Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Side 33
Aðseturstaður
„Holger Danske“
hópsins í Kristja-
níu. Innsett neðst
er mynd af minn-
ingarskildinum
sem komið hefur
verið fyrir yfir dyr-
unum.
Ebba og Gunnar Bjarnarson á heimili sínu í Kaupmannahöfn.
að ég hjólaði neðan úr bæ og út á Friðriks-
berg, þar sem Forum er. Tveir fóru inn í
bygginguna og náðu í verkstjórann og ann-
an mann sem voru þar inni og gáfu mér
merki um að þeir væru undir eftirliti. Eg
gaf þá fjórða félaga okkar merki og hann
kom inn með ölkassann með sprengiefninu,
en kassann hafði hann komið hjólandi með.
Við ákveðið merki átti hann að kveikja í
sprengiefninu. Við flýttum okkur út, leiðir
skildu og ég hjólaði niður í bæ. Sprenging-
in heyrðist víða.“
Það sem Gunnar vissi ekki var að sá sem
kveikti í hafði misskilið merkið. Sönderga-
ard, leiðtogi hópsins, var ekki kominn í
öruggt skjól og hann slasaðist illa. Hann
náði sér í íyrstu, en lést af afleiðingum
meiðslanna 1946. Af þeim fjóram sem ásamt
Söndergaard og Gunnari komu Holgem
danska á laggirnar vorið 1943 dóu tveir á
stríðsáranum, annar eftir pyntingar Þjóð-
verja og hinn drukknaði á flótta til Svíþjóð-
ar. Um einn er vitað að hann lést eftir stríð-
ið, en dánarorsök er ókunn. Sá fjórði dó
1981, en var vart vinnufær í stríðslok.
Njósnari fyrir bandamenn
Um þetta leyti lenti Söndergaard og fleiri
úr hópnum í skotbardaga við Þjóðverja og
neyddust til að flýja yfir til Svíþjóðar.
„Ég frétti um flóttann frá einum félaga
okkar, sem færði mér fréttirnar í búðina
um að hópurinn hefði splundrast. Mér
fannst óvarlegt að halda áfram. Ég vissi
ekki hve mikið Þjóðverjamir vissu, svo ég
ákvað að fara til Svíþjóðar líka, þar til mér
væri staðan ljós og fór í september. Það
herti á mér að ég fékk nafnlaust skeyti þar
sem stóð að jörðin brynni undir fótum
mér. Ég spurði vini og vandamenn hver
hefði sent skeytið, en enginn kannaðist við
það. Sjálfur held ég að bróðir minn hafi
sent mér það, þó að hann neitaði því.
Hugmyndin var þó ekki að fara bara
yfir og gera ekkert, heldur að athuga.hvem-
ig væri best að halda áfram andspyrnunni.
Ég og annar, sem hafði flúið með mér,
höfðum samband við enska ræðismanninn,
en fengum synjun um að fara til Englands.
Þá höfðum við samband við bandaríska
ræðismanninn, Morby, um hvort við gætum
lagt eitthvað af mörkum sem hermenn. Það
var ekki, en hins vegar vildi Morby gjarnan
fá upplýsingar um Þjóðverja í Danmörku
og við gengumst inn á að freista þess að
afla þeirra. Við fóram svo yfir til Helsingja-
eyrar, eins og fyrir okkur var lagt. Þar
áttum við að fara í tóbaksbúð og biðja um
Pall Mall sígarettur og þá fengjum við frek-
ari leiðbeiningar. Við áttum að safna upplýs-
ingum um þýska hermenn og búninga
þeirra, til að komast að hvaða herdeildir
væra hvar, um viðvörunarkerfi við Kastrup
og sprengjubelti í Eyrarsundi.
Við vorum í sambandi við sjómann, sem
ferjaði okkur á miili, og í einni ferðinni
vorum seint á ferð, komið fram yfir mið-
nætti, þegar hann setti okkur af við Lim-
hamn. Við vorum þreyttir og það var drjúg-
ur spölur inn til Malmö svo við freist-
uðumst til að taka leigubíl. Bflstjórinn hef-
ur örugglega haft fyrirmæli um að segja
lögreglunni af óvenjulegum mannaferðum
svo við voram varla háttaðir á gistiheimflinu
þegar lögregluna bar að. Þrátt fyrir sam-
bönd okkar við sænska herinn vorum við
dæmdir í þrjátíu daga varðhald. Dómarinn
var þó svo mannlegur að hann gaf okkur
leyfi til að afplána dóminn eftir jól. Okkur
fannst dómurinn blóðugt óréttlæti og
ákváðum að fara aftur heim og koma upp-
lýsingum þaðan til Morbys.
Ölkassinn - sprengiefnið sem notað var
til að sprengja upp Forum var falið á
botni hans.
