Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 50
50 SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
! !
" #
$
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100 Símbréf 569 1329
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UNDANFARIÐ hafa borist fregn-
ir af kraftmiklum verktökum sem
hafa uppi áætlanir um að gera
landfyllingu langt út í Arnarnes-
vog í Garðabæ. Þetta eru menn úr
öðru byggðarlagi sem hafa greini-
lega afar litla tilfinningu fyrir
svæðinu sem þeir eru að fjalla um
en sjá fyrst og fremst mikla gróða-
von í þessum hugmyndum. Hvern-
ig getur nokkrum manni dottið í
hug að fylla upp í yndislegan vog
og stefna þangað fjölmennri byggð
í margra hæða blokkum? Hvílík
framtíðarsýn. Hvað með það fólk
sem fyrir er og hefur valið sér bú-
setu við voginn og notið fegurðar
hans jafnvel um áratuga skeið, eða
þá sem nýlega hafa keypt sér lóðir
og eru þegar farnir að byggja sér
framtíðarheimili? Engan hefði get-
að grunað að hafflöturinn sjálfur
gæti komið til greina sem bygg-
ingarsvæði. Vogurinn er fullur af
fugli allan ársins hring. Á vorin
trítlar ungviðið í fjörunni og þar er
æðarvarp sem hlúa mætti betur
að. Við voginn á margæsin sér
griðland og álftin sem Álftanesið
dregur nafn sitt af, auk fjölda ann-
arra fuglategunda. Við Íslendingar
eigum þarna náttúruperlu sem
ekki verður metin til fjár. Þetta er
dýrgripur sem okkur Garðbæing-
um hefur verið trúað fyrir. Þarna
ríkir algjör friður og náin snerting
við náttúruna að ekki sé talað um
hina miklu birtu sem fylgir hafflet-
inum og lýsir upp allt umhverfið.
Ekkert í veröldinni er eins gott
fyrir sálina og að ganga um slíkt
svæði – hlusta á hljóð náttúrunnar,
fuglasöng og öldugjálfur. Þarna er
okkar áfallahjálp og sálgæsla. Eins
og segir í gömlu alþýðukvæði:
Þegar lundin þín er hrelld
þessum hlýddu orðum
gakktu með sjó og sittu við eld
svo kvað völvan forðum.
Vogurinn veit mót vestri og þar
speglast kvöldsólin í haffletinum
með ólýsanlegri fegurð. Breiður
hafflöturinn endurkastar roða sól-
arlagsins svo úr verður óviðjafn-
anleg litasinfónía. Á veturna eru
ægifagrar ísmyndanir í flæðarmál-
inu og meðfram ströndinni með
speglun sólar og hafflatar. Hvern-
ig er hægt að láta sér detta í hug
að spilla slíkri gersemi algjörlega
að tilefnislausu? Menn eru að líkja
eftir bryggjubyggð sem þeir sjá
suður við Miðjarðarhaf og halda að
hún falli inn í umhverfið hér á
Fróni í stað þess að halda sig við
lágreista byggð eins og þá sem
fyrir er við voginn og lýst hefur
verið af verktökunum sjálfum sem
fögru útsýni. Svæðið, sem liggur
að Álftanesi, Arnarnesi og Kópa-
vogi, ætti að vera griðland hinnar
fjölmennu byggðar sem við nefn-
um Stór-Reykjavíkursvæði, alveg
eins og Heiðmörk. Griðland sem
við getum notið innan seilingar en
þurfum ekki að sækja um langan
veg til að njóta eins og annarra
griðlanda sem við eigum. Ef byggt
hefði verið ofan í Heiðmörk ættum
við hana ekki í dag. Hver vildi
vera án hennar? Ef við Garðbæ-
ingar verðum þeir ógæfumenn að
byggja ofan í þá náttúruperlu sem
Arnarnesvogurinn er höfum við að
eilífu glatað þeim unaði og lífsfyll-
ingu sem því fylgir að eiga aðgang
að slíkum stað. Náttúruvernd mun
hafa sívaxandi þýðingu í næstu
framtíð. Við berum ábyrgð gagn-
vart komandi kynslóðum. Þá
ábyrgð verðum við að axla með
fullri meðvitund. Eyðileggingin
yrði aldrei bætt.
Byggjum landið sjálft en varð-
veitum víkur þess og voga með því
strandlífi sem blómstrar þar íbú-
unum til sáluhjálpar, uppörvunar
og yndisauka.
HÓLMFRÍÐUR BIRNA
FRIÐBJÖRNSDÓTTIR,
Hegranesi 30, Garðabæ.
Varðveitum
Arnarnesvoginn
Frá Hólmfríði B. Friðbjörnsdóttur:
GRUNNSKÓLANEMENDUR
Fyrir samræmdu prófin í 10. bekk
Einnig flestar námsgreinar í framhaldsskólum
Íslenska - stærðfræði - enska - danska
Nemendaþjónustan sf. sími 557 9233
namsadstod.is
Námsaðstoð