrar staðfestu. Því miður vegna þess að heimsmynd kvæðisins, siðfræði, mannleg tilvistarkjör samkvæmt því og úrræði við þeim eru raunar skynsamlegrí en af hefur verið látið. Og sjálfur er hann þama, uppi- vöðsluseggurinn, mannasættirinn, tvíbend- ur allt til róta, brennandi af þrá eftir þeim heilagleika sem upphefji fallinn mann, en þar með upptendraður af ástríðu sem hin helgu fræði kenna að komi í veg fyrir slíka upphafningu. Baráttan, sem kenna má að er kveikja þessa ljóðs, er barátta mennsk- unnar við eðli sitt fremur en einstaklings við samvisku sína vegna atburða í lífí hans sjálfs. Guðsmyndin er nútímaleg, tilverusnið þess guðs, er skáldið ákallar í upphafi kvæðis, er „tímarúmssamfella" eðlisfræði okkar aldar: Almáttigur guð, allra stétta, . yfírbjóðandi engla og þjóða, ei þurfandi staði né stundir, staði haldandi í kyrrleiks valdi, senn verandi úti og inni, uppi og niðri, og þar í miðju-------- Skáidið biður þetta almætti síðan um andríki, kveður sig hafa jafnvel ríkari ástæðu fomskáldum til að yrkja lofgjörð til þess guðs, hyggst segja af „fögrum stór- merkjum drottins verka". Og hefur sköpun- arsögu: Fyrstu verkin skaparans urðu him- inn og jörð og þá níu stéttir engla, — þar má sjá að englar eru hvatar sumra atburða jarðneskrar tilvistar, þeir eru milliliðir. í miðaldaskrifum, ljóðum og lausu máli, er fleirtala orðsins tími notuð oftar en við höfum efni til; af síðustu vísuorðum upp- hafserindisins, sem áðan var vísað til, verð- ur ráðið að Eysteinn telur líðandina með tvennskonar móti: Gerði hann heim og teygði tíma tvo jafnaldra í sínu valdi. Englar eru tenglar tvennskonar tíma (al- gers og afstæðs eða hvað?). En í þessari nýju vídd, vegna þeirra kringumstæðna, varð frívilji til, þar með sjálfræðishneigð, „hið illa“. Lúsifer tók að umbreytast: Mektarfullur er af bar öllum í náttúruskærleik sínum, skapaður góður, og skein í ptýði, skapara næstur í vegsemd hæstri, eigi lét sér alla nægjast engill mekt þá er hafði fengið, með ofbeldi öðlast vildi æðri sess og virðing bæði. LjÓsberi þessi, Lúsifer, er í veigamiklum atriðum ólflcur þeim djöfli sem miðalda- kirkjan kostaði að ófrægja í fræðum sínum. Þeim sem Jón þumlungur óttaðist mest og Milton orti um í Paradísarmissi sínum: Þótt mikið fari fyrir óvininum í kvæði Eysteins er hann ekki alillur. Fjandi Ey- steins er ' einfaldlega persónugervingur ástríðna. Hann var óvæginn og ætlar sér þá dul að deila við drottin „hversu sem vegnar". Hann sökk því „sem blývarða í djúpleik jarðar“. Lúsifer gat við svo búið af sér ofbeldið, hið illa — sem er góðleikinn afskræmdur. Fjandann og „feiknt" ofbeidið kallar Eysteinn feðgin. Fjandanum daprað- ist sjón, með líkingunni er átt við innsæis- gáfuna, konungshugsunina, hið sjötta skilningarvit; og fylgir þessi dapra sjón stundum útlistingum miðaldafræða á Lúsi- fer föllnum. I upphafi kvæðis gerir Eysteinn ráð fyr- ir tímabili á jörðinni áður en hún hlaut þá útlitsprýði sem síðar varð hennar, og því næst skeiði slíks fríðleiks án lífríkis, þá tímabili óvitsmunalegs lífs sem orðið var til af „vatni og moldu". Síðan „breytti guð hætti" og sendi lífinu anda „með léttum blæstri af lofti hæsta"; andann leiðir af „heitleika af sólarreitum". Kemur þetta allt heim við nútímavísindi hvemig sem það má vera, — að frátöldum guði sjálfum sem „rétt“ vísindi láta liggja milli hluta eins og kunnugt er. Drottinn kveikti vits- muni með lífverum og þar með getu til skilnings. Og er þá maðurinn nefndur til kvæðisins, Adam, fijáls og í náðum og á allskostar við heiminn. Líka Eva, talhlýðin kona. Og eiga þau vísa vist í Paradís með niðja sína sem getur varla talist góð ka- þólska; „með æru, vald og ástir“, segir þar. En jafnframt glæsilegri framtíðarsýn lýsir drottinn fyrir Adam og Evu að þau verði dauðleg ef þau snæði af ávexti epla- trésins; Iýkur raeðu sinni með orðunum: „Þið munuð ráða“. Valið er ftjálst. Þegar Á

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.