Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 42

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 42
[ (Jr mannhafínu: Hver þessara manna er dæmigerður New York-búi? Ljósmyndir: Björg Arnardóttir. Afangastaður New York Fyrir aðra eru jólin tilefni til að sletta ær- lega úr klaufunum, slá upp miklum gleðskap með tilheyrandi dansi, drykkju og söng. Mér er minnisstætt hvað mér reyndist þetta erfiður biti að kyngja fyrstu jólin mín í borginni. Allt á útopnu á sjálft aðfangadags- kvöld, glymjandi salsa úr einni átt og reggie úr annarri! Hvernig var hægt að finna jóla- helgi í þessum hávaða? Gat þetta fólk ekki skilið að ég var að halda jólin hátíðleg? Mér lærðist fljótt að ég yrði að sætta mig við aðstæður, það væri heillavænlegra til árang- urs en að bíða eftir því að borgarbúar mættu mínum kröfum. Mér varð líka hugs- að til gyðinga sem löngum hafa haldið sínar hátíðir undir svipuðum kringumstæðum. Nóg um það. Fyrir okkur íslendinga sem komum frá ákaflega einsleitu samfélagi tek- ur dálítinn tíma að „lesa“ útúr þeim flókna vefnaði sem New York-borg er. Maður er ekki nema „stautandi" fyrst, en æfingin skapar meistarann og ef menn kæra sig um þá er hægt að verða „fluglæs" með tímanum. Snemma Beygist Krókurinn Eins og flestir vita voru frumbyggjar þess svæðis sem New Yorg-borg hvílir á auðvitað innfæddir Ameríkanar, það fólk sem Evrópubúar nefndu lengst af einu nafni indíána. Ættbálkar af Alonquin-þjóðflokkn- um voru hér fjölmennir en urðu seinha að lúta í lægra haldi fyrir yfirráðum Iroquois- þjóðflokkanna. Pólitísk yfirráð Iroquois- þjóðanna voru rétt að ná fótfestu þegar Flórensbúinn Giovanni da Verrazano, fyrst- ur Evrópubúa, leit augum þetta svæði, sem í fylling tímans átti eftir að hýsa eina stærstu borg veraldar. Árið var 1524 og Verrazano sem var í þjónustu Frakkakon- ungs færði honum fregnir af þessu landi sem honum þótti bæði fallegt og ríkulegt á að líta. Konungur hafði engan áhuga, var meira umhugað að finna siglingaleið til Austur- landa að vestan. Næstum heil öld leið þar til að sama löngunin rak hollenska Austur- Indíu-Kompaníið til að gera út könnunar- leiðangra til Ameríku í þeim tilgangi að komast til Austurlanda. Englendingurinn Henry Hudson sigldi undir hollenskum fána upp eftir ánni sem í dag ber nafn hans. Hudson sigldi skipi sínu eins langt upp eft- ir ánni og siglingafært var, heila 240 km leið, að þeim stað þar sem nú er höfuðborg New York-fylkis, borgin Albany. Enn hðu þó nokkur ár áður en virkilegur áhugi á nýja heiminum vaknaði meðal kauþmánna í Niðurlöndum. Arið 1621 stofnuðu þeir Vestur-Indíu-Kompaníið og settu upp tvær verslunarstöðvar og hervígi. Annað þar sem Aspænsku er það kallað corazon. Á jiddísku chutzpah, á ensku guts. Hjarta, djörfung, andi, fjör, það skiptir ekki máli hvaða nafn því er gefíð, því öll þessi orð ná að lýsa því sem ein- kennir New York-búa. Ekki þarf að virða lengi Ef eitthvað er dæmigert fyrir New York þá er það fjölbreytileiki mannlífsins. New York er heimsborg í orðsins fyllstu merkingu og óhætt að segja að hér skarti mannkynið allri sinni dýrð. fyrir sér iðandi mannlíf borgarinnar til að komast í snertingu við þennan kraft. Alstað- ar er fólk hvert sem Útið er. Aldurhnignir einfarar, fagrar konur og slitnir menn. ít- alskir stælgæjar og rennileg vöðvabúnt ný- sloppin úr lflcamsræktinni. Stríðsmálaðar kjaftforar unglingsstelpur, elegant blökku- konur með skjalatöskur, hortugir dónalegir fylliraftar og valdsmannslegir bísnessmenn á dýrum skóm. Nefndu það bara og það er hér. Hvemig er þá hinn dæmigerð New York-búi? Þetta er brögðótt spuming því svarið er allt það sem að ofan hefur verið lýst og meira til. Ef eitthvað er dæmigert fyrir New York þá er það einmitt fjölbreytileiki mannlífsins. New York er heimsborg í orðsins fyllstu merkingu og óhætt að segja að hér skarti mannkynið allri sinni dýrð. Fyrir konu ofan af bláeygu íslandi, þar sem sagan og skapar- inn hafa í sameiningu mótað fólkið mfldð til eins, a.m.k. í fysískum og menningarleg- um skilningi, er þessi margbreytileiki kær- komið tækifæri tfl að prísa mikilfengleika sköpunarverksins um leið og möguleiki gefst til að kynnast fólki sem í menningarlegu tilliti er öðruvísi. Eftir HALLFRÍÐI ÞÓRARINSDÓTTUR í New York er að finna fólk af öllum stétt- um alstaðar að úr ’neiminum, gult og brúnt og bleikt og svart og hvítt. Fátækt bænda- fólk frá Equador, moldríka tískukónga frá París og allt þar á milli. Fólk sem er eins margsleitt í menningarlegu tilliti og það er margt. Þrátt fyrir þennan margbreytileika eiga New York-búar það sameiginlegt, hvort heldur þeir sem eru hér bornir og barnfædd- ir eða nýkomnir hingað, að þeir búa yfir New York árið 1650. sérstökum þrótti og þrautseigju í mótbyr jafnt sem meðbyr. Til að drukkna ekki al- veg í þessu fjölmenni er nauðsynlegt að hafa karakter, og það er einmitt sterkur karakter sem einkennir New York-búa. Maður lærir líka fljótlega hér í þessum menningarlega „hrærigraut" að ganga ekki útfrá því sem gefnu að allir hafi sömu venj- ur og siði og maður sjálfur. Þó svo að kristni sé hér þau trúarbrögð sem ákaflega margir aðhyllast eru engu að síður stórir hópar fólks sem ekki halda nein jól. Þetta eru t.a.m. múslímar, gyðingar, hindúar, búddist- ar og annað það fólk sem ekki sér neina ástæðu til að halda upp á afmæli Krists. nú er Albany, hitt neðst á Manhattan-eyju og kölluðu Nýju-Amsterdam. Árið 1626 keyptu Hollendingar svo eyna Manhattan fyrir slikk af Alonquin-fólkinu. Á þessum frumbýlingsárum var Nýja- Amsterstam lítið annað en kofaþyrping og íbúarnir róstusamir og svallgefnir. Eftir því sem sagan hermir var krá á hverja tólf íbúa. Brennivín með tóbak í viðbit virðist hafa verið uppistaðan í því sem fóík lét ofan í sig, jafnvel blessuð börnin byrjuðu daginn með bjór. Eitthvað fór þessi lifnaður fyrir brjóstið á nýlendustjóranum Peter Styves- ant sem sagði íbúana hafa tapað sér í sið- leysi og villimennsku. Pétur þessi gaf út 42

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.