Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 22

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 22
Aðventumyndir af Eyrinni Skammdegið er jafnvel ennþá dapurlegra, ef enginn er snjór, segir fullorðna fólkið á Eyrinni. Enn er komin jólafasta og þó virðist okkur börnunum kraftaverkahátíðin langt undan, því jörð er ma- rauð og vetrarleikir við Ósinn og í Brekkunni Skyndilega er þrifið harkalega í mig og hjólið stöðvað. Ég hrekk illa við og verð máttlaus í hnjáliðunum af skelfingu. Eftir BOLLA GÚSTAVSSON liggja niðri. Og allra síst viljum við rauð jól. Kraftaverkahátíð nefnum við jólin vegna þeirra áhrifa, sem þau hafa á ýmsa menn. Þá bregða þeir út af rótgrónum venjum, sem í annan tíma er ómögulegt að hagga. Til dæmis eru það aðeins jólin, sem koma Bjössa í Olíunni úr drullugallanum. Það þykir okkur sannarlega jaðra við krafta- verk, auk þess sem hann þvær sér þá ræki- lega, sem sést þó ekki vel. - Svei mér þá! Hann Bjössi er meira að segja skítugur á mynd, - varð mér eitt sinn að orði við mömmu, þegar ég kom úr heim- sókn til Didda sonar hans. Mamma hló dálítið, en sagði mér að gæta tungu minnar. Jólin koma Bjössa úr kámugum olíugall- anum og hann fer í stífaða, hvíta skyrtu og setur upp tandurhreina enska húfu, og þá getur fjölskyldan ekið á vörubílnum til aftansöngs í kirkjunni. Þó ber ennþá meira á óteljandi, svörtum smáhrukkum á grann- leitu andliti Bjössa, þegar hann er kominn með mjallahvítt brjóst. Einnig telst það til umtalsverðra undra, að það skuli renna af Brandi gamla í Kjall- arabúðinni og hann verða viðmælandi í nokkra daga. En Brandur er aldrei fullur á jólunum. Þá fer hann ævinlega til kirkju með einhverjum þeirra breysku vina sinna, sem sækja í sterka ölið hans eins og gulu flugumar í fjóshaug Bjarna smiðs. Þeir kavalérar, sem sitja löngum í súrum skugg- anum innst í búðarlokunni, þegar líður á daginn, verða eins og aðrir menn á jólun- um, enda ölið drukkið upp á Þorláksmessu. Kaupmaðurinn hallar hvorki á né sleikir á sér efri vörina daginn eftir og í jólamess- unni syngja Brandur og fylgdarmenn hans af lífi og sál og skiptir ekki máh, þótt þeir séu dálítið rámir. Rauðsprengd augun verða rök, svipurinn viðkvæmnislegur og barns- lega einlægur. Svona breyta jólin lífi fólks. Það birtir um stund, og óneitanlega þykir okkur við hæfi, að skaparinn leggi drifhvíta voð yfir Eyrina á hátíð ljóssins og hylji ýmislegt, sem er ekkert augnayndi. Þá stimir á frostsnævi, þegar tunglið gægist upp yfir heiðarbrúnina handan fjarðar. Það er feg- urra en allt það ódýra skraut, sem á að hressa upp á litlar og fátækar stofur. Til siðs er að hengja marglita músastiga úr krep-pappír upp í loftin, rauðar pappírs- klukkur og kúlur. Allt bliknar það sjald- hafnarskraut, þegar borið er saman við glitrandi mjöll í tunglskini. Enn er kominn jólafasta og ekki bólar á snjókomum. Sleðar em meira að segja ennþá í geymslu undir tröppum eða í skúr- unum að húsabaki þar sem gengið var frá þeim í vor. Eg hjóla hægt upp götuna um hádegisbil á leið í smábarnaskólann. Þar hafði ég áður numið undirstöðuatriði þeiira fræða, sem ég legg nú stund á í barna- skóla Islands uppi á brekkunni. Ungu kenn- arahjónin, sem reka smábarnaskólann, komust að raun um, að mér léti fremur vel að leika jólasvein. Með það hlutverk fer ég nú íyrir þau á hverri jólaföstu. Pabbi seg- ir, að það endi líklega með því, að ég verði löggiltur jólasveinn eins og Benni millimet- er, sem alltaf leikur jólasvein á barna- skemmtunum vélstjórafélagsins. Ég kenni nokkurs glímuskjálfta og fer í huganum yfir ferðasögu jólasveinsins Þvömsleikis á leið upp götuna. Smábarnaskólinn er til húsa í fundahúsi verslunarmanna, sem stendur efst á Eyrinni. Hann er í tveim stofum á neðri hæð. Mér hafði verið sagt að koma bakdyramegin, nokkra eftir að börnin hafa safnast saman við jólatréð í stærri stofunni, sem veit út að götunni. Ég leiði því hjólið að húsabaki og læsi því. I bakdyranum stendur Jens kennari og er dálítið örari en endranær. Hann hvíslar og við göngum hljóðlega inn í miðstöðvarklef- 22

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.