Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 19
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 19
Til sölu toppeintak!
VW Bora ´00, ssk., highline,
hvítur. Ekinn 18 þ. km.
17" álfelgur, topplúga,
geislasp., rafm. í rúðum,
samlitur, aksturstölva,
viðarinnrétting o.fl.
Verð 1.850 þ. kr.
Nánari uppl. í síma 897 3202
Heimsferðir opna þér leiðina til Ítalíu
á verði sem hefur aldrei sést fyrr á
Íslandi. Vikulegt flug alla föstudaga
til Mílanó, þessarar háborgar lista og
tísku í heiminum. Hér kynnist þú listaverkum Leonardo da Vinci,
Scala óperunni með frægustu listamönnum heimsins, hinum
fræga miðbæ, þar sem Duomo dómkirkjan gnæfir yfir, hinni
þekktu verslunargötu Galeria Vittorio Emanuele II, ráðhúsinu,
glæsilegustu verslunum heimsins, listasöfnum og nýtur lífsins í
þessu menningarhjarta Evrópu.
Toscana, Feneyjar, Róm, Flórens eða Pisa
Frábært verð á flug og bíl og þú getur valið um ótrúlegan fjölda
spennandi áfangastaða í aðeins nokkurra klukkustunda aksturs-
fjarlægð:
Flórens - Assisi - Verona - Feneyjar - Róm - Pisa - Lago di Garda
- Lago di Como - Nice - Munchen - Zurich - Salzburg - Vín.
300
sæti til
Mílanó
í sumar
frá
19.900*
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 19.900
Gildir fyrir fyrstu 300 sætin sem
bókuð eru til Mílanó í sumar. M.v.
hjón með 2 börn, 2-11 ára.
Skattar, kr. 2.495 fyrir fullorðinn, kr.
1.810 fyrir barn, ekki innifaldir.
Verð kr. 22.400
Flugsæti fyrir fullorðinn.
Skattar kr. 2.495 ekki innifaldir.
Millilent í Kaupmannahöfn á báðum
leiðum.
Flug alla föstudaga
Brottför frá Keflavík kl.17.10
Flug heim á
miðvikudagsmorgnum
Opið í dag
frá kl. 12-16
SÖNGVAR frá sjónarhóli barna er
yfirskrift ljóðatónleika í Salnum í
Kópavogi annað kvöld, mánudags-
kvöld, þar sem Margrét Bóasdóttir
sópransöngkona og Miklós Dalmay
píanóleikari flytja íslenska og er-
lenda ljóðasöngva sem allir fjalla um
börn eða eru lagðir börnum í munn.
Tónleikarnir eru í Tíbrárröð Salar-
ins og hefjast kl. 20.00.
Þau Miklós og Margrét eru sam-
mála um að eitt af sérkennum allra
söngvanna á efnisskránni sé að pí-
anóið og röddin séu jafnmikilvæg.
„Þetta er ekki söngur með undirleik,
heldur besta gerð af kammertón-
list,“ segir hún.
Þó að allir séu söngvarnir á einn
eða annan hátt tengdir börnum
segja þau samt alls ekki ætlast til að
börn syngi þá. Hins vegar hafa þau
þegar fengið staðfestingu á því að
börn hafi gaman af þeim, því börn-
unum sem mættu á tónleika þeirra á
Selfossi á dögunum, þar sem þau
fluttu sömu efnisskrá, fannst „ægi-
lega gaman“ eins og Margrét orðar
það. Það var ekki síst lagaflokkurinn
Barnaherbergið eftir Modest Múss-
orgskíj sem féll í kramið hjá yngri
kynslóðinni. Þar er í aðalhlutverki
drengurinn Mischa og ævintýra-
heimur hans. Barnfóstran segir hon-
um sögur, huggar hann, skammar
og sendir í skammakrókinn, sjálfur
skammar hann líka dúkkuna sína
áður en hann svæfir hana, hann bið-
ur bænirnar sínar og hann ríður
þeysireið á tréhesti um allt herberg-
ið. „Píanóið sér um það,“ segir Mikl-
ós. „Þarna er allt; óp og óhljóð, grát-
ur og gnístran tanna – þetta er
nærri því söngleikur,“ segir Margr-
ét. „Það er leikrit,“ segir Miklós og
Margrét samsinnir: „Það er ekki
hægt að syngja þetta öðru vísi en að
leika.“
Tónleikarnir hefjast á Lögum
handa litlu fólki eftir Þorkel Sigur-
björnsson við ljóð úr Fiðrildadansi
eftir Þorstein Valdimarsson. Lögun-
um lýsa þau Margrét og Miklós sem
smámyndum og stemmningum.
