Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 23

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 23
Höfundur er rithöfundur og fyrrverandi vitavörður á Galtarvita og Reykjanesvita. ann. Þar færir hann mig í fagurrauðan jóla- sveinsbúning og límir á mig hvítt alskegg úr gæru. Síðan ber hann rauðan lit á bústn- ar kinnarnar með kaffirótarbréfi, fær mér grænmálað sópskaft sem staf og hvítan lér- eftspoka með eplum. - Nú ferðu út, góur- inn, austur fyrir hús og kemur inn aðaldyra- megin. Það passar ágætlega núna heyrist mér. - Hann ýtir mér mildilega út og hvísl- ar: - Gangi þér vel! - Kvíðinn læðist ég austur fyrir húsið og kemst klakklaust inn um aðaldyrnar, án þess að verða fyrir minnstu truflun af vegfarendum. Innan úr stóm stofu hljómar söngurinn: - Gekk ég yfir sjó og land, hitti þar einn gamlan mann, spurði hann og sagði svo: Hvar átt þú nú heima? - Þá ber ég með stafnum á hurðina svo bylur í. Söngurinn hljóðnar skyndilega, en nokkur eftirvæntingarþys heyrist. - Kom Inn! - kallar Jens. Eg hrindi upp hurðinni, veifa stafnum og syng skrækum rómi: - Krakkar mínir, komið þið sæl! Hvað er hér á seyði? Aðan heyrði ég eitthvert væl upp á miðja heiði. - Öll bömin standa grafkyrr í hnapp við jólatréð og horfa opinmynnt og undrandi á þennan skrípislega, lágvaxna karl. - Komið þið nú blessuð og sæl, börnin góð, - hrópa ég í framhaldi af söngnum. - Sæll og bless- aður, - svara bömin í kór og halda hvert í annað. - Mikið er nú gaman að vera kom- in hingað tH ykkar, blessaðir ungamir. Þið erað öll svo dæmalaust fín og hátíðleg. Ég bjóst reyndar við því. Þegar ég var að hlaupa niður Súlumýramar áðan, þá mundi ég allt í einu eftir því, að hann Stúfur bróð- ir sagði mér fyrir ári, að hann hefði heim- sótt skólann þeirra Jens og Heiðu og þar hefði verið svo dæmalaust skemmtilegt. Börnin hefðu sungið svo vel og verið ákaf- lega prúð og kát. - Við þessa ræðu færist líf í hópinn við jólatréð og lítil stúlka með ljósa slöngu- lokka og eplakinnar áræðir að spyrja: - Hvað heitirðu, jólasveinn? - - Ég heiti nú Þvörasleikir. Hafið þið nokkum tíma heyrt mín getið? - - Jahá! - hrópar hnokki með stór leiftr- andi augu. - Ég kann sko vísu um Þvörus- leiki. - - Lofaðu okkur að heyra, - segir Heiða. Drengurinn roðnar, en mælir fram hægt og skýrt: - Sá ijórði, Þvörusleikir, var Qarskalega mjór. Og ósköp var hann glaður, þegar eldabuskan fór. M þaut hann eins og elding og þvöruna greip, og hélt með báðum höndum, því hún var stundum sleip. - -Veistu þá, hvað þvara er, Kristján minn? - spyr Jens drenginn, þegar hann hefur flutt ljóðið. - Jahá, - ansar Kristján. - Hún amma kom með þvörana með sér, þegar hún flutt- ist til okkar framan úr Hólsseli. Hún notar hana til þessað hræra í grautnum, þótt Bína frænka segi, að þetta sé ófínt áhald, sem ekki sjáist í betri húsum. - Það er alveg rétt hjá þér, - segir kenn- arinn, - að þvara er notuð til þess að hræra í potti. Hún er langt skaft með blaði á end- anum, og með því var líka hægt að skafa pottinn innan. - Skyndilega grípur annar drengur inn í samræðurnar. Hann er snarborulegur, rauðhærður og freknóttur og röddin hás: - Þetta getur alls ekki passað. Það segir í vísunni, að Þvörasleikir sé fjarskalega mjór, en þessi jólasveinn er bæði lítill og feitur. - Nú kárnar gamanið. Ég fipast í ferðasög- unni og veit satt að segja ekki, hverrúg hægt er að losna úr þessari óvæntu klípu og horfi því vonaraugum til Heiðu. - Blessað- ur vertu, - svarar Heiða, - það er löngu liðin tíð, að jólasveinar geri mönnum skrá- veifur og séu svangir, mjóir og aumingjaleg- ir. Þeir voru það kannski í gamla daga, þegar fólk hafði ekki nóg að bíta og brenna. Nú er öldin önnur, Magnús minn. ÖUum þykir gaman að fá jólasveina í heimsókn, gerir vel við þá og þess vegna era þeir feitir og pattaralegir. - Ég anda léttar eftir þessa ágætu útlistun Heiðu og held áfram ferðasögunni. Þegar henni lýkur segir Jens: -Jæja krakkar mínir, eigum við nú ekki að ganga um stund í kringum jólatréð með honum Þvörasleiki vini okkar. Við skulum syngja kvæði um jólasveinana, já jólasveina einn og átta. - Ekki þarf að ganga á eftir bömunum og hátíðin heldur áfram með miklum söng, glaðlegum frásögnum og eplaveislu. Það er myrkt úti, þegar litlu jólunum lýkur. Foreldrar barnanna sækja þau. Ég