Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 36

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 36
Með álfum og tröllum í austurvegi Við erum sestar inn í flugvél litháíska flugflotans á Heathrow-flugvelli. Farkosturinn er á grun- samlega slitnum dekkjum og flugmaðurinn þarf að leggja flugfreyjunum lið við að sparka hurðinni aftur svo hún falli í falsið. Það kem- Höfundamir fóru á bamabókaþing til Litháen og þá kom í ljós að j* niðumíðslan er með ólíkindum og margt gerólíkt því sem við þekkjum: Kirkjur fyllast á messutímum, en maturinn á veitingahúsunum er varla ætur. Götusalar bjóða vaming á strætum, en þar sést varla bíll. Eftir KRISTÍNU STEINSDÓTTUR og OLGU GUÐRÚNU ÁRNADÓTTUR ur okkur því skemmtilega á óvart þegar vélinni tekst að mjaka sér á loft. Hún brýst með miklum drunum upp í gegnum Lund- únaþokuna og stefnan er tekin á Vilnius. Þetta er á haustdögum 1993 og við erum á leið á bamabókmenntaþing í Litháen. I vélinni eru karlmenn í miklum meiri- hluta. Háttsemi margra þeirra er í frjálsleg- asta lagi miðað við aðstæður; þeir eru á sífelldu flakki eftir ganginum með logandi sígarettur og hálffull glös, og láta engan bilbug á sér finna þó flugfreyjurnar geri stöku athugasemd um leið og þær troðast með erfiðismunum gegnum reykspúandi þvöguna. Fyrir miðri vél getur að líta kunnuglega persónu í bláu prjónavesti með hálsbindið skakkt; þar situr Landsbergis, fyrrum for- seti Litháens, niðursokkinn í pappírsgögn. Þegar við erum lentar í Vilnius og bíðum við hlið hans við færibandið eftir farangrin- um, notum við tækifærið til að heilsa upp á hann. Hann bregst glaður við og segir það ávallt vera sérstakt fagnaðarefni að hitta Islendinga. Hlýleg orð hans gefa tón- inn fyrir það viðmót sem við verðum hvar- vetna aðnjótandi í Litháen næstu vikuna. En hvað leigubílstjórana áhrærir erum við auðvitað bara réttir og sléttir útlending- ar sem kannski má hafa af slatta af dollur- um fyrir akstur á hótel. Einn eltir okkur á röndum og býður tuttugu mínútna ökuferð á fimmtíu dollara, annar er tiibúinn að fóma sér niður í þrjátíu, eii við afþökkum kurteis- lega og tökum strætó alveg að hótelinu okkar fyrir andvirði íslensks krónupenings. Seinna komumst við að því að hæstu mánaðarlaun háskólakennara í Litháen eru um 3.000 krónur, eða 190 litas, sem jafngild- ir um 45 dollurum. Leigubílstjórarnir sem harka við flugstöðina þurfa því ekki að hitta marga þreytta útlendinga með þungar tösk- ur til að öngla saman í árslaun prófessora. Greinarhöfundarnir í safni tréskurð- arlistar í Neringa. Vilnius á sunnudegi Við höfum einn dag til að skoða okkur um í Vilnius áður en við höldum út til strandar- innar að þinga um bókmenntir. Ut um gluggann á fimmtándu hæð á Hótel Litháen blasir gamli bærinn við með ótal skrautleg- um kirkjutumum og áin Neris streymir hjá glitrandi í morgunsólinni. Við hröðum okkur til morgunverðar í gríðarstómm matsal og hyggjumst hlaða þar orkugeymana fýrir langa gönguferð um borgina. Eftir að hafa bragðað á öllum sortum hlaðborðsins neyðumst við tii að endurskoða þá áætlun, því að þrátt fyrir ofurmannlega jákvæðni tekst okkur varla að koma niður nokkrum bita. Sterkur þráakeimur er af öllu; jafnvel brauðið reynist óætt. Moldar- bragð er af kaffinu og teið hlandvolgt. Ef þetta er forsmekkurinn að litháískri matar- 33^---T Veitingahús í kolakjallara í Vilnius. Að sögn greinarhöfundanna var sterkur þráakeimur af flestöllum mat og mold- arbragð af kaffinu. í sjávarþorpinu Nida er verið að stafla eldiviði fyrir veturinn. Þar er rithöfunda- setrið Urbo Kalnas þar sem barnabókaþingið fór fram. gerð er okkur óhætt að reikna með rýrn- andi mittismáli. En þegar við röltum af stað út í borgina verða fegurri tónar til að yfirgnæfa garna- gaulið. Loftið titrar af klukknahljómi þvi að það er sunnudagsmorgunn í Vilnius og kirkjurnar kalla. Við látum forvitni og and- akt leiða okkur inn í helgidóminn, stöndum hlédrægar úti við dyr og