Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 53 DAGBÓK STJÖRNUSPÁ eft ir Frances Drake VATNSBERI Afmælisbarn dagsins: Þú ert ákveðinn og metnaðarfullur og hefur hæfileika til margs og vilt láta til þín taka í félagsmálum. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Fjarvistir og ferðalög geta tekið sinn toll hjá öðrum í fjölskyldunni. Hafðu þetta hugfast þegar þú ráðstafar tíma þínum. Naut (20. apríl - 20. maí)  Einhver vandræði valda þér hugarangri fram eftir degi. Það sem þú þarft að gera er að greina kjarnann frá hism- inu og hreinsa andrúmsloftið. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Það er nauðsynlegt að létta af hjarta sínu af og til og best er að tala við þann sem maður treystir og veit að getur gefið góð ráð. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Óvænt tækifæri geta boðist og þá er að hugsa sig vel um áður en ákvörðun er tekin. Það er ágætt að vera heima- kær en of mikið má af öllu gera. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Mundu að það er vel hægt að halda á sínum málstað án þess að setja öðrum úrslita- kosti, eða beita öðrum þving- unum. Oft er betra að fara hægt af stað. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Fyrirhyggja í fjármálum er nauðsynleg þessa dagana. Allir hlutir kosta sitt en það er forgangsröðin sem skiptir máli. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Ekki er allt gull sem glóir. Það á við bæði í einkalífi og starfi og best að fara varlega á báðum sviðum. Gerðu þér dagamun í kvöld. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Í öllum samböndum verða menn að taka tillit til annarra og stundum er það lausnin að leyfa sjónarmiðum annarra að ráða. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Allir samningar byggjast fyrst og fremst á málamiðl- unum. Sýndu fyllstu gætni þegar skilmálar eru settir og skoðaðu smáa letrið. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það er margt sem fyrir liggur hjá þér þessa dagana. Eyddu því tímanum ekki í volæði, heldur brettu strax upp erm- arnar og taktu til hendinni. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Ýmsir nýir möguleikar opn- ast í starfi og þú þarft að sýna mikinn sveigjanleika til þess að nýta þér þá eins og vert væri. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þar sem um sameiginleg fjár- hagsmálefni er að ræða er nauðsynlegt að menn geti rætt saman og sýnt næga til- litssemi. Að öðrum kosti get- ur farið illa. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Í ÞÆTTI gærdagsins sáum við fallegt spil með Svíanum Maarten Gust- awsson úr tvímenningi í Stokkhólmi, þar sem hann spilaði á móti Magnúsi Magnússyni. Gustawsson var í sigur- liði Svía á NL í Hvera- gerði síðastliðið vor og það voru ennfremur sig- urvegarar tvímennings- ins – ungliðarnir Fredrik Nyström og Peter Strömberg. Magnús og Strömberg eru góðir félagar. Að sögn Magn- úsar er Strömberg hóg- værð ekki í blóð borin, en hér er hann við stýrið í fjórum spöðum og sagði Magnúsi að það hefði tekið sig innan við tvær mínútur að innbyrða tólf slagi: Norður ♠ ÁK3 ♥ ÁK75 ♦ 654 ♣ Á32 Vestur Austur ♠ 8762 ♠ G ♥ 84 ♥ DG32 ♦ 10932 ♦ K87 ♣D108 ♣KG954 Suður ♠ D10954 ♥ 1096 ♦ ÁDG ♣76 Fljótt á litið lítur út fyrir að sagnhafi hljóti að gefa tvo slagi – einn á hjarta og annan á lauf. Strömberg fékk út hjartaáttu. Hann stakk (fljótt) upp hjartaás og lét tíuna undir heima. Svínaði í tígli, fór inn í borð á spaðaás og svínaði aftur í tíglinum. Tók svo tromp vesturs og tígulás. Loks spilaði hann síðasta trompinu sínu og var þá með fjögur spil á hendi: í blindum átti hann K7 í hjarta og Á3 í laufi, en heima 96 í hjarta og 76 í laufi. Austur varð að hanga á DG3 í hjarta, því ella mætti fría slag á lit- inn og henda niður laufi heima. Austur kastaði því laufi. Þá tók Ström- berg laufás (ein og hálf mínúta liðin) og spilaði svo smáu hjarta að ní- unni. Austur drap (og ní- an fór slaginn) og síðan varð austur að senda hjarta upp K7 blinds. Vel spilað og góður tími. BRIDS Umsjón Guðmundur Páll Arnarson LJÓÐABROT Á heiðinni Geng ég og þræði grýtta og mjóa rökkvaða stigu rauðra