er sæU og glaður, því kennararnir hæla mér á hvert reipi fyrir leikinn. - Krökkun- um datt áreiðanlega ekki annað í hug, en þetta væri raunverulegur jólasveinn, þótt Maggi UtU væri nærri því búinn að setja þig út af laginu, - segir Heiða brosandi. Að skHnaði réttir Jens mér nokkrar krónur og ég kyssi þau bæði og óska þeim gleði- legra jóla. Léttur í skapi stíg ég á bak hjólhestin- um, fer nokkuð geyst niður götuna, þótt engin lukt sé á fáknum. Gatan er óslétt, svo ég sveigi brátt upp á stéttina. Það kem- ur varla að sök í þetta sinn; tæpast nokkur á ferli. Götuljós era strjál og því næsta skuggsýnt þar sem þeirra nýtur ekki. En skyndilega er þrifið harkalega í mig og hjóUð stöðvað. Ég hrekk Ula við og verð máttlaus í hnjáUðunum af skelfingu. Maður- inn, sem stöðvar mig svo óþyrmilega, er í svörtum, síðum frakkar með gyHtum hnöppum og ber kaskeiti á höfði, lágur, samanrekinn og fölgrár í andliti. - Veistu ekki karUnn, að þú ert að brjóta lög? - segir Steingrímur lögregluþjónn þyrrkingslega. - Hjólar hér á gangstéttinni og í þokkabót ljóslaus í myrkrinu! Nú kem- urðu með mér upp á stöð. - Hann tekur þétt í handlegginn á mér og leiðir mig og hjólhestinn upp eftir stétt- inni. Ég hef misst máUð, þótt löggfitur jóla- sveinn sé, kominn frá því að baða mig í ljóma frægðarinnar, nú skyndilega hand- tekinn lögbrjótur í skammdegismyrkri. Steingrímur er aUs ekki líklegur til þess að rrúlda tökin á þessum niðurlúta söku- dólgi, þótt ekki sé hann mikiH bógur, þö- gull og skjálfandi. Leiðin er ótrúlega löng upp á lögreglustöð, sem er í einlyftu stein- húsi með flötu þaki og stendur upp undir brekkurótum. MikH bót er þó að því, að engir era á ferU, tU þess að fylgjast með þessari óvæntu niðurlægingu. Þegar við Steingrímur eram komnir inn í hlýtt herbergi þar sem hinir lögregluþjón- amir tveir sitja að tafli og drekka kaffi úr stórum föntum, þá er réttur settur. Mér verður heldur stirt um svör á þessum ótta- lega stað, enda setur brátt að mér óstöðv- andi ekka. Steingrímur verður ráðalaus á svipinn og ræskir sig hvað eftir annað. Þá stendur yfirlögregluþjónninn upp frá tafl- inu og dregur brjóstsykurspoka upp úr vasa sínum. Hann grípur inn í yfirheyrsl- una og segir með hughreystandi brosi: - Svona, ljúfurinn, fáðu þér nú mola og síð- an skaltu segja skýrt og rétt frá öllum málavöxtum, því það er langbest fyrir þig að draga ekkert undan. Já, fáðu þér nú bolsíu! - Ég sé að svipurinn á Steingrími mUdast og við þessu hlýju orð yfirlögreglu- þjónsins vex mér kjarkur. Þeir fá nú að heyra söguna um heimsókn Þvörasleikis í smábamaskólann, hversu ágætar viðtökur hann fékk þar og hvað honum lá á heim tU þess að segja móður sinni alla sólarsög- una. Hann bókstaflega gleymdi ljósleysinu í ákafanum. -Það er auðvitað leiðinlegt að binda enda á svo skemmtUegt ævintýri, - segir yfirlögregluþjónninn og brosir enn breiðar, - en þú verður að geyma hjólhestinn héma hjá okkur tU morguns og sækja hann í björtu. Já, hérna er önnur bolsía í nesti. Flýttu þér nú heim og gleymdu aldrei að virða lög landsins. Þú ert alltof skynsamur drengur til þess að sýna kæraleysi, sem hæglega getur valdið slysi. - Ég heiti því hátíðlega að virða lögin og kveð aUa lögregluþjónana með handabandi. Þegai- út kemur sé ég mér tU mikUlar gleði, að stórar snjóflygsur faUa hægt tU jarðar. Eyrin breytir um svip og klæðist jólavoðinni hvítu, svo sleðamir verða teknir fram og kraftaverkahátíðin færist nær. Léttur í skapi bryð ég brjóstsykurinn og hleyp niður götuna í logndrífunni. Höfundur er vígslubiskup á Hólum. ÓSKAR AÐALSTEINN Nóttin helga Nóttin helga er alskær í myrkrinu eina litla stund. Og gleði okkar er gleði barnsins. Umandi grenigrein — logandi kerti og myndavasaklútur verða okkur að gersemum. Og þessa stund uppfyllum við lögmálið; elskum mann og annan. Og þessa stund kyrrir Jesús vind og sjó og breytir vatni í vín og haltir ganga, dauJSr heyra, blindir sjá og dauðir upprísa. En næst þegar dimmir af nóttu er myrkrið aftur samt við sig — og breiðir dimmar blæjur sínar yfir mig og þig. Madonna eftir Chagall, 1912. Talið er að fyrirmynd málararans hafi verið Maria Blachemiotissa, hin byzantiska Madonna. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. DESEMBER 1993 23

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.