hlýðum á messu- gjörð og sálmasöng að kaþólskum sið. Lithá- ar eru afar trúrækin þjóð og þær þrjár kirkj- ur sem við stöldrum við í þennan morgun eru allar fullar af fólki. Þeir sem ekki sitja á bekkjunum knékrjúpa guði á köldu stein- gólfinu; konur í nælonsokkum, karlmenn í slitnum sparibuxum, lasburða gamalmenni og lítil börn, öll renna þau saman í eina biðjandi hjörð undir voldugri kirkjuhvelfing- unni. Við dyr Dómkirkjunnar sitja tveir betl- arar í hnipri, gömul tannlaus kona í tötrum og sinnisveikur karlmaður sem rær volandi í gráðið með lítinn hvolp í fanginu. Mynd þeirra stingur ónotalega í stúf við íburðar- mikið guðshúsið, sem nýlega hefur fengið kostnaðarsama andlitslyftingu í tilefni af páfakomu. Á götum gamla borgarhlutans ríldr frið- ur. Bflaumferð er þar varla nokkur, fólk röltir spariklætt eftir gangstéttum og krakkar kasta boltum í portum. Enginn asi eða læti. Okkur finnst við vera komnar hundrað ár aftur í tímann. Rósemin gagn- tekur sálina. Haustlituð trén bregða ævin- týrablæ á steinlögð stræti og gamlar skáld- aðar byggingar sem einhvern tíma hafa verið glæstar og fallegar og verða það kannski aftur ef þjóðin kemst í álnir. Við Gediminostræti bjóða götusalar fram varn- ing sinn: Skartgripi úr rafi, litríkar ma- trúsjkur, tréskurðarmyndir og grafík. Þetta eru prúðir sölumenn, lausir við hávaða og ýtni. Að seðja hungur sitt Litháar eru greinilega lítt vanir erlendum ferðamönnum, því að veitingahúsin eru svo illa merkt að dágóða spæjarahæfileika þarf til að finna þau. Þegar líður á daginn römb- um við þó á veitingahús sém staðsett er í fyrrverandi kolakjallara og fáum þar þokka- lega máltíð til að kveða niður garnagaulið. Þráakeimurinn er þó ekki allskostar fjaiii en við drekkjum honum í rauðvínsglasi. Skammt frá veitingahúsinu er háskólinn í Vilnius, sem var elsti háskóli í Sovétríkj- unum sálugu, stofnaður af Jesúítum árið 1579. Á sunnudögum er skólinn vitaskuld lokaður en við skoðum háskólakapelluna og göngum um laufskrýdda garða. Þarna verð- ur á vegi okkar gamall maður sem gefur frá sér undarleg hljóð og bendir til skiptis á maga og munn. Ekkert tungumál þarf til að skiija að maðurinn er svangur. Við erum fljótar að seilast í budduna, enda nýbúnar að greiða hálf mánaðarlaun þarlendra til að seðja eigið hungur og vitum upp á okkur skömmina. Það kvöldar hratt í Vilnius og við röltum af stað heimleiðis í ljósaskiptunum. Síðustu geislar kvöldsólarinnar sleikja rústir Gedim- inas-kastalans á Kastalahæð, gotneskrar byggingar frá 14. öld sem hýsir í turni sín- um sögusafn borgarinnar. Svo dettur myrkrið skyndilega á eins og hendi séyeif- að. Flóðlýsing vestrænna borga er víðsfj- arri og í íbúðarhúsum er spart farið með rafmagn. Síðustu kirkjugestirnir feta sig heim gegnum myrkrið og eiga víst fæstir kost á heitu baði til að ylja sér fyrir nóttina, eins og við ferðamennirnir fáum á Hótel Lithá- en. I Vilnius og öðrum stórum borgum í Litháen er heitu vatni veitt til hverfanna á víxl í sparnaðarskyni, eina viku í mánuði á hvert hverfi, og auglýst í fjölmiðlum hvar hitað verði upp á næstunni. I smærri borg- um og í sveitum er ástandið enn verra. Hitinn á hótelinu er langt undir því sem við eigum að venjast. Við dúðum okkur eft- ir baðið og breiðum rúmteppin krókloppnar upp fyrir haus. Heysátur og hestakerrur Næsta dag leggjum við upp í rútuferð þvert yfir landið til Klaipeda, einu hafnar- borgar Litháens. Rútan má muna fífil sinn fegri; í henni er megn bensínstækja og sætisbökin eru föst í ýmsum ankannalegum stellingum. En gluggarnii’ eru stórir og gefa gott útsýni yfir litháísku sveitirnar. Landið er láglent og trjágróður fagur og fjölbreytilegur. Hvergi höfum við séð aðra eins haustlitadýrð, rautt og brúnt og gult í ótal yndislegum blæbrigðum. I fimm klukkustundir ökum við gegnum litasinfó- níuna og tímum varla að depla auga. Á túnum og engjum er enn verið að slá 36

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.