Morgunblaðið - 28.01.2001, Blaðsíða 39
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JANÚAR 2001 39
!"! !"#!$% %&' '(' $$ )$
*(+ !"#!$% )$ !"'+$ ,$ ' %&'
!$$&$ $ !"#!$% %&' -&. $$ '$ )$
&'' /'$ !"#!$% )$ )'($0 !$$ ' %&'
'$ !"#!$% )$ 1!$$ 2'( '$ %&'
%&'
$( !"#!$% )$ 3' $ 4(% 5 ($+ %&'
67 '(( 3 ' )$
8 '$ 82'$ )( $(2##!8 '$
Ég get ekki skilið að það sé komið
að kveðjustund, aldrei datt mér í hug
að þú myndir yfirgefa þennan heim
svona ungur. Ég bið Guð að varðveita
þig, ég veit að þú vakir enn yfir Huldu
og stelpunum. Ég votta þeim og fjöl-
skyldu þinni samúð mína.
Sýndu mér böðulinn sem blindan hefur
reyrt,
og boðorðin tíu sem engu geta breytt.
Hlustaðu á prestana sem bjóða blóðug svör,
brosandi færa þér móður jörð sem
gröf.
(Höf. ók.)
Björn Kristjánsson.
Við viljum með örfáum orðum
kveðja vin okkar Reyni Sigurjón Sig-
urjónsson er lést sunnudaginn 21.
janúar.
Við kynntumst Reyni er hann hóf
sambúð með Huldu, fjölskylduvini
okkar, og gekk dætrum hennar í föð-
urstað.
Reynir var alla tíð sannur vinur
okkar og traustur og við eigum eftir
að sakna hans mikið.
Við vottum Huldu og dætrum
hennar alla okkar samúð og eins Ein-
ari bróður hans.
Græt ég og greiði
gjaldið eina er má
– læt ég á leiði
laufin bleik og fá.
Sígræn blöð þér breiði
björk í fegra heimi;
mildur blær í meiði
minning þína geymi.
(Sigurður Sigurðarssson frá Arnarholti)
Sívar Sturla Sigurðsson,
Kristján Markús Sívarsson,
Stefán Logi Sívarsson.
Ekki gat mig grunað þegar þú
bankaðir upp hjá mér laugardags-
kvöldið 20. sl. að við ættum ekki eftir
að sjást aftur í þessu lífi. Að þú yrðir
allur strax næsta morgun. Þú varst
með flotta beinlausa steik og baðst
mig um að elda hana fyrir þig. „Það
tekur smátíma“, svaraði ég og þú
sagðir á móti: „Ég er ekkert að flýta
mér“ Meðan ég byrjaði að elda settist
þú inn í stofu og greipst gítar sem
stjúpdóttir þín hafði lánað syni mín-
um og hófst að spila á hann. Síðan
settist ég inn til þín og við fórum að
spjalla saman.
Þú sagðir mér að Hulda, sambýlis-
kona þín, væri að leita að íbúð handa
ykkur til að kaupa á Spáni og að þú
hygðist fara þangað í næsta mánuði
til að hjálpa henni við það.
Kisa litla lét svo lítið að sýna sig og
þú rifjaðir upp hvernig þú fannst
hana fyrir einu og hálfu ári langt frá
allri mannabyggð. Eitthvað straukst
við fótlegg þinn og þú leist niður og
sást þennan litla, sérkennilega, al-
hvíta kettling, sem hafði eitt augað
grænt og hitt fagurblátt. Þú varðst að
vonum hissa, því engin leið var til
þess að kisa hefði ráfað alla þessa leið
af sjálfsdáðum. Einhver hlaut að hafa
farið með hana á afvikinn stað til að
losa sig við hana á þennan grimmi-
lega hátt. Þú opnaðir bílinn þinn og
sagðir við köttinn: „Nú ræður þú
hvort þú kemur með mér, eða verður
hér eftir.“ Kisa stökk beint inn í bíl-
inn og fékk far með þér í bæinn. En
það var úr vöndu að ráða, því þín fjöl-
skylda hafði hund á heimilinu og þá
kom það til að kisa litla fékk sitt fram-
tíðarheimili hjá mér.
Svona eftirá finnst mér sérsakt að
þú skyldir biðja mig áður en þú
kvaddir að útbúa í tölvunni minni
geisladiska til að gefa vini þínum og
frænda. Eins var kveðjustund okkar
óvenjuleg. Þú tókst um herðar mér
og þrýstir mér að þér og kysstir mig
á ennið og sagðir: „Mér þykir vænt
um þig.“
Synir mínir voru harmi slegnir er
þeir fréttu andlát þitt, enginn hafði
átt von á svona skjótum endalokum.
