Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1991, Qupperneq 14

Lesbók Morgunblaðsins - 17.12.1991, Qupperneq 14
Úr munnlegri geymd um uppruna Strandarkirkju Ffyrir langalöngu gerði ungur bóndi úr uppsveitum Ámessýslu för sína til Noregs á skipi því er hann sjálfur réði fyrir. Var ferð þessi farin til að sækja valinn við til húsagerðar. Segir nú ekki af ferðum bónda fyrr en hann hefur verið lengi á hafi úti á leið sinni til íslands. Lend- ir hann þá í háska af völdum sjávargangs og hafvillu í dimmviðri og veit ekki lengur hvert skip hans stefnir. Heitir hann því í örvæntingu sinni að gefa allan húsagerðarv- ið sinn til kirkjubyggingar á þeim stað er hann næði landi heilu og höldnu. Að heiti þessu unnu birtist honum sýn í líki ljóseng- ils framundan stefni skipsins og verður nú ljósengill þessi stefnumið er hann stýrir eft- ir. Segir ekki frekar af siglingu þessari fyrr en skipið kennir grunns í sandvík milli sjáv- arklappa. Hvarf þá engillinn og birta tók ) af degi. Sáu þá skipsmenn að þeir höfðu verið leiddir eftir bugðóttu lendingarsundi milli boðsketja á úthafsbrimströnd. Þar skammt fyrir ofan malarkamp var hin fyrsta Strandarkirkja reist úr fórnarviðunum. Undirritaður hefur fært arfsögn þessa til leturs eins og hann heyrði hana úr munn- v . legri geymd Guðrúnar Jónsdóttur, sem var húskona hjá foreldrum hans í Þorkelsgerði í Selvogi. Söguna heyrði undirritaður Guð- rúnu segja mörgum sinnum á uppvaxtar- árum sínum í Þorkelsgerði er hann var 10-13 ára að aldri. Síðan eru liðin rúm 60 ár. Guðrún Jónsdóttir var fædd 5. janúar 1853 og kom til búskapar síns með Árna Árnasyni, bónda og smið í Þorkelsgerði, árið 1883. Árni var þá ekkjumaður eftir örstutt hjónaband með Guðrúnu Grímsdótt- ur frá Nesjavöllum. Árni var frá 5 ára aldri uppeldissonur Ólafs hreppstjóra og bónda í Þorkelsgerði, Jónssonar, en Ólafur var kvæntur Kristínu Jónsdóttur, prests í Vogsósum, Vestmanns. Ólafur var fæddur í Þorkelsgerði 1811 og þar bjó faðir hans og afi. Hann var ijórði ættliður í beinan karllegg frá Ormi Ólafs- syni, bónda á Nesbýli og í Herdísarvík, er fæddur var 1655, enn á lífi 1729. Ormur var því samtímamaður Eiríks hins fjölfróða á Vogsósum, Magnússonar. Séra Ólafur Ólafsson, síðar fríkirkjuprest- ur, var prestur í Vogsósum 1880-1883. Hann heimsótti þau Kristínu og Ólaf í Þor- kelsgerði og festi þá á blað eftirminnilega myndlýsingu af Kristínu, þá blindri og krepptri, en svipmikilli og lifandi í skarpri hugsun, með pijóna í hönd. Og eftir að hafa hlustað á mann hennar, Ólaf, segja frá liðnum atburðum gaf hann honum þann vitnisburð að hann væri „hinn mesti greind- armaður og að sama skapi sannorður”. Ólafur og Kristín drógu sig í hlé og af- hentu Áma, fóstursyni sínum, bú og jörð árið 1880, en lifðu síðan í skjóli hans af eignum sínum til æviloka. Þau náðu bæði háum aldri. Kristín lést fyrir aldamót en Eftir KONRÁÐ BJARNASON Strandarkirkja í Selvogi. Strandarkirkja í Selvogi hefur orðið þjóðinni hjartfólgin vegna þess hve góð hún hefur þótt til áheita. Upphaf kirkjubyggingar þarna á ströndinni má raunar rekja til áheits og sú sögn hefur gengið frá kynslóð til kynslóðar í Selvoginum. Höfundurinn, sem sjálfur er þaðan, rekur þessa arfsögn og hugar að aldri kirkjunnar. Strandarkirkja að innan. Altaristaflan er eftir Sigurð Guð- mundsson, málara. Höggmyndin „Landsýn” er eftir Gunnfríði Jónsdóttur og stendur skammt frá Strandarkirkju. 14

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.