Veðrið var leiðinlegt, við lentum í hrakn-
ingum og báturinn missti rá og segl. Við
komumst þó klakklaust yfir að Amager um
miðnætti,
Svik og dauðadómur
„f Kaupmannahöfn hélt ég áfram að
safna upplýsingum í janúar 1944. Ég þorði
nú ekki lengur að búa heima hjá mér held-
ur fékk inni á trúboðshóteli í Löngangs-
stræde, þar sem ég þekkti hótelstjórann.
Peningaráðin leyfðu þó ekki að ég byggi
þar lengi, svo þá var að finna eitthvað ann-
að. Ég fór þá til kunningja míns úr „Nati-
onalt Væm“, sem hét Bjömestad og ég
hafði oft áður talað við. Hann vissi að ég
var að leita upplýsinga, en ekki að ég hefði
tekið þátt í skemmdarverkastarfsemi. Ég
þekkti ritara hans og hún sagði mér að
Bjömestad væri orðinn drykkfelldur. Síðar
frétti ég að hann hefði líka allt í einu haft
fé milli handa. Hann bauðst til að lána mér
lykla að íbúð og þangað hélt ég. Þangað
hringdi Björnestad og sagðist bara ætla
að vita hvort ég væri kominn, því hann
ætlaði að koma við. Það var þó ekki hann
sem kom, heldur Gestapó. Þá lá leiðin í
höfuðstöðvar Þjóðverjanna í Dagmarhúsi.
Ég var yfirheyrður sem njósnari, en ég
var óöruggur, því ég vissi ekki hvað Þjóð- -
verjarnir vissu. Mér vai' haldið í Dagmar-
húsinu og yfirheyrður nokkram sinnum.
Ég sá líka Björnestad bregða fyrir þar, en
hann baf hendina upp að andlitinu og reyndi
að fela það. Ekki var ég í vafa um hver
hafði komið mér í fangelsi. Ákærurnar á
hendur mér voru heldur lauslegar. Þegar
þýski varðmaðurinn kallaði á mig einn dag-
inn reiknaði ég með að nú ætti að láta mig
lausan. Það var þó ekki, heldur var ég flutt-
ur í einangrun, svo ég sá að ástandið versn-
aði. Um sumarið var ég dreginn fyrir her-
rétt, gefið að sök að vera hótun við þýska
ríkið og nýja skipan í Evrópu. Danski verj-
andinn minn notaði ungan aldur minn mér
til afsökunar, en allt kom fyrir ekki. Ég
var dæmdur til dauða, en jafnframt gefið
tfl kynna að dómnum kynni að verða breytt.
Við voram þrír, sem vorum dæmdir saman.
Einn grét og ég huggaði hann. Lfldega var
ég eins og í losti. Eg man að veðrið var
yndislegt og sólin skein. Svo lá leiðin í fang-
elsið, þar sem ég var látinn skrifa náðunar-
beiðni og biðin tók við.
Óvissan vai- erfið. í hvert sinn sem ég
heyrði umgang fékk ég ógurlegan hjart-
slátt. Eftn nokkrai’ vikur var dómnum
breytt í sextán ára refsivinnu, en mér sagt
að ef ég hegðaði mér vel gæti ég átt von
á náðun frá Hitler eftir stríð. Ég var keyrð-
ur á aðaljárnbrautarstöðina, þaðan sem
leiðin lá til Þýskalands.
Ég vissi ekki hvernig þýskar fangabúðfr
htu út innan frá og vissi ekki um útrýming-
arbúðir þeirra, en bjóst ekki við neinu góðu.
Hugmyndaflug mitt hrökk þó ekki til að
ímynda mér eymdina þarna. Um leið og
ég kom var ég færður til klippingar, sem
ekki var vandað tfl að öðra leyti en að ég
var snoðaður. Árangurinn gat ég þó ekki
séð, því enginn var spegillinn. Fötin vora
tekin og mér fengin fangaklæði í staðinn
og málmskilti um hálsinn. Daginn eftfr að
ég kom fékk ég poka með böndum, sem
ég átti að greiða úr. Næsta verkefni var
að gera við herbúninga, en einnig þetta
virtist ég leysa viðunandi af hendi, því
næst var ég settur í að flokka kartöflur og
annað grænmeti, taka frá rotnandi kartöfl-
ur til að þær skemmdu ekki frá sér. Senni-
lega bjargaði þessi vinna mér, því þama
var þó möguleiki á að grípa sér mat. Fæð-
ið var meira en skorið við nögl og margir
dóu úr hungri. Okkur tókst að koma upp
eldunaraðstöðu og hámarkið var þegar
nokkrir félaga minna sneru kött úr hálshðn-
um, fláðu hann og suðu. Mér lá við að kasta
upp, þegar máltíðin var tflbúin.
Én nú fór að haha undan fæti fyrir Þjóð- :
verjum og svokahaðar hvítar rútur komu
frá Danmörku og sóttu danska og norska
fanga. Við voram keyrðir tfl Neuengamm-
en, sem voru útrýmingarbúðir, þó þær
væru víst ekki þær verstu".
I sænsku fangelsi eftir stríð
„Við höfðum fengið að vita að við yrðum
þeir fyrstu sem fengjum að fara til Dan-
merkur og það gekk eftir. Við voram þvegn-
ir og aflúsaðir og þarna upplifðum við upp-
gjöf Þjóðverja. Nú vorum við settir í lest,
sem átti að flytja okkur til Kaupmannahafn-
ar. Við höfðum engin skflrfld, aðeins smá
kvittun þar sem stóð að við kæmum úr
þýskum fangabúðum. í Ystad kom lögreglu-
þjónn um borð í lestina og spurði eftir :
Gunnari Bjamarsyni. Ég gaf mig glaðlega
fram og hélt að hann flytti mér kveðjur að
heiman. En kveðjumar vora þó heldur kald-
ar, því mér var sagt að ég ætti enn eftdr
að afplána þrjátíu daga varðhald og gert
að stíga af lestinni. Nú lá leiðin í fangelsi
alveg við hhðina á járnbrautinm, svo ég
heyrði húrrahróp fyrrum samferðamanna
minna þegar lestin lagði af stað. Ég hefði
getað grenjað af biturð. Ég fékk þó leyfi
til að skrifa bréf tfl Mogens Fog. Hann var
í Frelsisráðinu, sem var samband and-
spymuhópanna og varð ráðherra eftir stríð.
Hann kippti í spotta og fékk Gústaf Svía-
konung tfl að náða mig. Þetta tók um tíu
daga.
Ég var frjáls maður í júní. Rétt eins og
ég varð af 9. aprfl 1940 í Danmörku upp-
lifði ég heldur ekki 5. maí 1945 heima.
Ég heimsótti nú fjölskyldu og vini og
gleðin yfir endurfundunum var mikil. Ég
tók frí og hvfldi mig tfl að ná aftur kröft-
um. Verslun mín var úr sögunni, af því ég
hafði verið í burtu, en ég fékk vinnu við
verslunarfyrirtæki og varð síðar sjálfstæð-
ur. Þegar ég hætti með fyrirtækið 1981 kom
ég á stofn UNICEF-verslun í Kaupmanna-
höfn, þar sem ég hætti þegar ég varð 75 ára.
Uppgjörið eftir stríðið tók nokkum tíma,
en mestu átökin vom gengin yfii’ þegar ég
kom aftur tfl Danmerkur. Það vora ýmsir
teknir, dönsku stúlkurnar sem vora lags-
konur Þjóðverja vora snoðaðar, en eins og
alltaf þá fengu þeir litlu að kenna á því,
meðan margh’ þeirra stóra sluppu. Sumir
vora dæmdir í ævilangt fangelsi, en síðan
náðaðir eftir nokkur ár. Ég hafði þegar
frétt að Bjömestad hefði verið tekinn af
meðlimum „Nationalt Værn“, færður út í
skóg og skotinn sem svikari. Mér var ekki
hefnd í huga, það var svo margt annað sem
kahaði.
Andspyrnumenn í óþökk
„ í upphafi voru bæði danskh’ stjórnmála-
menn og margir landar mínir á móti and-
spyrnuhreyfingunni, auk Þjóðverjanna auð-
vitað. Við vorum nokkurs konar afbrota-
menn og stjómmálamenn hvöttu fólk til að
koma upp um okkur. Afstaðan breyttist
smátt og smátt, ekki síst eftir omstuna um
Stalíngrad. Svíar vora líka mjög á bandi
Þjóðverja fram að því, leyfðu þeim meðal
annars að fara um Svíþjóð með herafla
gegn Norðmönnum. Svíar voru eins og mús
undir fjalaketti.
Eldri kynslóðin hélt að sér höndum, eig-
inlega vai’ andspyrnuhreyfingin nokkurs
konar ungmennauppreisn. Við fylgdum
samvisku okkar og tókum ekki tilht til neins
annai’s. Fjölskyldan var ekkert hrifin af «■
athæfi mínu, frekar en svo margir aðrir.
Það var litið á okkur sem ævintýramenn
og hálfgerða angm’gapa í byrjun, alls ekki
sem neinar hetjur. Við voram heldur engai’
hetjur, gerðum bara það sem þurfti".
Höfundur býr t Danmörku og skrifar að staðaldri í
Morgunblaðið
i
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 20. DESEMBER 1993 33