Ég votta elskulegri vinkonu minni
Huldu og dætrum hennar mína inni-
legustu samúð og eins litla afastrákn-
um, honum Alexander Bjarka, for-
eldrum þínum og systkinum, ekki síst
Einari sem missti bæði bróður og
besta vin. Megi Guð varðveita ykkur
öll.
Margrét Kristjánsdóttir.
✝ Ingibjörg Þór-anna Jónsdótt-
ir var fædd í Stapa-
koti, Innri-Njarð-
vík 30. september
1921. Hún lést á
heimili sínu 22.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Jón Jónsson,
f. 19.12. 1879, d.
3.4. 1944 og Ragn-
hildur Helga Egils-
dóttir, f. 10.7.
1895, d. 26.9. 1969.
Hálfsystkini henn-
ar í föðurætt voru
Jóna, Einar Norðfjörð, Jón Mar-
geir og hálfbróðir í móðurætt Eg-
ill Ragnar. Alsystkini hennar voru
Guðrún, Helgi, Halldóra Auður,
Kristján Hafsteinn, Margrét, Guð-
jón Magnús, Aðalheiður Ósk, Sig-
valdi Guðni, Sigurður Hjalti og
Hrefna.
Ingibjörg giftist hinn 23.9. 1944
Stíg Hannessyni, f. 15.8. 1920, d.
3.5. 1988. Börn þeirra eru: 1)
Ólafía Helga, f. 2.7. 1943, maki
Garðar Steinþórsson, f. 24.10.
1942. Börn þeirra eru Ingibjörg
Arndís, Steinþór Páll, Margrét
Rósa, Hjalti Ragnar, Ingvar Örn,
Hjördís Björk og Halldóra Steina.
Þau eiga 12 barnabörn og eitt
barnabarnabarn. 2) Hannes, f.
30.11. 1944. Börn hans
eru, Stígur, Jóhanna
Björk, Hallgrímur Ein-
ar og Hannes Stefán,
hann á þrjú barna-
börn. 3) Einar Sigur-
berg, f. 22.5. 1948. 4)
Jóna Ragnhildur, f.
12.12. 1949, maki Örn
Sigurgeir Einarsson, f.
17.1. 1950. Barn þeirra
Pétur Ingi, þau eiga
tvö barnabörn. 5) Hall-
dór, f. 11.8. 1952, maki
Anna Ríkarðsdóttir, f.
28.9. 1952. Barn hans
Kolbrún Díegó, börn
þeirra Ríkharður, Birgir Örn og
Guðrún, hann á þrjú barnabörn,
þau eiga eitt barnabarn. 6) Þor-
steinn, f. 25.10. 1953, maki Þóra
Hauksdóttir, f. 25.10. 1953. Börn
þeirra eru Ragnheiður, Linda
Mjöll, Fjóla og Elísa. Þau eiga tvö
barnabörn. 7) Gunnar, f. 4.6. 1956,
maki Jónína Þórarinsdóttir, barn
hans Íris, börn þeirra Jón Gunnar,
d. 2. mars 2000, Þóranna Helga og
Bjarki Rafn. 8) Hrafnhildur Sig-
ríður, f. 3.12. 1963, maki Baldvin
Guðbjörnsson, f. 26.5. 1962. Börn
þeirra eru Trausti Már og Sara.
Útför Ingibjargar fer fram frá
Bústaðakirkju á morgun, mánu-
daginn 29. janúar, og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
Okkur langar í fáeinum orðum að
kveðja ástkæra tengdamóður okkar
og vinkonu Ingibjörgu Þórönnu
Jónsdóttur.
Þessi trausta og vel gefna kona var
einstaklega hugljúf og indæl. Hún
var afskaplega glaðlynd og skemmti-
leg kona sem hafði góðan húmor.
Allir sem voru svo heppnir að
kynnast henni mátu þau kynni mik-
ils. Það var alltaf svo gott að leita til
hennar, sitja í eldhúskróknum og
spjalla saman. Hún hafði alltaf tíma
til að hlusta og hafði áhuga á því sem
við vorum að gera. Betri tengdamóð-
ur var vart hægt að hugsa sér. Við
ætlum ekki að tíunda öll hennar góð-
verk sem hún vann enda ekki að
hennar skapi að þeim væri flíkað eða
hampað. Hún var hinn sanni gefandi.
Ingibjörg hafði mikla ánægju af að
spila og oft var tekið í spil á hennar
heimili. Hún naut þess að hafa
ömmubörnin í kringum sig og kenndi
þeim flestöllum að spila. Sunnudagar
hjá henni voru sérstakir. Þá voru allt-
af pönnukökur og aðrar kræsingar á
borðum og glatt á hjalla.