móa; glóir, liðast lind ofan þýfða tó, kliðar við stráin: kyrrð, ró. Litir haustsins í lynginu brenna; húmblámans elfur hrynja, renna í bálin rauðu, rýkur um hól og klett svanvængjuð þoka sviflétt. Húmflæðin djúpum dökkva hylja glæður og eim; við eyra þylja náttkul í lyngmó, lindir, mín æðaslög dul og heimaleg draumlög. Snorri Hjartarson Árnað heilla 60ÁRA afmæli. Sextug-ur er í dag, sunnu- daginn 28. janúar, Herbert Guðmundsson, sem rekur nú einkafyrirtæki sitt Nest- or – kynning og ráðstefnur, Auðbrekku 2, Kópavogi. Hann var um árabil félags- málastjóri Verslunarráðs Íslands o.m.fl. Drengurinn er í fullu fjöri, utan seilingar í dag. Samband ef vill: nest- or@mi.is, fax 4913734 eða Íslandspóstur (fyrir stærri sendingar). Hann sendir öll- um nær og fjær, heillaóskir. 50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 28. janúar, er fimmtug Erla Vil- hjálmsdóttir, Heiðarlundi 8e, Akureyri. Eiginmaður hennar er Jón M. Þengils- son. Þau eru að heiman á af- mælisdaginn. 75 ÁRA afmæli. Mið-vikudaginn 31. janú- ar verður sjötíu og fimm ára Jón Einarsson málara- meistari, Arnarhrauni 37, Hafnarfirði. Kona hans er Guðrún Valberg. Börn þeirra hjóna verða með opið hús í Stjörnuheimilinu, Garðabæ, í dag, sunnudag- inn 28. janúar, frá kl. 15 til 19. 60 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 29. janúar verður sextugur Magnús S. Jónsson, tæknifræðingur og kennari Kvistalandi 6, Reykjavík. Eiginkona Magnúsar er Þórhildur M. Gunnarsdóttir. Þau verða að heiman á afmælisdaginn. 80ÁRA afmæli. Mánu-daginn 29. janúar verður Sigurður Emil Ágústsson, fyrrverandi lögregluþjónn, Njörva- sundi 10, Reykjavík, átt- ræður. Sigurður tekur á móti gestum í Víkingasal Hótel Loftleiða á afmælis- daginn frá kl. 17 til 20. STAÐAN kom upp á Skákþingi Reykjavíkur á milli þeirra Kristjáns Arnar Elíassonar (1.685), hvítt, og Stefáns Arnalds (1.910). Svartur lék síðast 19. ...Hab8 sem reyndist misráð- ið en 19. ...De5 hefði tryggt honum prýðilega stöðu. 20. Hxf6! Hxb2 Ekki mátti þiggja hrókinn þar sem eftir 20. ...Kxf6 21. Rd5+ tapar svartur drottn- ingunni. 21. Hf2 De5 22. Haf1 Heb8 23. a4 H8b4 24. Rd1 Hb1 25. c3! og hvítur vann nokkru síðar. 10. umferð Skákþings Reykjavíkur fer fram í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur 28. janúar kl. 14. Áhorfendur eru vel- komnir. Corus skákmótinu í Wijk aan Zee lýkur í dag, 28. janúar. Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með skákunum á Netinu í beinni útsend- ingu en nánari upplýsingar um það er hægt að finna á skak.is. Hvítur á leik SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson 50 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 28. janúar, er fimmtug Hrafn- hildur Kristrún Kristjáns- dóttir, yfirféhirðir Íslands- banka FBA í Skútuvogi, Réttarbakka 1, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Garðar Erlendsson. Hrafn- hildur og Garðar bjóða fjöl- skyldu, vinum og samstarfs- fólki að vitja sín og þiggja veitingar milli kl. 16 og 18 í Oddfellowhúsinu, Vonar- stræti, Reykjavík, á afmæl- isdaginn. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN Opinn fundur heilbrigðisnefndar Sjálfstæðisflokksins Heilbrigðismál aldraðra Frummælendur: Vilborg Ingólfsdóttir hjúkrunarfræðingur Pálmi V. Jónsson læknir Þórunn Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur Ásta Möller þingmaður Fundarstjóri: Jóna Gróa Sigurðardóttir borgarfulltrúi Síðan verða almennar umræður. Allir áhugamenn um heilbrigðismál aldraðra eru velkomnir. Fundarstaður: Valhöll, Háaleitisbraut 1. www.xd.is, sími 515 1700 Þriðjudagur 30. janúar kl. 17-19 í Valhöll Fataleiga Garðabæjar sími 565 6680. Opið virka daga kl. 10-18, laugardaga kl. 10-14. Seljum næstu daga lítið notaða samkvæmiskjóla á xit, hárstofu, í Hlíðasmára 9, Kópavogi, sími 564 6444 og 564 6445. Verið velkomin. Lísa Jóhannesdóttir. Hef opnað naglastofu Heiðrún Níelsdóttir Hef hafið störf á hársnyrtistofunni Korner Býð alla viðskiptavini velkomna. Símapantanir í síma 544 4900. Opið mán. 10-18, þri. 9-18, mið. 9-22, fim. 9-18, fös. 9-18, lau. 10-16.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.