Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 40

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Blaðsíða 40
ÁlOO.ártíð Guyde Maupassants Aþessu ári voru liðin 100 ár frá andláti eins mesta rithöfundar Frakka, Guy de Maupass- ants. Þessa var víða minnst í Frakklandi sl. sumar með fyrirlestrum, leik- og kvikmynda- sýningum. Hér á landi minntist félagið Alliance Enda þótt rithöfundarferill Guy de Maupassants stæði aðeins í rúmlega áratug, náði hann samt að skrifa 25 bækur og frægð hans lifir enn sem fyrr. Einna þekktastur varð hann fyrir smásögur sínar og skrifaði ekki færri en 300 og birtist ein þeirra hér. Eftir GUÐJÓN ÁRMANN EYJÓLFSSON Francaise Maupassants með fyrirlestri franska sendikennarans frú Francoise Peres og sýn- ingu á kvikmyndinni Sönn saga. Guy de Maupassant var fæddur í Normandí í Norður-Frakklandi 5. ágúst 1850 og andaðist 6. júlí 1893, tæplega 43 ára gamall. Afköst hans sem rithöfundar og ritsniUd voru einstök. Guy de Maupassant er einkum þekktur fyr- ir smásögur sínar og hafa nokkrar verið þýdd- ar á íslensku. Margar sögur Maupassants hafa verið kvikmyndaðar og fyrir nokkrum árum sýndi íslenska sjónvarpið 6 kvikmyndir gerðar eftir smásögum hans. Þetta var flokkur mynda sem franska sjónvarpið, TFl, lét gera; vel gerðar kvikmyndir sem sýna vel snilli Maup- assants, raunsæi og stundum harðan heim. I hnitmiðuðum smásögum segir hann oft meira en aðrir sem teygja lopann í heila bók. Nokkr- ar fleiri kvikmyndir hafa verið gerðir eftir sögum Maupassants og má hér nefna Manns- ævi ( Une vie) 1958, Saga úr sveitinni 1932, I húsi frú Tellier, Bel ami, Sönn saga o.fl. í dag er hann sennilega meira lesinn og þykir áhuga- verðari en flestir þeir höfundar sem voru hon- um samtíma og voru þá í meiri metum. Foreldrar Guy de Maupassants voru bæði ættuð frá Normandí, landeigendur sem til- heyrðu yfirstétt þess tíma. Hann ólst upp á herragarðinum Miromesni], fornri höli frá tím- um Normanna, þar sem hann fæddist, en höll- in er skammt frá borginni Dieppe, sem liggur að Ermasundi. Þau hjónin, Laure og Gustave Maupassant, eignuðust tvo syni en slitu sam- vistir eftir 14 ára hjónaband, þegar Guy var 10 ára gamall og hafði ósamlyndi þeirra og fjöDyndi föður hans í ástamálum ævarandi áhrif á hinn unga Guy. Móðir hans, Laure, kynntist ung Gustave Flaubert, sem er í röð mestu rithöfunda Frakka og m.a. þekktur fyrir skáldsöguna Frú Bovary, sem hefur verið þýdd á íslensku; ný- lega kvikmynduð í Frakklandi og sýnd hér á landi í fyrra. Vinfengi var með fjölskyldum þeirra og móðurbróðir Guy de Maupassants, Alfred le Poittevin og Gustave Flaubert voru nánir vinir. Alfred var efnilegt ljóðskáld, en dó ungur, aðeins 32 ára að aldri. Hann var Guy de Maupassant á sínum yngri árum. Hann var þó aðeins tæpra 43 ára þegar hann féll frá. öllum harmdauði ekki síst systurinni, Laure, sem sá í Guy, syni sínum og frumburði, bróður- inn Alfred endurborinn, en Laure var mikill aðdáandi Flaubert og bókmennta. Tvítugur að aldri tók Maupassant þátt í fransk-þýska stríðinu 1870-1871 og var í hemum í nærri því hálft annað ár. Þjóðverjar, sem voru þá nefndir Prússar, fóru herskildi um Norður- Frakkland og Normandí, hertóku Rúðuborg og sátu um París. Eftir fjögurra mánaða ums- átur, matvælaskort og stórskotahríð urðu Par- ísarbúar að gefast upp. Prússar niðurlægðu frönsku þjóðina og sú kynslóð Frakka, er leið hörmungar stríðsins gleymdi þeim aldrei; má hér nefna Clemenceau, sem var forsætisráð- herra Frakka við lok fyrri heimsstyijaldarinn- ar