Margar góðar minningar eru frá
heimili hennar í Hólmgarði 11. Þar
var oft mannmargt þegar allt hennar
fólk var samankomið, bæði börn og
fullorðnir. Aldrei leið henni betur en
þegar allir voru mættir. Allt lék í
höndum Ingibjargar hvort heldur að
baka, elda góðan mat og einnig hafði
hún mjög gaman af allri handavinnu.
Yndi hafði hún af garðrækt og gaman
var að fylgjast með jarðarberjunum
og sjá hvernig þau döfnuðu í hennar
höndum. Henni þótti skemmtilegt að
fara í berjamó og þreyttist hún seint
á að þeytast á milli þúfna í leit að
berjum. Hún sá alltaf betra lyng á
næstu þúfu og oftast var hún fyrst að
fylla krukkuna sína.
Ingibjörg var mjög fróðleiksfús
kona og hafði mikla ánægju af ferða-
lögum og gerði mikið af því að ferðast
seinni árin. Fór hún í margar góðar
ferðir með vinkonum sínum og þótti
gaman að segja frá ferðinni þegar
heim var komið og ljómaði hún þá öll.
Og fljótlega var hún farin að huga að
næstu ferð og fór þær margar í hug-
anum í gömlu landabréfabókinni.
Síðastliðið ár var Ingibjörgu erfitt
og sýndi hún mikið æðruleysi í veik-
indum sínum og vildi sem minnst um
þau tala.
Okkur þykja það mikil forréttindi
að hafa fengið að kynnast þessari
sómakonu og viljum við þakka henni
samfylgdina.
Sérstakar þakkir til Sigurðar
Björnssonar læknis og Hjúkrunar-
þjónustunnar Karitas fyrir einstak-
lega góða umönnun í veikindum
hennar.
Við kveðjum Ingibjörgu með sorg
og söknuð í hjarta. Guð blessi þig og
megi minning þín lifa.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Anna, Þóra og Jónína.
Elsku amma mín. Þegar ég hugsa
til baka kemur fyrst upp í huga minn
þegar ég var yngri og átti heima í
Borgarnesi og þurfti að fara reglu-
lega á Landspítalann. Þá var alltaf
komið við í Hólmgarðinum hjá þér og
ég spurð hvað ég vildi borða. Auðvit-
að var svarið „fiskibollur“ og það
brást ekki að þú ættir fiskibollur í
frystinum handa mér. Svo gerðir þú
heimsins bestu flatkökur.
Amma, manstu jólin okkar? Við
hittumst alltaf á jóladag síðastliðin
u.þ.b. 15 ár, þá dönsuðum við í kring-
um jólatréð, spiluðum bingó, borðuð-
um hangikjöt og í lokin spiluðum við
vist. Meira að segja á síðustu jólum
spilaðir þú þó að þú værir frekar
slöpp.
Þú varst börnunum mínum góð
langamma og þín verður sárt saknað.
Upp í huga mér kemur fullt af
minningum sem erfitt er að setja á
blað.
Ég kveð þig að sinni, elsku amma
mín.
Þín
Halldóra Steina og fjölskylda.
Okkur langar til að minnast Imbu
ömmu með fáeinum orðum. Hólm-
garðurinn situr efst í minningunni.
Þegar við litum inn var undantekn-
ingarlaust tekið fram flest allt sem til
var í kotinu, blandaður nýr djús, hellt
upp á könnuna og skellt í pönnsur
(sem voru hennar sérgrein). Oft
barst talið að afmælisdögum hjá fjöl-
skyldufólkinu og þá var dregin upp
„svarta bókin“ sem hafði að geyma
afmælisdaga hjá öllum sem hún
þekkti og hafði þekkt.
Hún virtist vita allt um fólkið sitt
og fylgdist vel með hverjum og ein-
um, ávallt spurði hún okkur hvernig
lífið gengi og alltaf vissi hún hvernig
ástarmálin stóðu. Skemmtilegast
fannst henni að ferðast og minnumst
við ferða sem við fórum saman, bæði
til Kanarí og Ítalíu. Kanaríferðin
stendur okkur þó næst og talaði hún
oft um hana og hvað við skemmtum
okkur vel. Minnumst við þó helst
þegar svínið vaknaði og hvort tréð
hefði stækkað! Sjálf ferðaðist hún
mikið og var yndislegt að hlusta á
hana lýsa ferðinni, hvert hún labbaði,
hvern hún hitti og hvern hún spilaði
við. Spilamennskan var hennar
helsta áhugamál. Hún fór oft á spila-
kvöld og svo var alltaf spiluð vist á
jólunum. Sjaldan hittumst við öðru-
vísi en að taka í spil. Við fórum líka
saman í berjamó og ég man þegar við
keyrðum saman til Akureyrar og
stoppuðum örugglega hundrað sinn-
um á leiðinni til að kanna hvort ekki
væru ber hér eða þar og sjaldan brást
það að hún fann stórt berjalyng.