„Þorkell samdi þetta árið 1971 fyrir
Elísabetu Erlingsdóttur, sem þá var
söngkennarinn minn í Tónlistar-
skóla Kópavogs,“ segir Margrét.
Barnalög – í gamni og alvöru eftir
Elínu Gunnlaugsdóttur eru næst á
efnisskránni en þau eru frá 1994. Þá
frumflytja þau tvö splunkuný lög
eftir Elínu við ljóð Jóns úr Vör; Sof-
andi barn og Stillt og hljótt. „Mér
finnst þessi stíll sem hún hefur til-
einkað sér mjög fallegur, hann er
svo tær og einfaldur, náinn og ein-
lægur,“ segir Margrét og bætir við
að sér þyki Elín og Jón úr Vör passa
mjög vel saman; bæði séu þau fámál
en tjáningin þó mjög skýr.
Ekki syngja eins og fullorðnir
halda að börn eigi að syngja
Eftir Leonard Bernstein flytja
þau lagaflokkinn I hate music! en
textarnir eru einnig eftir tónskáldið,
rétt eins og textarnir við Barnaher-
bergi Mússorgskíjs. „Bernstein hef-
ur skrifað fremst í nóturnar að
söngvarinn eigi ekki að falla í þá
gryfju að syngja lögin eins og full-
orðnir haldi að börn eigi að syngja,
heldur eigi að nálgast þau með heið-
arleika,“ segir söngkonan.
Vögguljóð Maríu og Kóngurinn
frá Austurlöndum eru söngvar úr
Slichte Weisen eftir Max Reger,
sem tengjast helgileikjum fyrir
börn. Valið á þessum söngvum sem
tengjast jólum rökstyður Margrét
með því að í gamla daga hafi jólin
ekki verið búin fyrr en á kyndil-
messu.
Næstsíðust á efnisskránni eru tvö
lög eftir Robert Schumann, „um
maríuhænuna, dúfurnar og tunglið“,
og rúsínan í pylsuendanum er svo
Barnaherbergið eftir Mússorgskíj,
sem áður er getið.
Þeysireið á tréhesti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Miklós Dalmay píanóleikari og Margrét Bóasdóttir sópransöngkona
flytja söngva frá sjónarhóli barna í Salnum á mánudagskvöld.
Á SMÍÐAVERKSTÆÐI Þjóðleik-
hússins er verið að sýna Ástkonur
Picassos. Þar birtast sex ástkvenna
málarans og segja hver sína sögu af
samskiptum sínum við hann. Næsta
mánudagskvöld kl. 20.30 verður
dagskrá í Listaklúbbi Leikhúskjall-
arans helguð hinum kunna málara.
Auður Ólafsdóttir listfræðingur
fjallar um list Picassos. Sæunn
Kjartansdóttir sálgreinir flytur er-
indi og sálgreinir Picasso ástkvenn-
anna og leikkonurnar í sýningunni
á Smíðaverkstæðinu, þær Margrét
Guðmundssdóttir, Helga E. Jóns-
dóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir,
Ragnheiður Steindórsdóttir, Guð-
rún S. Gísladóttir og Anna Kristín
Arngrímsdóttir ásamt leikstjór-
anum, Hlín Agnarsdóttur, segja frá
leikhúsvinnunni og leika brot úr
verkinu.
Umræður verða í lok dagskrár-
innar.
Picasso í
Leikhús-
kjallaranum
Úr leikritinu Ástkonur Picassos.
Grófarhúsið, Tryggvagötu
Í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15,
stendur yfir sýning á verkum eftir
Elísabetu Yuka Takefusa, Inga
Hrafn Stefánsson, Ingunni Birtu
Hinriksdóttur og Sigrúnu Huld
Hrafnsdóttur. Þau hafa öll verið í
einkatímum í „frjálsri málun“ hjá
Lóu Guðjónsdóttur sem hefur und-
anfarin ár kynnt sér kennslu, gallerí
og vinnuaðstöðu fatlaðra í Rotter-
dam í Hollandi.
Sýningin stendur fram á sunnu-
dag og er opin daglega frá kl. 13-17.
Sýningu
lýkur
♦ ♦ ♦