á árunum 1917-1920. En Clemenceau réði miklu um hina ill- ræmdu Versalasamninga árið 1919, sem með háum stríðsskaðabótum lagði á Þjóðverja svo óbærilegar byrðar, að þeir gátu vart staðið undir þeim, enda kom það siðar rækilega í ljós. Stríðið 1870-1871 hafði mikil áhrif á hinn unga Maupassant. Hann skrifaði nærri 20 smásögur sem fjölluðu um stríðið og líf fólks í Normandí á dögum styrjaldarinnar, margar þeirra eru meðal bestu smásagna hans eins og sögumar Tveir vinir, sem fjallar um París á dögum hins langa umsáturs, Ungfrú Fífi og Fitubolla (Boule de Suif). Þegar þessi saga birtist árið 1880 varð Maupassant frægur um aUt Frakkland, en sagan fjallar um fóðurlands- ást, hetjulund og fómfysi umkomulausrar vændiskonu frá Rúðuborg, uppskafningshátt og sérgæsku broddborgara, sem em að flýja stríðið. Gustave Flaubert nefndi söguna meist- araverk og eftir það gat Maupassant helgað sig ritstörfum og skáldskap. Stuttu eftir stríðið 1871 hóf Maupassant störf í Flotamálaráðuneytinu í París og starf- aði þar fram til 1880. Fyrir tilstilli móður sinnar varð Maupassant lærisveinn æskuvinar hennar, skáldjöfursins Gustave Flaubert, og frá árinu 1873 umgekkst hann hóp skálda og rithöfunda. I þeim hópi vom menn eins og Emil Zola, Alphonse Daud- et, Goncourt-bræður og Rússinn Tourguenjev. Maupassant hafði hina mestu óbeit á skriff- innskunni í flotamálaráðuneytinu og skrifaði frábærar sögur um smáborgaraháttinn sem þar viðgekkst, eins og Arfinn o.fl. sögur. A þessum ámm komu fram hinir frægu málarar birtu og ljóss, hinir svonefndu „impressjónist- ar“ (Monet, Manet, Renoir o.fl.). Árið 1874 var haldin fræg málverkasýning í París sem var upphaf sigurgöngu þeirra. Maupassant hreifst af þessum málumm og í sögum hans gætir stundum áhrifa þeirra, birtu og gleði. Hann var hraustur á yngri ámm, íþróttamaður ágæt- ur og stundaði róðra á Signu. Á þessum ámm var íjöldi útiveitingahúsa meðfram fljótinu, þar sem ungt fólk kom saman fékk sér rauðvínst- ár og naut útiverannar við sund og róður. Þama gleymdi Maupassant fábreytni og dranga flotamálaráðuneytisins; hann gæti vel verið einn gestanna á hinni frægu mynd im- pressjónistans Renoir, sem nefnist „Hádegis- verður róðrarmannanna" (Le déjeuner des canotiers). Maupassant naut lífsins á Signu, við róður, skógarferðir og lystisemdir á bökk- um árinnar og í verkum hans gætir víða áhrifa frá æskustöðvunum við Ermasund, ævintýram hans við Signu og siglingum á skútunni „Bel ami“ um Miðjarðarhaf. Frægustu sögur Maupassants gerast í Normandí, sveitunum í Caux-héraði og borgum sem standa neðan til við fljótið og liggja að Ermasundi, Rúðuborg, hafnarborginni le Havre og minni bæjum norður með ströndinni eins og Etretat, Fécamp og Dieppe, þaðan sem siglingar hafa verið stundaðar lengi. Síðar á stuttri ævi, þegar Maupassant græddist fé af ritstörfum eignaðist hann glæsi- legan seglbát, sem hann nefndi Bel ami eftir einni frægustu skáldsögu sinni. Á þessum fal- lega seglbát sigldi hann um Miðjarðarhafið, til norðurstranda Afríku, Alsír og Ítalíu, sí- Samtíma skopmynd af Guy de Maupass- ant með nokkrar bóka sinna. skrifandi, bæði skáldverk og frábærar ferða- lýsingar. Maupassant lifði oft ástríðufullu lífi og naut lystisemda holdsins bæði með yfirstéttarkon- um og gleðikonum, sem hann skrifaði um af raunsæi, mikilli samúð og skilningi á dapur- legu hlutskipti þeirra og eymd, en hjónaband var honum ætíð fjarri. Eins og margir líf- snautna- og yfirstéttarmenn á þessum tíma (t.d. Randolphe Churchill fjármálaráðherra Bretlands um tíma, faðir Winstons Churchills, o.fl.) „bar hann þess sár um ævilöng ár, sem aðeins var stundargleði". Árið 1877 fékk Maupassant sárasótt (syfilis) er kom löngu síðar fram sem geðveiki er ágerð- ist svo með áranum, að síðasta hálft annað árið sem hann lifði, frá því í janúar 1892, dvaldi hann á geðveikrahæli í París og þar andaðist Maupassant hinn 6. júlí 1893. Afleiðingum þessa sjúkdóms, hugaróram og skynvillum lýsir hann frábærlega í sögunni Horla. Rithöfundarferill Guy de Maupassants stóð aðeins í rúm 10 ár; frá 1880-1890. Á þeim árum vora gefnar út eftir hann 25 bækur. Þegar öllu sem hann hafði ritað var safnað saman vora ritverk hans gefin út í um 30 bind- um. Hann ritaði um 300 smásögur, sem birt- ust margar í fyrstu í samtímablöðum, en síðar í 18 smásagnasöfnum, 6 langar skáldsögur og er þeirra á meðal Bel ami, Pierre og Jean, 3 ferðasögur, 3 leikrit og 1 ljóðasafn og ennfrem- ur skrifaði hann tugi blaðagreina. Maupassant ritaði bragðmikinn stíl, knappan og skýran og hefur verið nefndur „nútímablaðamaður" af einum þeirra fjölmörgu bókmenntafræðinga sem hafa ritað um verk hans. Lengi vel var Guy de Maupassant í meiri metum erlendis en í Frakklandi og þótti ekki nógu fínn fyrir gáfu- mannaliðið þar í landi. Samlöndum hans sum- um þótti hann vanta fágun Flaubert og duid Tsjekhovs. Maupassant skrifaði um efni sem átti löngum ekki heima í bókmenntum sam- tímans, en verk hans hafa sannarlega staðist tímans tönn og unnið á. Hann var hinn kjarn- yrti sögumaður, laus við kreddur, vangaveltur og boðun stefriu eða fagnaðarerindis eins sum- ir samtímamenn hans tíðkuðu. Nokkrar sögur eftir Maupassant hafa verið þýddar á íslensku. Flestar smásögumar hefur dr. Eiríkur Albertsson þýtt. Árið 1968 komu út Þrjátíu smásögur í útgáfu Bókaútgáfunnar Glóðafeykis, tuttugu þessara smásagna höfðu áður komið út hjá Leiftri árið 1946. Árið 1931 komu út í Reykjavík smásögur, sem Prent- smiðjan Acta gaf út, en ekki er getið um þýð- anda og árið 1939 kom út hjá Bókaútgáfunni Eddu á Akureyri Flóttamenn saga úr fransk- þýska stríðinu 1870-1871, en ekki er getið um þýðanda. BókfeUsútgáfan gaf út skáldsöguna Bel ami árið 1949, sem Hersteinn Pálsson sneri úr ensku. í smásagnasafni Almenna bókafélagsins árið 1984 birtist í 4. bindi þýddra smásagna sagan Boitelle. í ágætum formála, sem dr. Eiríkur Alberts- son ritaði með Þijátíu smásögum segir hann m.a. : „Raunhyggja Maupassants var fullkom- in, hann var nokkuð kaldhæðinn, en djúp, hljóðlát tilfinning er þó að baki... Hann er glöggur á mannlíf og kjör manna og hann tók sér fyrir hendur að lýsa þessu eins og honum kom það fyrir sjónir á gagnorðu og þróttmiklu máli... Hann átti hið glögga auga málarans fyrir svipbrigðum náttúrunnar, enda era nátt- úralýsingar hans jafnan fjörmiklar og sannar. Hann er snjaU þegar hann lýsir skapgerð manna. En sniUi hans kemur þó skýrar fram í sjáifri frásögninni, í hófsömum rithætti, drengUegri sanngimi og hlutleysi, augljósri samverkan athafna annars vegar og kenja og bragðvísi hins vegar... Snilldarverk mannsand- ans era alltaf ný. Meðal þessara síungu verka era smásögur Guy de Maupassantis.“ Ég hygg að þetta séu orð að sönnu um þenn- an mikla rithöfund. Höfundur er skólastjóri Stýrimannaskólans og áhugamaður um franskar bókmenntir. Forsíðumynd á franska bók- menntatíma- ritinu Maga- zine littéraire af Guy de Maupassant, þegar minnst var 100. ártíðar hansfyrrá þessu ári. 40

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.