Elsku amma, mikið á maður nú
eftir að sakna þín, betri ömmu er vart
hægt að hugsa sér. Þú varst alltaf til
staðar ef mann langaði að létta af sér
eða bara spjalla.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni,
sitji guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Imba amma eða stóra amma eins
og við vildum kalla þig, hvíl þú í friði
og blessuð sé minning þín, við mun-
um aldrei gleyma þér.
Þínar
Heiða, Linda og Fjóla.
Elsku amma mín, mig langar að
kveðja þig með þessu fallega ljóði
sem ég tileinka þér:
Þú varst amma mín,
ég var stúlkan þín.
Fann ég hlýja hönd
hnýta ættarbönd.
Hvar er höndin nú,
hlýja, ást og trú?
Hvar er brosið hýrt,
hjarta tryggt og skírt?
Allt sem er og var
áfram verður þar
geymt í hugans sjóð.
Hverfist sorg í ljóð.
Ósk mín, amma mín,
er að ferðin þín
heim á ljóssins lönd
leysi þrauta bönd.
Vertu kærast kvödd.
Kallar nú sú rödd
ljóss er lýtur vald.
Lífsins fellur tjald.
(R.S.E.)
Saknaðarkveðja,
Kolbrún Diego.
Elsku amma mín, mig langar að
kveðja þig með nokkrum orðum.
Ég þakka þér fyrir allar þær góðu
stundir sem við áttum saman. Og öll
hvatningarorð þín sem hafa hjálpað
mér mikið, sérstaklega á síðasta ári.
Mér þykir það leitt að ég gat ekki
verið hjá þér þessa síðustu daga.
Bless, elsku amma mín.
Þín
Þóranna.
Hún Ingibjörg, eða Imba eins og
hún var oftast kölluð, er nú látin. Hún
hafði barist við sjúkdóm sem enginn
fékk breytt. Ég kom við í Hólmgarð-
inum síðast í maí, minnir mig, og fór í
kaffi til Imbu, hafði þá að orði að nú
væri hún sú eina sem væri hægt að
heimsækja á æskuslóðirnar, þar sem
ég ólst sjálfur upp í næsta húsi. Við
Steini (Þorsteinn) vorum mikið sam-
an og var oftast verið heima hjá hon-
um, það voru alltaf notalegar mót-
tökur hjá Imbu.
Þremur dögum áður en hún lést ók
ég upp Grensásveginn og ætlaði að
koma við en gleymdi svo að taka
beygjuna, ég hafði ekki haft tækifæri
til þess síðan í vor. Mér var alltaf svo
hlýtt til þín, þú varst einstök kona og
stóðst alltaf eins og stytta með okkur
strákunum. Og alltaf var hægt að
spjalla við þig um alla skapaða hluti,
þú náðir allavega vel til mín og mun
ég alltaf bera góðar tilfinningar til
þín. Ég gleymi því ekki þegar þú
sagðir mér frá því rétt áður en þú
hættir að vinna, hvað þú hlakkaðir til
að geta farið að ferðast og njóta þess
að vera með börnum þínum og barna-
börnum, enda var illmögulegt að
koma í kaffi þá, oft varstu erlendis
allavega. Það var ánægjulegt að sjá
hvað þú ljómaðir, þú varst mikil af-
rekskona, búin að vinna mikið með
stóru og miklu heimili og koma því
glæsilega til skila. Þú hefur skilað
þínu hlutverki með miklum sóma
hérna megin Imba mín. Þegar Steini
vinur minn hringdi til mín nokkrum
tímum eftir að þú kvaddir fór ég fljót-
lega að hugsa til þín og kveðja þig
með nokkrum línum. Ég sakna þess
að geta ekki haft erindi í kaffi á
heimaslóðir, en sérstaklega góðar
minningar munu lifa um þig. Ég
votta ykkur öllum aðstendendum
samúð mína.
Hafsteinn Sigurbjarnason.
INGIBJÖRG ÞÓR-
ANNA JÓNSDÓTTIR
Inger Steinsson,
útfararstjóri,
s. 691 0919
Ólafur Ö. Pétursson,
útfararstjóri,
s. 896 6544
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
S. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta.