Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Side 6
Yflr honum hvílir auðmýkt og reisn í senn.
Hann ber ekki höfuðið hátt, heldur horfir til
jarðar í hógværð. Faðmurinn er út breiddur
móti öllum, sem þarfnast vinar í raun, öllum
þreyttum, veglausum, viltum, öllum smáum
hröktum og hrjáðum. Það er ef til vill ekki
tilviijun, að þessi mynd var gerð um svipað
leyti og sálmurinn „Ó, Jesús bróðir besti...“
var ortur. Verður þeim bróður betur lýst í
mynd, en hér er gert?
En hvort er hann nálægur eða fjarlægur?
Getum við hlaupið í opinn faðm hans eða hvíl-
ir kaldur hjúpur eilífðar og heilagleika um
hann? Er Kristur Thorvaldsens sá Kristur,
sem gerðist maður meðal manna, eða er hann
aðeins hugmynd, hugmynd um hinn fullkomna
mann? Finnum við til skyldleika eða fráhrind-
andi framandleika frammi fyrir þessari mynd
Krists?
Tímaleysi hins ný-klassíska stíls kann að
valda því, að okkur finnist sem við stöndum
þrátt fyrir allt ekki frammi fyrir bróðurnum
besta, heldur fjan-ænum Kristi, stignum niður
úr hæðum goðsagnar eða helgisögu. Ef til
vill finnst okkur þó gott, að Kristur lætur
okkur hér eftir síðasta skrefið, þrengir ekki
að okkur, heldur stendur álengdar og bíður.
Altaristaflan í
DÓMKIRKJUNNI
Þóra: Þegar Dómkirkjan í Reykjavík var
endurbyggð um miðja síðustu öld var fengin
í hana altaristafla eftir danska málarann
Gustav Theodor Wegener, máluð 1847. Hún
sýnir upprisu Krists. Gustav Theodor var
starfandi málari í Danmörku á síðustu öld,
fæddur 1817. Hann hefur því verið aðeins
þrítugur þegar hann málaði þessa mynd.
Hann var í hópi þeirra listamanna sem
skreyttu Thorvaldsenssafn í Kaupmannahöfn
á árunum 1840 til 1848, en þá var það form-
lega opnað með viðhöfn, að listamanninum
látnum. Thorvaldsen lést 1844. Hann hafði
áður sént íslendingum að gjöf skímarfontinn,
sem vígður var í Dómkirkjunni gömlu sumar-
ið 1839. Ekki er ólíkfegt að þama séu tengsl
á milli.
Hvort það hefur haft svo mótandi áhrif á
landsmenn, að slíkri mynd var komið fyrir í
höfuðkirkju landsins, Dómkirkjunni í Reykja-
vík, þessum ört vaxandi höfuðstað íslendinga,
— eða þótti mönnum hún svo góð, og rétt —
um það skal ekkert fullyrt. Hvernig sem því
hefur verið háttað, varð þessi mynd þegar í
stað fyrirmynd altaristaflna hér á landi. Sig-
urður Guðmundsson málari, sem kom nokkm
seinna heim frá löngu listnámi í Kaupmanna-
höfn, fékk margar pantanir frá kirkjuyfirvöld-
um, en allar urðu myndirnar að líkjast sem
mest Dómkirkjutöflunni. Nú em altaristöflur
í 10 íslenskum kirkjum eftir Sigurð, allar
málaðar eftir Dómkirkjutöflunni.
Hjalti: Altaristafla Dómkirkjunnar í
Reykjavík og eftirmyndir hennar sýna atburð-
inn, sem enginn sá og enginn fær lýst af eig-
in raun; andrána þegar tími og eilífð mætt-
ust; andartak upprisunnar.
Hvergi birtist hinn sigrandi Kristur í meiri
fyllingu en einmitt hér, er hann brýtur af sér
hlekki dauðans, veltir bjarginu frá grafar-
munnanum og géngur að nýju fram á land
lifenda. Að baki var þjáning höfnunar og
krossdauða, niðurstigning til heljar og barátta
við öfl myrkurs, haturs og ógnar í undirdjúp-
unum. Framundan sigur í uppstigningu að
hástóli Guðs föður á himnum. Hinn upprisni
Kristur verður aðeins sýndur í mynd sigrandi
hetju. Yfir höfði hans blaktir því sigurtáknið,
krossfáninn.
Upprisu Krists verður ekki lýst með öðrum
hætti en umvafinni hinum hvíta lit hreinleika,
sakleysis, sigurs og gleði, lit skírnarkjólsins
og páskaskrúðans. Hún verður ekki túlkuð
né tjáð öðru vísi en böðuð ljóma og ljósi, sem
einkennir alla opinberun og guðsbirtingu.
Myndir þessar benda einnig á þverstæðu
upprisuundursins, sem þegar kemur fram í
frásögum guðspjallanna. Frammi fyrir hinum
upprisna fyllist maðurinn skelfingu, fellur til
jarðar, viðurkennir smæð sína takmarkanir.
Varðmennirnir eru því ekki aðeins tákn hinna
fjandsamlegu afla, er höfnuðu Kristi, útskúf-
uðu honum og krossfestu. Þá er einnig hægt
að skoða sem fulltrúa alls mannkyns. Sér-
hvers þess, sem mætir Drottni en andvarpar,
vík frá mér, því ég er syndugur maður.
Altaristafla Þórarins
B. ÞORLÁKSSONAR
Þóra: Jesús blessar börnin var Þórami B.
Þorlákssyni hugleikið myndefni. Hann málaði
altaristöflu fyrir hina nýju kirkju á Þingeyri
1911, og aðra í Stórólfshvolskirkju 1914, sem
hér sést. Á báðum töflunum er Kristur í auð-
þekkjanlegu íslensku landslagi. Myndir Þórar-
ins einkennast af kyrrð og blíðu. Haft er eft-
ir Guðrúnu dóttur Þórarins, að þær hafi setið
fyrir systurnar báðar, Dóra og Guðrún.
Hjalti: Þórarinn B. Þorláksson staðsetur
Krist, sem blessar börnin, í íslensku lands-
Altaristafla Steinunnar í Kópavogskirkju.
Altaristafla Jóhanns Briem
lagi. Víður sjónhringur með fjöll, sem blána
í fjarska. Lygn en straumþung vötn í bak-
grunni og yfir öllu hvelfist djúpur himinn.
Kristur er ekki aðeins staðsettur í íslenskri
náttúru. Honum er líka valinn staður í víðátt-
unni og blámanum, sem kallað getur fram
hugmynd um hátt upp hafna tign, heilagleika
og eilífð. Hér er það því aðeins öðrum þræði
hinn jarðneski, holdtekni Kristur, sem stígur
fram á sjónarsviðið. Upphafning hans yfir
stað og stund gerir það að verkum, að hinn
upprisni, eilífi Kristur er hér einnig til stað-
ar. Hið sama kemur fram í mynd Krists sjálfs.
Geislabaugur leikur um höfuð hans og klæðin
eru hvít og skínandi.
- Hið sama kemur fram í mynd Krists sjálfs.
Klæði hans eru hvít, næstum lýsandi. Á altari-
stöflunni í Stórólfshvolskirkju leikur geisla-
baugur um höfuð hans. Á töflu Þingeyrar-
kirkju er hann hins vegar fjarrænn, framan
og ósnertanlegur.
Altaristafla Jóhanns
Briem
Þóra: Jóhann Briem fór aðrar leiðir í sinni
listsköpun. Hann sótti fyrirmyndir sínar til
suðlægra landa þegar hann málaði fyrir kirkj-
ur. Hann fór alla leið til Landsins helga, og
þaðan eru áhrifin í þessari mynd sem hann
málaði fyrir Kvennabrekkukirkju í Dölum
1953. Einkenni Jóhanns leyna sér þó ekki.
Hreinir, skærir litafletir, einfóld og skýr form-
Altaristafla Kjarvals í Innra-Hólms-
kirkju.
bygging. Hér er það ljóshærður Kristur, norr-
ænn yfirlitum, sem blessar börnin.
Hjalti: Hvemig á að lýsa hinum holdtekna
Kristi í mynd, Kristi jarðvistardaganna,
Kristi, sem gekk um kring meðal manna og
gjörði gott, Kristi biblíusagnanna? Á að tengja
hann táknheimi krossfestingar og upprisu? Á
að rjúfa þann myndheim, sem frásagan skap-
ar, fella myndina að táknum, er miðla guð-
fræðilegri túlkun og trúarlegri játningu eða
á að láta frásöguna.tala sínu máli, myndina
líkt og setja hana á svið? Á myndin að vera
trú sögulegum aðstæðum frásögunnar, lands-
lagi, lífsháttum og líklegu útliti sögupersón-
anna eða má fella hana að kunnuglegu um-
hverfi og aðstæðum þeirra, sem myndarinnar
eiga að njóta? Á mynd að miðla boðskap, vera
játning trúar, uppfræða um leyndardóm, lýsa
atviki eða skreyta auðan vegg?
Frammi fyrir slíkum spurningum hafa mál-
ararnir Þórarinn B. Þorláksson, Ásgrímur
Jónsson og Jóhann Briem eflaust staðið við
gerð mynda sinna og svarað þeim með ýmsu
móti.
Kristur Jóhanns Briem í Kvennabrekku-
kirkju er næsta ólíkur því, sem gera má ráð
fyrir um hinn sögulega Krist. Hér fær hann
svipmót hins norræna karlmanns. Hann er
einnig nálægur, jarðneskur, mennskur. Sögu-
sviðið er líka dregið raunsæislegri dráttum
en hjá Þórarni. Þorpsgata í Palestínu, grænn
og blaðmikill gróður, þrunginn himinn. í
myndinni býr suðrænn hiti andstætt þeim
svala, sem stafar frá mynd Þórarins.
Altaristafla ásgríms Jóns-
SONAR
Þóra: Altaristafla Ásgríms Jónssonar, sem
hann málaði fyrir Stóranúps-kirkju í Ames-
sýslu 1912. Þarna má glöggt þekkja landslag
úr Þjórsárdalnum og andlit sumra þein-a sem
hlýða á fjallræðuna. Þetta eru að sögn Stein-
þórs Gestssonar á Hæli þekkt andlit úr sveit-
inni. Jón Ófeigsson menntaskólakennari mun
vera fyrirmyndin að Kristsmyndinni, en hann
var sjálfur fæddur á Stóranúpi, nýlega byrjað-
ur að kenna við Verslunarskólann og Mennta-
skólann í Reykjavík eftir langt.nám í útlönd-
um. Meðal áheyrenda er fremstur í flokki
prófasturinn, séra Valdimar Briem, og einnig
má þekkja þarna fræðimanninn Brynjúlf Jóns-
son frá Minnanúpi og vísast fleiri.
Hjalti: Mynd Ásgríms Jónssónar af Kristi
fjallræðunnar byggist á svipaðri þverstæði og
mynd Jóhanns Briem af Kristi og börnunum.
Fjöldinn, sem hlýðir á Krist, er stiginn upp
af síðum Nýja testamentisins eða biblíusagn-
anna. Umhverfið er hin vegar íslenskt. Kletta-
belti sorfin af vatni og vindi. Snævi þakin fjöll,
sem blána í fjarska.
Kristur sjálfur er tröllaukinn og ber við
himin — höfuð hans og herðar er baðað í
djúpblárri, fagurtærri lind norræns himins.
Hægri hönd á lofti til að leggja aukna áherslu
á orðiii og boðskap þeirra eða til að umvefja
áheyrendur með blessun. Tillitið er upphafið
og fjarrænt. Athyglin beinist langt í fjarska
en ekki að þeim, sem umhverfis eru. Kristur
virðist því með vissum hætti fjarlægur stað
og stundu. Hugurinn hvarflar því fremur til
þess Krists, sem opinberaði gjörvöllu mann-
kyni hinn hulda leyndardóm Guðs í sjálfum
sér og stórmerkjum ævi sinnar, en til prédik-
arans, sem fluttí gyðingum forðum hinn
áleitna og ögrandi boðskap fjallræðunnar.
ALTARISTAFLA MUGGS
Þóra: Altaristafla Muggs í Bessastaða-
Húsavíkurkristur
kirkju er af öðrum toga, enda málaði hann
þessa mynd á Ítalíu 1921, undir áhrifum frá
list ítala, einkum málurum endurreisn-
artímans. Muggur, eða Guðmundur Thor-
steinsson eins og hann hét fullu nafni, hefur
verið kallaður „fiðlungur þjóðvísunnar“, eða
ævintýrasveinninn, í íslenskri myndlist. Hann
lést langt fyrir aldur fram, aðeins rúmlega
þrítugur, árið 1924. Bragi Ásgeirsson sagði í
umsögn um þessa mynd í Lesbók Morgun-
blaðsins fyrir 2 árum: „Enga altaristöflu á
íslandi veit ég, sem kemur mér í jafn andríka
stemmningu og þessi, því að ég skynja í henni
svo sterkan samhljóm með list fortíðarinnar,
formrænan skýrleika og guðlega ímynd." Hér
er hinn ungi fagri Kristur að lækna blinda.
Hjalti: Altaristafla Muggs í Bessastaða-
kirkju er þrungin dulúð. Myrkrið hvelfist yfir
og tekst á við ljósið, sem brýst fram. Með
vissum hætti endurspeglar myndin því átök
vonar og ótta, gleði og sorgar.
I miðfletinum mætum við hinum líknandi
og fræðandi Kristi. Þar er eins og gjörvöllu
starfi Krists meðal þjáðra manna sé þrýst inn
í eina mynd. Kristur að kenna, Kristur sem
snertir augu hins blinda og gefur honum nýja
sýn, Kristur sem læknar þá, sem aðeins áræða
að snerta klæðafald hans í felum, en eiga
engin orð, enga bæn, aðeins ótakmarkað
traust.
Til beggja hliða getur að líta næstum ógn-
þrungnar myndir, sem endurspegla spennu